NT - 26.04.1984, Blaðsíða 4
Myndavél sem s
Landhelgisgæslunni kynnt nýtt
leitar- og björgunarkerfi
■ „Við erum mjög hrífnir af
þessu tæki og teljum, að það
geti hjálpað mikið við leit, hvort
sem það er að fólki eða öðru, við
mismunandi aðstæður.“
Petta sagði Gunnar Berg-
steinsson forstjóri Landhelgis-
gæslunnar um leitar- og björg-
unarkerfi frá fyrirtækinu Bris-
tow Helicopters í Bretlandi,
sem kynnt var fyrir Landhelgis-
gæslunni og fleiri aðilum í gær.
Kerfi þetta byggir m.a. á
infrarauðri myndavél, sem gerir
kleift að stunda björgunarstörf
með þyrlum jafnt á nóttu sem
degi, hvort sem er yfir sjó eða
landi. Auk þess hentar kerfi
þetta til margs konar eftirlits-
starfa, t.d. má finna með því
bilun í raflínum og sprungur í
vatnsæðum undir yfirborði,
jarðar. Auk þess er hugsanlegt
að það megi nota til að leita að
fólki í snjóflóðum.
Gunnar Bergsteinsson sagði,
að það væri mjög æskilegt að
Landhelgisgæslan eignaðist leit-
arkerfi sem þetta.
„Við erum með myrkur í
langan tíma allan veturinn, sem
gerir það að verkum að oft þarf
að bíða morguns, eða birtu,
þegar leita þarf að fólki. Ég
held, að það liggi Ijóst fyrir, að
það geti sparað mannslíf, eða
orðið til þess, að við getum
orðið að liði fyrr en ella,“ sagði
Gunnar Bergsteinsson.
■ L.G. Smith þyrluflugmaður
hjá Bristow Helicopters segir
frá kostum leitar- og björgunar-
kerfisins, sem fyrirtækið hefur
hannað.
NT-mynd Árni Sæberg
Albert og Perón
■ Albert Guðmundsson á
ekki sjö dagana sæla í ráð-
herrastöðu sinni lengur. í raun
og veru á hann mjög erfitt með
að halda áfram að vera fjár-
málaráðherra. Helstu máttar-
stólpar Sjálfstæðisflokksins,
Vinnuveitendasambandið og
Morgunblaðið, eru búnir að fá
sig fullsadda af honum. Auk
þess á hann sjálfur æ erfiðara
með að laga sig að þefm vinnu-
brögðum sem tíðkast hafa í
fjármálaráðuneytinu í gegn um
tíðina. Spurningin um það
hvað Albert gerir verður sífellt
áleitnari. Þraukar hann út
kjörtímabilið, bíður hann eftir
að forsetaembættið losni, eða
stofnar hann flokk Perónista
(„Bertista") í kringum huldu-
herinn sinn? Lítum nánar á
stöðuna.
Kjarasamningur ASÍ og
VSI' , sem fól í séraukin ríkisút-
gjöld, var gerður meðan Al-
bert dvaldi erlendis. Þegar
fjármálaráðherra kom heirn
lýsti hann hneykslan sinni á
því að ríkissjóður væri látinn
taka að sér að borga hluta af
kauphækkuninni í gegn um
tryggingakerfið. Hann sagði að
fyrirtækin gætu vel greitt þess-
ar launahækkanir sjálf, eftir
allt sem ríkisstjórnin er búin
að gera fyrir þau. Við þessa
yfirlýsingu fór mögnuð reiði-
bylgja út um allt taugakerfi
Vinnuveitendasambandsins,
þó ekki væri það í fyrsta skiptið
sem Albert hefur hleypt raf-
straumi á þær taugarnar. Síðan
þegar hann gerði „réttlætis-
samkomulagið“ fræga við
Dagsbrún, sem stefndi öllum
kjarasamningum í hættu á við-
kvæmu augnabliki, fylltist
mælirinn alveg.
Morgunblaðið, sem hefur
átt æ erfiðara með að leyna
óánægju sinni með það að
Albert lætur ekki að stjórn,
setti hörku í málið. Leiðarar
og heilu Reykjavíkurbréfin
voru lögð undir í reiðilestur-
inn. Nú skyldi óþekktarormur-
inn tekinn á beinið. Albert lét
sér fátt um finnast og sagði,
glottandi, að Mogginn lygi
aldrei!
Albert hefur ákveðnar hug-
myndir um það hvernig á að
stjórna. Ekki eru allir á sama
máli og þess vegna hefur hann
■lent í fleiri árekstrum en al-
gengt er um ráðherra. Með
yfirlýsingum sínum í fjölmiðl-
um hefur hann oftlega flett
samráðherra sína og embættis-
menn klæðunum og komið aft-
an að þeim. Auk þess hefur
hann gert sjálfum sér erfitt
með opinberunum um ófrá-
víkjanleg prinsíp sín og með
hótunum um afsögn. Honum
hefur svo í seinni tíð gengið
sífellt verr að halda þessi prins-
íp sín. Launaramminn frægi
sprakk, skattar hafa hækkað
og erlendar lántökur aukist.
Þegar stóru götin í fjárlög-
unum fara ítrekað að rifna upp
aftur munu fleiri prinsíp og
loforð fjúka með viðeigandi
hneisu.
Morgunblaðið og VSÍ munu
króa hann meira og meira af.
Vistin verður því óbærilegri
með hverjum degi. Sjálfstæð-
isflokkurinn er ekki sá flokkur
frjálslyndis, víðra veggja og
einstaklingsfrelsis sem Albert,
og fleiri, héldu. En hvað gerir
Albert þá?
