Heimilistíminn - 22.02.1979, Síða 24
Samband okkar varð stöðugt innilegra, eftir
þvi sem dagarnir liðu. Kvöld eitt, þegar við
flýttum okkur heim á hótelið, þegar hitabeltis-
myrkrið var að skella á, var veðrið og nóttin
svo lokkandi, að við gátum tæpast fengið okkur
til þess að fara inn. Hvitar, fallegar orki-
deurnar skinu i garðinum og við gengum
saman eftir stignum. Allt i einu spurði hann:
— Ert þú að hugsa um að skilja við Jason?
Spurningin kom svo óvænt, og var svo hrein-
skilnisleg, að ég nam snögglega staðar. Samt
var mér orðið ljóst, að Ephraim hafði sagt
honum, hvernig ástandið var milli okkar
Jaspns.
— Ég geri ráð fyrir þvi, sagði ég hægt og án
nokkurrar áherzlu. — Ég ætla þó að biða svo-
litið með það, Lizu vegna.
—Ég held ég skilji, við hvað þú átt. — Þú vilt
að fólk verði hætt að skvaldra áður en það
byrjar aftur að tala um eitthvað nýtt.
— Já.
— Og eftir skilnaðinn?
— Ég veit ekki hvað gerist þá. Það verður
framtiðin að skera úr um.
Hann nam staðar og tók um axlir minar og
horfði framan i mig. Það var einhver nýr
glampi i augum hans. Það var eins og hann ætti
i innri baráttu, og vissi ekki, hvort hann ætti að
gera eins og hugurinn bauð. Á næsta augna-
bliki var hann farinn að brosa og sagði lágum
rómi:
— Mikið er leiðinlegt, að ég skuli vera meira
en fimmtán árum eldri en þú. Annars hefði ef
til vill verið staður fyrir mig i framtiðaráætl-
unum þinum.
Ég roðnaði varð hálfringluð, en muldraði þó:
— ó, Paul.
Hann tók undir hökuna á mér og kysti mig,
létt, snöggt en af mikilli viðkvæmni.
— Vertu ekki svona óttaslegin. Það er ekki
þér að kenna, að ég skyldi fæðast á röngum
tima.
Við gengum áfram eftir trjágöngunum, en
þögðum bæði. Eftir svolitla stund sagði hann:
— Ég er að hugsa um að fara frá Sag Harbor
og halda eitthvað til vesturs. Gætir þú hugsað
þér að koma með mér? Koma með sem eigin-
kona min. Hugsaðu alla vega um það.
— Já, sagði ég lágum rómi. — Ég skal gera
það Paul.
Ég meinti i raun og veru það sem ég sagði.
Nú vissi ég reyndar vel, að ég elskaði ekki
Paul. Hlýjan og gleðin, sem ég fann til, þegar
við vorum saman var ekki sprottin af ást,
24
heldur sannri vináttu. Ég hafði vitað það á
sama augnabliki og hann kyssti mig. En ég
mat hann mikils, bar virðingu fyrir honum og
fann til öryggis i nærveru hans. Aldursmunur-
inn skipti engu, og ég hugsaði aldrei um hann.
— Ég hef verið að hugsa um að fara til
Denver, sagði hann, þegar við vorum á leið
aftur til hótelsins. Það er falleg borg, og ég var
þar i leyfi fyrir f jórum.
Hann hætti snögglega. Ég fylgdi augnaráði
hans og sá einhvern standa i dyrum hótelsins.
Maðurinn virtist hár og mikill þarna sem hann
stóð i dyrunum með ljósan bakgrunninn. Á
næsta augnabliki vissi ég að það var Jason.
Hversu lengi hafði hann staðið þarna? Hafði
hann verið nógu lengi til þess að hafa orðið
vitni að þvi, þegar Paul kyssti mig?
— Nei, gott kvöld, Jason, sagði ég, og heyrði
sjálf, hversu þvinguð rödd min var.
— Gott kvöld. Hann leit snöggt til Pauls og
svo sneri hann sér að mér.
Ég hef oft komið til þess að hitta þig, en mer
hefur skilizt, að þú hafði verið — upptekin! Það
kom kaldhæðnislegt bros fram á varir hans. Ég
kom til þess að segja þér að okkur hefur verið
boðið til kvöldverðar og dansleiks hjá Auberge-
fjölskyldunni á morgun. Viltu koma?
Ég fylltist óvæntri reiði, þegar ég heyrði
hversu kæruleysislega og áhugalaust hann
sagði þetta.
— Er ekki bezt, að ég komi með, svona til
þess að láta allt lita vel út á yfirborðinu?
— Jú, liklega. Hann þagði svolitla stund, og
svo bætti hann við: — Paul er lika boðinn.
Ég leit á Jason og með samblandi af hræðslu
og undrun hugsaði ég: — Hann er reiður. Þegar
ég svo tók eftir þvi, hvernig hann horfði á Paul
náði hræðslan yfirhöndinni. Það var greinilegt
hatur i augnaráði hans.
— Ég kem og sæki þig klukkan sjö, sagði
hann lágt, sneri sér við og hvarf á brott.
Um leið og ég heyrði fótatak Jasons fyrir
utan herbergið mitt næsta kvöld, opnaði ég
dyrnar ogfór fram. Ég var með létt, útsaumað
sjal á berum öxlunum, og svartur blævængur
hékk um úlnlið minn. Það sáust engin svip-
brigði i andliti Jasons.
— Hver gætir að Lizu? spurði hann, þegar við
vorum á leið út i vagninn, sem beið okkar.
— Hún sefur nú i fyrsta skipti hjá ókunnugu
fólki, sagði ég svolitið óróleg. — Eiginkona
hóteleigandans er búin að hátta hana, og ég fór
og kyssti hana góða nótt. Þetta er dásamleg