Heimilistíminn - 27.01.1977, Side 5

Heimilistíminn - 27.01.1977, Side 5
sambandi viö slys, sem hún varö fyrir á ferð i Tiról. Hún var meö fjölskyldu sinni uppi f fjöllum — og lenti í steypiregni svo stigarnir uröu hálir. A leiöinni niður skrikaði Gun fótur og lenti með höfuðið harkalega á tré. Hún hélt lengi sjóninni á vinstra auga með því að fara i læknisaðgerðir og allt gekk vel. En siðan var ekki lengur hægt að bjarga sjóninni á vinstra auganu — heimur hennar myrkvaðist. Það var erfiður timi. — t fyrri bók sinni lýsir hún honum á hreinskilinn og persónulegan hátt. „Þegar augun slokkna veröur lifið mjög snautt”, skrifar hún. „Timinn ætlar aldrei að liða. Þú hlustar á útvarp, reynir að draga öll samtöl á langinn og reynir til hins itrasta á þolinmæði meðbræðra og systra. Þú heklar og heklar þangað til þú ■er.t að verða vitlaus. TIu peysur gerði ég á tveim mánuðum. Loksins gafst ég upp. Ég gat ekki plagað fjölskylduna lengur með hekluðum peysum. Þá vissi ég ekki hvað ég átti að gera af mér. — Oft furða ég mig á einu. Fyrst það er svo erfitt fyrir hrausta og jaröbundna manneskju eins og mig sem á góða fjölskyldu og vini og fyrst ég fann svo mjög til framandleika og einstæðingsskapar, hvernig komast þá þeir sem veikari eru af, sem verða fyrir sama hlutskipti. Hver gefur þeim nýjan lifsþrótt?” Fjandsamleg veröld 1 nýju bókinni segir Gun Nihlén frá þvi hvernig henni vegnaði eftir þetta, hvernig lif hennar i myrkvuðum heimi varð. Hún býr með manni sinum John Nihlén prófessor i ibúð i Lundi I Sviþjóð. 1 bók sinni lýsir hún þvi hvernig meira að segja hennar eigið heimili var fjandsamlegur heimur þegar hún kom heim af sjúkra- húsinu eftir að hafa misst sjónina. En nú hefur hún lært að fara sinna ferða þar. Hún eldar sjálf matinn og annast önnur heimilisstörf og I horni á herberginu sinu hefur hún segulbandið sitt og ritvélina en þar eyðir hún nokkrum tímum daglega. Hún á marga nána vini og ættingja og lff hennar er innihaldsrikt. — Það er að miklu leyti fjölskyldu minni að þakka að mér hefur gengið svona vel, segir hún. Þau hafa aldrei verið með neina viökvæmni, þau hafa staðið meö mér og hvatt mig. Og ég hef haft mikla gleði af barnabörnunum mfnum. Gun Nihlén hefur alltaf verið i nánum tengslum við börn og unglinga. 1 sjö ár var hún kennari við Olofsskólann I Stokk- Gun Nihlén situr nokkra tima á dag við ritvélina og segulbandið. Hún býr með manni sinum John Nihlén prófessor I Ibdð I Lundi og hugsar sjálf um heimilisstörfin. — Þaö er fjölskyldu minni að þakka að allt gengur svona vel þótt ég sé blind. Minir nánustu hafa aldrei verið með viðkvæmni. Þess f staö hafa þeir hjálpað mér og hvatt mig. 5

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.