Heimilistíminn - 14.04.1977, Qupperneq 13
g,' íi ,'V’ ' - “fcp’í
><y^^ í-> $ \ ■'". ‘vV. '■’.' '■■yv/A 'J \ V, ,
t ' -
*/ •. . •' • '
1.........h......é I
prjónuö
á andartaki
Stærðirnar á peysunni eru
fjórar: á eins árs, átta ára og
síðan númer 40 og 54. Einnig
má prjóna hana eins og jakka
með því að fella af allar
lykkjurnar, þegar komið er
hálfa leið í hálsmálinu og fitja
upp aftur á næsta prjóni.
Efni: Notið gróft garn og
prjóna nr. 10. í peysuna fara
200-500-800-1200 gr. af garni
eftir stærð.
Prjónfesta: 10 lykkjur eru 10
cm með sléttu prjóni fram og
til baka.
Byrjið fremst á annarri erm-
inni, prjónið þvert yf ir og end-
ið f remst á hinni erminni. Fitj-
ið upp 20-26-35-44 I og prjónið
26-44-66-80 lykkjur slétt fram
og til baka (garðaprjón) —eða
þangað til ermin er orðin að
óskaðri lengd. Fitjið þá upp 15-
25-40-45 I til viðbótar í hvorri
hlið, þannig að viðbótarlykkj-
urnar verða annars vegar
framstykkið og hins vegar
bakið. Þá eru 50-76-115-134 I á.
Prjónið 14-20-26-32 prjóna.
Gerið síðan hálsmál með því
að fella niður af næsta prjóni
4-8-11-14 lykkjur í miðjunni og
prjónið síðan annan helming-
inn áfram: 8-10-13-16 prjóna.
Þá er komið að miðjunni á
framstykkinu. Mælið víddina,
því hér er hægt að bæta nokkr-
um prjónum inn í, ef peysan
reynist of þröng. Prjónið síðan
hinn helminginn alveg eins. Nú
eru stykkin prjónuð saman
aftur og jafnmargar lykkjur
fitjaðar upp á milli þeirra
og felldar voruaf áður. Prjón-
ið þá það sem eftir er fram á
ermarenda alveg eins og fyrri
helming peysunnar. Fellið af.
13
I