NT - 06.05.1984, Blaðsíða 2
Allt fyrir fjölskylduna, föðurlandið og fjöl-
skyldufyrirtækið
„Buffallinn“ er mikill vinnu-
þjarkur og því er líklegt að
ekki skorti hann efnalega vel-
gengni. í Vietnam er það talin
auðlegð að eiga buffal, en
enginn nýtur góðs af þeirri
auðlegð nema fjölskylda eig-
andans.
Heima fyrir skortir ekki
á athafnasemi „buffalsins“, svo
fremi að verkefnin séu honum
að skapi. Hann spjarar sig vel
sem eigandi eða rekstrarstjóri
bifreiðaverkstæðis, bygginga-
fyrirtækis eða stóreigna. Þar
sem hann er í senn handlaginn
og vel gefinn, gæti hann líka
orðið góður skurðlæknir. En
allra best ætti við hann að
starfa að jarðyrkju eða land-
búnaðarmálum.
Hann ætti ekki að vera í
sölumennsku eða við opinbera
þjónustu. í>að er vegna þess
hve hann á erfitt með að lynda
við annað fólk. Ekki ætti hann
heldur að vinna störf sem
krefjast mikilla ferðalaga.
Slíkt raskar innra jafnvægi
hans og ógnar heilsu hans.
Konan sem fædd er á ári
„buffalsins" kann hvergi betur
við sig en heima hjá sér. Hún
er hin fullkomna húsmóðir og
ágætur gestgjafi. Hún er kona
sem oftar en ekki er í síðbux-
um.
Því miður rekur „buffallinn“
sig oft á það að þeir sem næstir
honum standa skilja hann
ekki. Þótt hann sé þrár og
kreddufastur þykir honum ein-
læglega vænt um fjölskylduna
og hann er stoltur af börnum
sínum. En hann krefst af þeim
fullkominnar hlýðni og elur
þau upp við aga. Hann er
herrann og orð hans lög! En til
endurgjalds vil! hann fórna
öllu fyrir fjölskylduna.
Fyrir „buffalnum“ er ástin
varla annað en ánægjulegur og
sjálfsagður hlutur. Hann getur
verið blíður, einlægur og nær-
■ Nú höfum við kynnst ýmsu um „rottuna“ og það er
„buffallinn“ sem næstur verður fyrir okkur í austrænu stjörnu-
spekinni. Þannig mun næsta ár verða ár „huffalsins", þar sem
nú, -1984,- er ár „rottunnar,“ eins og við minntumst á síðast. .
Sagt er um „buffalinn“ að hér sé kominn maðurinn, sem mest
metur „fjölskylduna, föðurlandið og fjölskyldufyrirtækið."
Hann er rósamur og þolin-
móður, hægur og nákvæmur,
og fer helst eftir handbókinni,
- þ.e. þannig er yfirborðið.
Undir yfirborðinu dylst svo
maður, sem er bæði frumlegur
í eðli og vel gefinn. Hann
hefur óbilandi og sannfærandi
sjálfstraust, og er það grund-
völlurinn að velgengni hans.
„Buffallinn" er gefinn fyrir
íhugun, og er það ef til vill
orsök þess hve hann sækist
eftir að vera einn. Hann heldur
sér fast við þær hugsjónir sem
hann hefur bundist tryggðum
við og getur orðið ofstæki-
smaður. Oft getur „buffallinn"
hneigst til ýmissa fordóma og
er það orsök þess að hann sætir
gjarna gagnrýni.
Þrátt fyrir það hve rólegur
hann sýnist er geð „buffalsins"
oft heitt og stundum ofsafeng-
ið. Þótt hann sýnist innhverfur
og hlédrægur getur hann þó
verið ótrúlega mælskur ef þörf
gerist. Reiðiköst hans eru jafn
óttaleg og þau eru sjaldgæf.
Best er að reyna ekki að hindra
för hans, því þá kann hann að
gerast hættuiegur. Munum að
þótt bufflar séu hæglátar
skepnur þá eru þær þrjóskar
og vilja ekki láta abbast upp á
sig. Hann hlífir engum sem
það gerir. „Buffallinn“ er leið-
togi meðal manna og ekkert
fær stöðvað hann.
Hann er á móti öllum ný-
jungum. Því fyllir hann flokk
þeirra sem skammast út í
nútíma málaralist, nútíma
tónlist, nýju tískuna og síð-
hærða karlmenn. Slíkt umber
hann allra síst í sinni fjöl-
skyldu.
„Buffallinn" veit allt best og
vill öllu ráða. Fjölskyldan (í
víðum skilningi) er meginatriði
■ Hið kínverska tákn fyrir „buffalinn“
í allri hans tilveru. En íhalds-
semi hans verður til þess að
hann líður engar breytingar
eða endurnýjun. Konur undir
merki „buffalsins" munu alltaf
baka laufabrauð fyrir jólin og
klæðast á þann hátt sem til er
af þeim ætlast. Sá sem býst við
einhverjum fruntlegum upp-
átækjum af þeirra hálfu getur
beðið til eilífðarnóns án ár-
angurs.
Merki áranna 1930-1984
■ Til glöggvunar rekjum við hér merki áranna 1930-1984. Hvert
merki kemur fram tólfta hvert ár og því er auðvelt að reikna fram
eða aftur fyrir þennan lista. Munum að vanalega er mestur partur
janúarmánaðar helgaður merki ársins á undan.
1930 Hesturinn
1931 Geitin
1932 Apinr.
1933 Haninn
1934 Hundurinn
1935 Svínið
1936 Rottan
1937 Buffallinn
1938 Tigrísdýrið
1939 Kötturinn
1940 Drekinn
1941 Snákurinn
1942 Hesturinn
1943 Geitin
1944 Apinn
1945 Haninn
1946 Hundurinn
1947 Svínið
1948 Rottan
1949 Buffallinn
1950 Tígrisdýrið
1951 Kötturinn
1952 Drekinn
1953 Snákurinn
1954 Hesturinn
1955 Geitin
1956 Apinn
1957 Haninn
1958 Hundurinn
1959 Svínið
1960 Rottan
1961 Buffallinn
1962 Tígrisdýrið
1963 Kötturinn
1964 Drekinn
1965 Snákurinn
1966 Hesturinn
1967 Geitin
1968 Apinn
1969 Haninn
1970 Hundurinn
1971 Svínið
1972 Rottan
1973 Buffallinn
1974 Tígrisdýrið
1975 Kötturinn
1976 Drekinn
1977 Snákurinn
1978 Hesturinn
1979 Geitin
1980 Apinn
1981 Haninn
1982 Hundurinn
1983Svínið
1984 Rottan