NT - 26.04.1984, Qupperneq 12
1 Fimmtudagur 26. apríl 1984 1 2
L LL
■ Til bráðabirgða höfum við búið okkur til nokkurs konar ritstjórnarmiðstöð eða „desk“ úr gamla fundarborðinu og nokkrum aukaborðum. Róbert yfirljósmyndarí tók þessa mynd í fyrrakvöld, þegar
allt var á fullu við að skipuleggja aðalfréttasíður NT. Sitjandi eru þeir útlitsteiknarar Sveinbjörn, Hermóður og Gunnar Trausti. Standandi eru þeir Kristinn Hallgrímsson, fréttastjórí, Gunnar E. Kvaran,
deskstjóri, Magnús Olafsson, rítstjóri og Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, framkvæmdastjóri.
NT: Höfum nú komist yf
ir mestu erfiðleikana
■ Nú í dag, þegar þriðja
NT blaðið er komið á götuna,
er jafnframt farin að koma
einhver reynsla á hið nýja
starfsskipulag, sem er verið
að innleiða þessa dagana á
ritstjórnarskrifstofum NT.
Eins og áður hefur komið
fram í blaðinu, er hér um að
ræða skipulag, sem á sér enga
hliðstæðu á íslandi, þrátt fyrir
að slík nútímavinnubrögð
hafi um árabil verið notuð í
erlendum blaðaheimum.
Það mun auðvitað taka
sinn tíma að þróa þetta kerfi
og sníða vankanta af því, en
óhætt er að fullyrða, að inn-
leiðing nýja skipulagsins hafi
farið fram úr því sem jafnvel
bjartsýnustu menn höfðu
þorað að vona. Árangurinn
er líka augljós: Betri, efnis-
meiri og skipulagðari frétta-
síður en hingað til hefur verið
hægt að bjóða upp á.
Hringtí
„kontaktmenn“
Fréttirnar á NT verða til
með margvíslegum hætti.
Unnið er skípulega að því að
finna nýja fleti og framhöld af
þeim málum, sem hafa verið í
sviðsljósinu og ætla má, að
almenningur hafi enn áhuga á.
Önnur leið er fólgin í því, að
menn á vegum NT eru á
„fartinum“ í leit að skemmti-
legum atburðum og myndefn-
um. Þá hafafréttaritararokkar
stöðugt samband við ritstjórn-
ina, þrátt fyrir að fréttaritara-
- „Lúrir þú á frétt?“ slær í gegn
- Askrifendum fjölgar stöðugt
■ Það hefur veríð allt á fullu hjá umbrotsmönnunum að undanförnu. Á myndinni sést hvernig rafvirkjar og smiðir vinna innan
um umbrotsmennina í gærkvöldi
kerfið sé ekki enn fullmótað.
Mikilvægasta leiðin er þó
fólgin í sjálfstæðu framtaki
blaðamannanna sjálfra, sem
eru í stöðugu sambandi við
„kontaktmenn“ sína í hinum
ýmsu störfum og stigum þjóð-
félagsins. Þannig hafa margar
helstu fréttir blaðsins komið
inn á ritstjórn, enda er ritstjórn
blaðsins að mestu skipuð pott-
þéttum, reyndum blaða-
mönnum, sem hafa árum sam-
an ræktað þessi sambönd.
„Já, ég lúri
áfrétt"
Það, sem hefur þó komið
okkur á NT mest á óvart, eru
viðbrögð hins almenna borg-
ara hvað varðar hjálp hans við
að útvega okkur bitastæðar
fréttir. Stöðugar hringingar í
símanúmerið 86538 hafa leitt
til ótrúlega margra frétta og
hugmynda að fréttum, sem
hafa þegar eða munu á næst-
unni birtast í blaðinu. Það er
eins og fjölmargir hafi beðið
eftir nýja blaðinu til að láta
vita um þessar fréttir í stað
þess að láta þær fréttast eitt-
hvað annað. Önnur skýring er
varla til á öllum þessum látum
í landsmönnum.
Varla þarf að ítreka, að við
á NT förum með öll nöfn sem
fyllsta trúnaðarmál. Aðeins
einn blaðamaður hefur aðgang
að símsvaranum, þannig að
nöfn heimildarmanna fara ekki
lengra en til hans, þrátt fyrir að