Heimilistíminn - 22.02.1979, Blaðsíða 23

Heimilistíminn - 22.02.1979, Blaðsíða 23
—Eigum við að búa öll á sama hóteli? spurði ég svolitið óviss. Hann varð vandræðalegur og svaraði svo: — öll nema hr. Jason. Hann býr alltaf um borð i skipinu, á meðan hann er hér. — Nú, jæja, sagði ég og roðnaði. Það var svo- litið óþægilegt, að verða vör við það, að ein- hverjir aðrir vissu, hvernig ástandið var milli min og Jasons. Nokkrum minútum siðar fylgdum við á eftir hr. Smythe niður landgöngubrúna. A bryggj- unni sátu þeir Paul og Ephraim i opnum vagni. Þegar ég var komin að vagninum snéri ég mér við og leit aftur til skipsins. Hvergi sást Jason. Þegar við ókum af stað brosti Paul til min og sagði: —Jæja, þá erum við komin á leiðarenda. Það er aldeilis spennandi, eða hvað finnst þér? Hann snéri sér að Smythe — Var ekki San Isidro samastaður sjóræningja hér fyrr á arum? — Jú, það er rétt. Fólk, sem gengur hér um við ströndina rekst enn á minjar um sjóræn - ingjana, gullpeninga og annað álika. Við verðum að muna eftir þvi, Irene, sagði Paul. — Við gætum orðið sæmilega rik áður en við förum héðan aftur. Ég endurgalt með þakklæti bros hans. Ferð- in hefði orðið heldur tilbreytingarlaus, ef hann hefði ekki verið með. Jason hafði alltaf verið eitthvað annað að gera, og ef til vill hélt hann sig af ásettu ráði f jarri okkur. Ég vissi það ekki fyrir vist. Ephraim, sem kvartaði yfir gigtinni og slæmsku I maganum, hafði að mestu haldið sig I klefa sinum. Paul hafði hins vegar oft gengið með mér um þilfarið, talað um Kara- bisku éyjarnar og sögu þeirra og sagt frá þvi, að hann ætlaði að heimsækja sjúkrahúsið á eyjunni. — Ég ætla að reyna að kynna mér svolitið hitabeltissjúkdóma, hafði hann sagt. — Nú þegar fastar ferðir eru komnar á milli'Sag Harbor og Vestur-India veit maður ekki hvað getur borizt heim til okkar. Við ókum yfir stórt torg. Ephraim sat þögull með hökuna djúpt niðri I hálsmálinu. Hann snéri sér stundum við og horfði á ljósleit húsin, sem við ókum fram hjá. Ef til vill dreymdi hann um aðrar pálmavaxnar eyjar, um sól- brúnar konur, ef til vill lét hann hugann reika til ungdómsáranna, þegar hann sjálfur var á ferð...Skyndilega benti Smythe á ljósgræna byggingu. Fyrir ofan innganginn las ég áletrunina „Fonsell & Haverly AB”. Það var undarlegt að sjá þessi velþekktu nöfn þarna I hitabeltinu. Vagninn stöðvaðist fyrir framan hótelið. Það var þriggja hæða bygging með svölum, sem umgirtar voru svörtum smiðajárnsgrindum. Paul fylgdi okkur Lizu upp i herbergið okkar og okkur kom saman um að hittast eftir klukku- tima og borða saman miðdegisverð. Við drógum okkur i hlé nokkuð snemma um kvöldið, vegna þess hve þreytt við vorum eftir ferðina. Ég átti þvi erfitt með að sofna. Hitinn var óþægilegur og fyrir utan gluggann minn skein hitabeltistunglið, fagurt á að lita. Ég fór fram úr og opnaði dyrnar út á svalirnar. Him- ininn var fremur purpura rauður en dökkblár. Niðri i hótelgarðinum óx pálmi og þar var mikið af fallegum hvitum blómum. Orkideur hugsaði ég með mér undrandi, hvitar orkideur. Fugl söng i næturhúminu. Þetta var nótt sem hefði átt að umljúka tvo elskendur. Þessi hugsun, sem komið hafði fram i huga mér, andstætt vilja minum gerði mig sorg- mædda. Ég var tuttugu og þriggja ára — og ein. Ef ég nú ekki skildi við Jason og færi að leita að ævintýraprinsinum minum myndi ég halda áfram að vera ein allt lifið. Hugsunin um Lizu megnaði ekki einu sinni að gleðja mig á þessu augnabliki. Fegurð næturinnar varð stöðugt óbærilegri, og að lokum fór ég inn aftur og lokaði á eftir mér. t fyrsta skipti i langan tima grét ég mig í svefn. Vikuna næstu á eftir var ég úti með Paul hvern einasta dag. Við söfnuðum skeljum, gengum um borgina og ókum upp i fjöllin og svo fórum við að skoða gamalt virki þarna skammt frá. Tvisvar sinnum þessa viku sá ég Jason bregða fyrir. Hann var allt i einu orðinn svo f jarlægur. Það var Paul, sem var með mér þegar ég sá eitthvað nýtt, og við töluðum um það sem við sáum, og hvað okkur fannst um það. Hann var alltaf við hlið mér. Við höfðum orðið hrifin af virkinu og þar sem ég gat skilið Lizu eftir hjá konu hóteleigandans, sem var einstaklega barngóð, gátum við farið hverja ferðina af annarri tvö ein. Ephraim virtist vera mjög ánægður með að fara bara i smágöngu- ferðir einsamall, og vildi aldrei koma með okkur. Á kvöldin var hann svo með Paul, sem fylgdist vel með þvi, hve mikið hann drakk. Stundum varð mér hugsað til þess hversu sjaldan hann fékk tækifæri til þess að hitta son sinn, ef hann þá hitti hann yfirleitt nokkuð. Jason virtist hafa nóg að gera. Mér leið alltaf betur og betur i návist Pauls. 23

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.