NT - 30.04.1984, Qupperneq 6
IU'
Mánudagur 30. apríl 1984
Fjórir Patreksfirðingar:
Ætla að bjarga grænlenska
togaranum af 35 metra dýpi
Á PatreksHrði stendur nú yfir undirbúningur að björgun
grænlenska togarans Sermilik, sem sökk í mynni Patreksfjarðar
fyrir um þrem árum, í sinni annarri veiðiferð eftir að honum var
breytt í rækjuskip. Fjórir cinstaklingar á Patreksfirði keyptu skipið,
þar sem það liggur á 35 metra dýpi fyrir lága upphæð. Þeir hafa
nokkrum sinnum farið niður að skipinu til að skoða það og telja
það heillegt, m.a. séu vélarnar hcilar.
Eigendur togarans hyggjast annan frá Hafnarfirði og hinn
reyna björgunaraðferðir í maí frá Reykjavíkurhöfn, tii að ná
enþeirhafafengiðtvopramma, skipinu upp. Prammarnir eru
með krana sem geta lyft 6-700
tonnum en skipaverkfræðingar
álíta að skipið sé um 600 tonn í
sjónum.
Hugmyndin er að ná skipinu
upp á yfirborðið og draga það á
flóði upp á grynningar og láta
þar flæða undan því. Þá verður
að salthreinsa vélarnar á einum
sólarhring-
Áhætta við þessa björgun er
töluverð þar sem kostnaður við
björgunaraðgerðir munu skipta
hundruðum þúsunda og árangur
er ekki séður fyrir. Ef björgunin
tekst er um mikil verðmæti að
ræða. Eigendurnir eru hins veg-
ar bjartsýnir um að björgunin
takist því nú á að reyna að
bjarga dýpkunarskipinu Gretti
sem sökk á Faxaflóa á 70 metra
dýpi fyrir nokkrum árum.
Sermilik er 54 metra langt
stálskip og var byggt árið 1950,
ætlað til hvalveiða í Norður-
höfurn. Það var endurnýjað árið
1960 og síðan var því breytt í
rækjutogara árið 1980, og þá
búið fullkomnustu til rækju-
veiða.
Tillaga um háþróaðan iðnað á íslandi:
„Risastökk inn
í framtíðina“
Konur sterkar á aðalfundi mið-
stjórnar Framsóknarflokksins
■ Á næstu árum verður 500
milljónum króna varið til þró-
unar, rannsókna og uppbygg-
ingar í háþróuðum iðnaði svo
Hjó ircidadaqur
1984
Góðir íslendingar
Árlegur hjólreiðadagur S.L.F. verður 12. maí
n.k. Við trúum því að málefni okkar komi þér
við.
Með þessu bréfi viljum við gefa þér tækifæri til
að leggja okkur lið.
Málefni sem við ætlum að koma í framkvæmd
- DVALAR OG HVLÍLDARHEIMILI
FATLAÐRA BARNA - Er það sem skiptir máli
er að við leitum til þín. Sérþarfir fatlaðra barna
eru margar og mismunandi. Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra gerir sitt ýtrasta til að leysa
þessar margbrotnu þarfir m.a. með aðstoð
þinni.
Uppbygging dvalarheimilis fyrir fötluð börn að
Reykjadal í Mosfellssveit, eins vel útbúnu og
frekast er kostur, verður okkar viðfangsefni á
næstu árum.
Þar er mikið verk að vinna.
Grunnskólanemar munu leita til þín um
stuðning, þeir munu hjóla í þágu þeirra sem
ekki geta hjólað. Við heitum á vinsemd og
aðstoð þína. Verum minnug þess að með
sameinuðu átaki hafa Islendingar gert krafta-
verk. Um leið þökkum við þeim sem hafa veitt
okkur aðstoö á liðnum árum.
Með kveðju
ST'i RKTA'RFÉLAG
lí.l LAMAÐRA OG FATI.AÐRA
KVENNADEILD
sem rafeinda- og lífefnaiðnaöi,
verði farið að vilja aðalfundar
miðstjórnar Framsóknarflokks-
ins, sem lauk á Akureyri í gær.
Með tillögu þessari kemur
fram áherslubreyting hvað
framtíðarskipulag í iðnaði
varðar, en hingað til hafa ís-
lendingar lagt megináherslu á
tillögur, sem ganga út á að
byggja upp orkufrekan iðnað.
Að sögn eins fulltrúa á aðal-
fundinum gengur Framsóknar-
flokkurinn þarna í fararbroddi
hvað aðra iðnbyltinguna varðar.
■ Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins að flytja ræðu sína á aðalfundi miðstjórnar
flokksins á Akureyri um helgina.
