Heimilistíminn - 14.04.1977, Blaðsíða 8

Heimilistíminn - 14.04.1977, Blaðsíða 8
Þær brosa breitt á þessari mynd flugkonurnar hans Amins og reyndar lfka kennarar þeirra. Hins vegar fara sögur af þvi að þjálfunin sjálf sé ekk- ert til að brosa yfir. Amin vill koma sér upp kvennaflugsveit Amin Ugandaforseti virð- ist kæra sig kollóttan, þótt hver lýsingin annarri ófeg- urri sé gefin á blóðþorsta hans og grimmd. Hvað sem tautar og raular heldur hann sinu striki og nú hefur hann enn einu sinni vakið athygli umheimsins fyrir þá ákvörðun sina að koma sér upp sérstakri kvennaflug- sveit. Og Amin lætur ekki sitja við orðin tóm. Hann valdi i skyndi nokkrar stúlkur af ættflokki sinum og skipaði þeim til Skotlands, þar sem afskekktur flugvöllur hafði fengizt til kennslunnar. Engin stúlknanna hafði séð flugvél áður og fæstar þeirra kunnu á reiðhjóli. — Þið verðið fram- varðarsveit min gegn óvinunum, sagði Amin við stúlkurnar. Og hann sagði þeim, að flugvélarnar sem þær fengju yrðu hvorki meira né minna en rúss- neskar MIG-herþotur. — Þið munuð þjóta um loftin blá i minu nafni, sagði for- setinn, og stinga óvininn. En það dugar skammt nafn Amins, þegar i loftið er komið, þvi þjálfun stúlkn- anna gengur brösulega og hvað eftir annað hefur legið við stórslysum, sem brezk blöð gerðu sér mikinn mat úr, þegar upp komst um flugskóla Amins i Skotlandi. En Amin er hvergi hrædd- ur, þótt stúlkurnar og þjálf- arar þeirra séu það. — Hug- ur minn gefur ykkur vængi, segir hann. Það er svo ann- að mál, að til þessa hafa þeir vængir dugað litið og flugvélarnar einhvern veg- inn heldur viljað búa að sin- um eigin — og ennþá gengur allt á afturfótunum. Gauti Hannesson: F öndurhornið Þessi hnútur er oft not- aður sem gestaþraut, þvi hann er nokkuð erfiður fyrir þá, sem ekki þekkja til hans, en þrautin er að setja kubbana sex saman i lás. Myndin sýnir kubbana i réttri stærð. Þeir þurfa að vera vel heflaðir og slipaðir og hafa nákvæmlega þap mál, sem upp eru gefin, en það eru millimetrar, sem hér eru notaðir. Kubbarnir eru t.d. 17 mm á breidd og þykkt, en 100 mm á lengd (eða 10 sentimetrar). Að frágangi loknum er rétt að lakka yfir með glæru leifturlakki, svo sem þrisv- ar sinnum.

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.