NT - 06.05.1984, Side 3
gætinn, - en rómantískur verð-
ur hann aldrei! Hann tortryggir
hástemmd orð, og merki um
heitar ástríður leiðast honum.
Það hve jarðbundinn hann er í
þessum málum er undirrót þess
að hann má oft þola vonbrigði
í ástum og hjónabandi.
Fólk í merki „buffalsins“
mun ekki nokkurn tíma sýna
afbrýðisemi vegna maka sína.
Aftur á móti kemur gjarna upp
afbrýðisemi vegna þess réttar
sem það álítur tryggðina vera.
Tryggð makans er réttur „buff-
alsins" að hans áliti. Þetta fólk
er sjálft afar trygglynt, - og
þarf raunar ekkert að leggja á
sig til þess.
Bernska „buffalsins" og
unglingsár hans eru venjulega
viðburðalítil. Þegar fram á
þroskaárin kemur er hætt við
örðugleikum í hjónabandinu.
Maki hans mun líklega stygg-
jast vegna afskiptaleysis hans
og leita huggunar annars
staðar. Þá skortir „buffalinn“
lagni til þess að koma hlutun-
um í samt lag. Líklega mun
renna á hann æði, þannig að
öll fjölskyldumálin verða að
einni rúst. Vinnuhesturinn, og
fjölskyldumaðurinn hefur eng-
an tíma til þess að greiða úr
flækjum sem hann ekki botnar
í. A síðasta skeiði æfinnar
mun „buffallinn" verða að
stríða við mikla erfiðleika. En
fái hann unnið bug á þeim mun
elli hans verða friðsæl.
„Buffallinn" gæti lifað í
prýðishjónabandi með „han-
anum", - sem við hlið hans fær
að vagga öllum skrautfjöðrum
sínum athugasemdalaust.
Þessar tvær íhalds-sálir munu
skilja hvor aðra ágætlega!
Allt ætti líka að ganga vel
ásamt „rottunni". Ólvuð af
aðdáun mun hún verða honum
trygg til dauðans. Sama máli
„Bufflar“ á flokksforingjastóli
■ „Þessa tvo „buffla" þekkir hver maður úr heinti íslenskra
stjórnmála. Báðir hafa þeir valist til forystu í flokki sínum. Slíkt
kemur ekki á óvart þegar „buffall" á í hlut: Geir er fæddur
16.12.1925, en Ólafur þann 1.3.1913.
Sunnudagur 6. maí 1984
3
gegnir með „snákinn", þótt
hann sé ekki nema í meðallagi
trygglyndur, mun honum tak-
ast að gera sér upp tilfinningar
og skoðanir með afbrigðum
vel. Hann mun að minnsta
kosti aldrei yfirgefa fjölskyldu
sína.
Líkt og „rottan" heillast
„buffallinn" ákaflega af „apan-
um.“ Hugmyndaríki og í-
myndunarafl „apans" er satt
að segja forsenda þess að
„buffallinn" fái að komast
áfram. En bíðum við. í hjóna-
bandi gengi dæmið aldrei upp.
Þessir tveir komast aldrei að
sömu niðurstöðunni.
„Buffallinn" ætti líka að
gæta sín á „geitinni," en af
öðrum ástæðum. „Geitin"
stiklar urn kletta og klungur og
vill helst vera á stöðugu randi.
Vegna óstöðugleika hennar
gæti orðið hinn mesti harm-
leikur úr slíku sambandi.
Allir vita að ekki er
skynsamlegt að hafa „buffal"
og „tígrisdýr" saman í húsi.
Slík sambúð mun aðeins enda
með bardaga. Hann mundi
enda með því að tígurinn hlypi
burtu eða tortímdist á annan
hátt. Þar sem buffallinn er
hinn sterkari þessara tveggja
mun hann hnoðast á tígrinum
og koma honum fyrir.
„Buffals" -mamman mun aldr-
ei sitja á sátts höfði við „tígris-
dýrs"-barnið. Barnið gæti ekki
gert annað skynsamlegra en
flýja að heiman.
Að lokum: Sagt er að
„buffall" fæddur að vetri verði
hamingjusamari en „buffall"
fæddur að sumri til... það er
aðeins vegna þess að á vetrum
er rninna strit á hrísgrjóna-
akrinum. Vesalings sumar-
„buffallinn" má búast við að
þræla allan ársins hring!
Ef „buff-
allinn“ er...
... Steingeit:
Ekkert grín eða gaman hér!
Hann er ekki í heiminn kom-
inn til þess að gera að gamni
sínu.
... Vatnsberi:
Hæglátur „buffall." Hann ber
silkihanska utan um klaufirn-
ar.
...Fiskur:
Ærslafullur þessi! Rotið ykk-
ur ekki á afturrúðunni, þegar
hann tekur af stað.
... Hrútur:
Metnaðargjarn „buffall.“
Gætið ykkar á hornunum.
... Naut:
Mjúkur undir tönn. En
„buffall" er hann eftir sem
áður.
... Tvíburi:
Ætla mætti að þetta væri alls
enginn „buffall.“ Prýðis-
náungi í viðkynningu!
... Krabbi:
... Litli „buffallinn. “ Hann
hættir aldrei á að þurfa að sjá
árangur af erfiði sínu.
... Ljón:
Rótar og bölvar! En hann
getur þó brugðið sér út af vegi
vanans!
... Meyja:
„Buffall“ sem þeir hafa sagað
af hornin. Hann væri betri í
blómagarðinum en á akrin-
um.
... Vog:
Félagslyndur „buffall“. Hann
veit alltaf hvað gera skal.
... Sporðdreki:
Hættulegur „buffall.“
Prjóskur, illvígur og berst
uns yfir lýkur.
... Bogmaður:
„Buffall“ í besta jafnvægi.
Dæmigerðasti „buffallinn“ af
þeim öllum, - stundum of
dæmigerður.
u
Aður en þú byrjar að byggja í vor
skaltu kynna þér
JL bygginga lánin og JL vöruúrvalið
Þaö.sem er mikilvægast fyrir þann sem er að
byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar-
hraðinn.
J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum
kleift að byggja með fyrsta flokks vörum á
sérstökum J.L.-lánakjörum,
J.L. Byggingalánin eru þannig í fram-
kvæmd:
Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí-
unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar
yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og
allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex
mánaða. Pannig er þetta framkvæmt koll af
kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök
J.L.-lán, sem miðast t.d. við útborgun líf-
eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar-
lána. Þannig getum við verið með frá byrj-
un.
Iðnaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini
okkar þurfa ekki að leita annað í efniskaup-
um. Um leið og búið er að grafa grunninn
geta smiðirnir komið til okkar og fengið
fyrstu spýturnar. Og í framhaldi af því fæst
allt byggingarefnið hjá okkur.
Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur
ef þú ert að byggja.
I BYGGINGAVÖRURl
HRINGBRAUT 120:
Byggingavoruf 28 600
Goitieppaoeiiö 28 - 603
TirnSurfleiia 28 604
Mainmgarvorur og verkfæri
Fl-sar og hreinlæhStæki
Solustion
Skrilstola
Hardviðarsala
28-605
28-430
28-693
28-620
28-604