Þraukar hann áfram í ráðu-
neytinu? Albert er þrautseigur
en ólíklegt er að hann sjái
ástæðu til að streða áfram
þegar fleiri og fleiri prinsíp
þurfa að fara fyrir lítið. (Yfir-
lýsingin fræga, „Hefurðu
nokkurn tímann vitað mig ekki
standa við orð mín“, lifir
áfram).
Bíður hann þá eftir að frú
Vigdís fari frá Bessastöðum?
Meðan óvíst var um framboð
hennar fyrir annað kjörtímabil
var Albert í biðstöðu og lokaði
ekki fyrir möguleikann á for-
setaframboði. Nú er útséð með
það og hið pólitíska nef Al-
berts segir honum að Vigdís
forseti verður endurkjörin.
Hann reynir því ekki í sumar.
Bið í fjögur ár kemur til greina,
en hver veit nema Vigdís fari
svo fram í þriðja. skiptið. Þá
væri illt í efni því átta ár eru of
langur tími fyrir foringja að
bíða eftir vegsemd sinni - og
það í pólitískum ólgusjó.
Líkurnar á því að Albert
leiki einleik fara því vaxandi -
og hann gæti skorað! Menn
deila ekki um það að Albert
hefur foringjayfirbragð sem
sker sig úr. Hér nægir að nefna
hreppstjóraístruna, Castró-
vindilinn og generálsfestuna.
í raun er mjög margt líkt
með Albert og Perón þeim
argentínska sem safnaði um
sig fjöldahreyfingu fyrr á
árum. Báðir eru sterkir ein-
staklingar sem hafa tekið sér
vald. Báðir eru af alþýðufólki
komnir. Perón vann sig upp í
gegnum hörkuheim hersins en
Albert í gegnum frumskóg fót-
boltans. Báðir geta höfðað til
fjöldans, og ekki hvað síst til
verkamanna. Perón hafði hina
þýðingarmiklu kjötverkamenn
með sér í Argentínu og færði
liann þeim ríflegar kauphækk-
anir að launum fyrir stuðning-
inn í byltingunni 1945, eftir að
Perón hafði verið rekinn úr
ríkisstjórninni. Albert hefur
Dagsbrúnarmenn með sér og
á nú inni hjá þeim eftir réttlæt-
issamkomulagið á dögunum.
Báðir hafa þeir foringjarnir
skilið að borga þarf fólkinu
fyrir slíkan stuðning. Auk
kauphækkana setti Perón á fót
fræga félagsmálastofnun undir
stjórn konu sinnar, Evitu. Al-
bert hefur iengi rekið eigin
óformlega félagsmálastofnun.
Hann hefur veitt lítilmagnan-
um hjálp með fyrirgreiðslu
ýmis konar hjá hinu opinbera
og í bönkunum. Auk þess
hefur hann stutt við bakið á
duglegum framtaksmönnum,
fellt niður opinber gjöld af
tívolísirkus í Reykjavík og inn-
fluttum döðlum. Frægt varð
þegar liann létti mönnum
þunga skammdegisins með
því að fella niður vörugjaldið
af músikdiskum og dægur-
lögum fyrir jólin síðustu. Því
miður var orðið heldur grunnt
í ríkiskassanum þá, þannig að
hann varð að neita bókaútgef-
endum um sama greiðann í
það skiptið.
Albert og Perón, líkingin er
sterk. Spurningin er því bara
hvenær hulduher Bertista
verður að opinberri fjölda-
hreyfingu?
Skuggi
Guðjón Einars-
son er sextugur
ídag
■ Guðjón Einarsson er 60
ára í dag. Hann er einn af
elstu starfsmönnum Tím-
ans. Hann var lengst-
um yfirmaður ljósmynda-
deildar blaðsins en hefur
nú tekið við störfum skrif-
stofustjóra ritstjórnar NT.
Samstarfsmenn Guðjóns
fyrir og eftir nafnbreytingu
Tímans í NT senda honum
hugheilar hamingjuóskir á
afmælisdaginn og óska hon-
um veifarnaðar á þessum
tímamótum.
Útgerðarskuldirnar:
Skuldbreyting
undirbúin í
bankakerfinu
■ Fyrr í þessum mánuði skip-
aði sjávarútvegsráðherra nefnd
sem í eiga sæti fulltrúar stærstu
viðskiptabankanna og sjávarút-
vegsráðuneytisins. Hún á að
hafa með höndum samræmingu
á skuldbreytingu útgerðar-
skulda í bankakerfinu. Nefndin
kom saman til fyrsta fundar í
gær, en formaður hennar er
Bjarni Bragi Jónsson, Seðla-
bankanum. Bjarni sagði að
menn væru rétt að byrja að
þreifa fyrir sér með einhverjar
reglur sem hægt yrði að styðjast
við þegar til skuldbreytingarinn-
ar í bankakerfinu kæmi. Ætlun-
in væri að reyna að lengja lán
þeirra sem til þess væru taldir
hæfir. Hann sagði ekki hægt að
gera sér grein fyrir því, að svo
komnu máli, hve stórum hluta
útgerðaskulda í bankakerfinu
yrði hægt að skuldbreyta. Það
skýrðist tæpast fyrr en liði fram
á sumar. Hins vegar mætti búast
við að reynt yrði að ljúka þessu
starfi fyrir ágústlok eða á svip-
uðum tíma og stefnt er að því
að Ijúka skuldbreytingu stofn-
lána hjá fjárfestingalánasjóðun-
Lánskjaravísitalan:|
Hækkar
um 1.6%
■ Lánskjaravísitalan
fyrir maímánuð verður
879 stig samkvæmt út-
reikningum Seðlabank-
ans. Gildandi lánskjara-
vísitala aprílmánaðar er
865 stig, svo hækkunin
milli mánaða er 1.62% að
þessu sinni.