Það var Þorsteinn Ólafsson úr
Reykjavík, sem stóð að tillög-
unni um háþróaðan iðnað á
íslandi eða að „risastökkinu inn
í framtíðina" eins og annar
þingfulltrúi orðaði það á þing-
inu um helgina.
Það vakti athygli að hlutur
kvenna í forystuliði Framsókn-
arflokksins hefur stækkað, en
fjórir af níu í framkvæmda-
stjórninni eru nú konur. Fund-
inn sóttu um 90 fulltrúar víðs
vegar að af landinu og þar af
voru um 30 konur.
Aðalmál fundarins voru at-
vinnu- og efnahagsmál. í sam-
þykkt fundarins kemurfram, að
flokkurinn stefnir að því að
koma verðbólgunni niður í eins
stafs tölu strax á næsta ári
samhliða því að halda uppi
fullri atvinnu og grynnka skuldir
íslands við útlönd.
„Fagna öll-
um hug-
myndumum
aukið fé til
rannsókna“
segir Víglundur
Þorsteinsson
■ „Eg get ekki annað en
fagnað öllum hugmyndum
um aukið fé til rannsókna
og þróunarstarfsemi í iðn-
aði,“ sagði Víglundur Þor-
steinsson formaður Félags
íslenskra iðnrekenda, þeg-
ar hann var spurður um
þær tillögur aðalfundar
miðstjórnar Framsóknar-
flokksins um að veita 500
milljónum króna á næstu
5 árum til rannsókna, þró-
unar og uppbyggingar á
háþróuðum iðnaði, svo
sem lífefna- og rafeinda-
iönaði.
Víglundur sagði, að
ugglaust væru miklir
möguleikar í þessari teg-
und iðnaðar. „Hins vegar
er mín skoðun sú, að fram-
tíðin geti verið á mörgum
sviðum iðnaðar, ekkert
síður í ýmsum öðrum
greinum en þessum.
Frumatriðið er að öll iðn-
þróun okkar í framtíðinni
verður að byggjast á út-
flutningsstarfsemi. Þareru
vaxtarmöguleikarnir lang-
mestir," sagði Víglundur.
Hann sagði, að enn sem
komið væri, ættum við
nærtækari möguleika í raf-
eindaiðnaði og með góðri
og öflugri markaðsstarf-
semi erlendis ætti að vera
hægt að auka verulega út-
flutning á ýmsum raf-
eindatækjum. „Ég held,
að lífefnaiðnaðurinn sé
enn mjög skammt á veg
kominn, en þar þarf tví-
mælalaust rannsóknir,“
sagði Víglundur-
Sippuðu 42
kíiómetra
■ Nokkrir krakkar frá félags-
miðstöðinni í Bústaðhverfi sipp-
uðu frá Hveragerði til Reykj-
avíkur á laugardaginn. Til-
gangurinn með þessu skemmti-
iega uppátæki var að safna fé í
ferðasjóð. Seldar voru auglýs-
ingar á bíl þann er fylgdi hópn-
um og gaf það um tíu þúsund
krónur í aðra hönd.
Halldór Jónsson leiðbeinandi
hópsins, sagði í viðtali við NT,
að með þessum peningum væri
ferðasjóðurinn kominn upp í
u.þ.b. fimmtán þúsund og væri
ætlunin að leigja bíl og aka
síðan eitthvað út í buskann,
einhvern tíma í sumar.
Frá Hveragerði var lagt upp
kl. hálf tíu á laugardagsmorgun-
inn og var áætlað að koma til
Reykjavíkur milli kl. 4 og 5.
Svo ntikill kraftur reyndist þó
vera í sippurunum að þau voru
komin til höfuðstaðarins kl. Iiálf
fjögur og urðu þannig um
klukkutíma á undan áætlun.
Halldór sagði að þau hefðu
meira að segja numið staðar
einstöku sinnum og sippað á
staðnum til að fara ekki allt of
langt fram úr áætluninni.
Sumir voru að vísu orðnir
nokkuð lerkaðir við komuna til
Reykjavíkur, sagði Halldór, en
engu að síður voru allir eld-
hressir eftir að hafa sippað þessa
42 kílómetra.
fÉÉg5^;;.ý
Eldhressir sipparar á leiðinni frá Hveragerði til Reykjavíkur
NT-mynd: Svenni
(gteplötubúdin Laugavegi 20 Sími 20181 r^íherecoídshoooe 0 3
★ Fyrstir með nýjar plötur ★ Gott úrval af litlum ★ Gott úrval af 12” plötum ★ Gott úrval af nýjum stórum plötum Sérpöntum allar fáanlegar: Popp- Rock - Diskó og millimúsík plötur. Sendum í póstkröfu