NT - 06.05.1984, Qupperneq 7
Sunnudagur 6. maí 1984
Andskotinn í sjónvarpssal
og fleira gott fólk
■ Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmann og leikstjóra er
óþarfi að kynna eyjaskeggjum. Við bjölluðum í hann til að
forvitnast um hvað hann væri að starfa þessa dagana og
kunnugleg rödd hans heyrðist í símanum. „Þetta er símsvari fyrir
Ágúst Guðmundsson, ég er væntanlega í sjónvarpinu þessa
stundina og þar er síminn 38800. Eins má líka skilja eftir skilaboð
eftir að tónninn hefur heyrst.“ Síðan komu sömu orð á útlensku
og síðan tónn. „Ha, hum, heyrðu þetta er hérna á NT nei annars
við hringjum bara seinna.“
Hefur þú einhvern tíma, lesandi góður, reynt að tala við
segulband og það í gegnum síma?
Skömmu seinna hringdi
Ágúst sjálfur, í okkur, ekki
segulbandið, og þá gafst tæki-
færi til að rabba við hann,
milliliðalaust, ef svo má að
orði komast.
Hið gullna hlið
„Já, ég er að vinna í sjónvarp-
inu þessa dagana að undirbún-
ingi á sjónvarpsleikriti sem
jafnframt á að verða jólaleikrit
sjónvarpsins. Hér er um að
ræða gamlan kunningja okkar
íslendinga, Gullna hliðið eftir
Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi. Menn hafa eiginlega
ekki áttað sig á því fýrr að
þetta leikrit Davíðs er eins og
sniðið fyrir sjónvarp. Við stytt-
um að vísu verkið örlítið en að
öðru leyti er það eins og það
kemur frá skáldinu. Eg sá
fljótlega, eftir að ég fór að lesa
leikritið, að hér var komið eitt
besta sjónvarpsleikrit sem
skrifað hefur verið á íslensku.
Þaö sem gerir þessa uppfærslu
okkar dálítið sérstaka í mínum
augum er það að við notum
mikið af máluðum leikmynd-
um. Eins og þú veist fer kerl-
ingin til himnaríkis og allar
leikmyndir sem koma fyrir á
þeirri löngu leið, svo og í
himnaríki, eru málaðar með
vatnslitum. Það er í rauninni
margt í þessu verki sem erfitt
hefur verið að koma fyrir á
sviði, það er svo margt furðu-
legt sem gerist en sjónvarps-
tæknin gerir það að verkum að
slík brögð verða miklu einfald-
ari þegar filman er annars
vegar. Mér dettur t.d. í hug
það að koma einni sál í poka
og úr honum aftur. Þetta hefur
oft verkað dálítið klossað á
sviði en verður miklu auðveld-
ara þegar sjónvarpsvélarnar
eru annars vegar, að ekki sé
minnst á syndara sem koma
hrapandi af himnum ofan á
leið sinni til heljar." Blaða-
maður kyngir.
Með andskotann á bakinu
„Þetta er búinn að vera
nokkuð tímafrekur undirbún-
ingur en mjög skemmtilegur.
Verkið er mannmargt en þar á
móti kemur að þetta er allt
unnið í sjónvarpssal og er að
því leytinu til þægilegra en
verk sem meira eða minna eru
tekin úti við. Það sem einkum
dregur mig að þessu verki eru
snilldartök höfundarins og ég
verð að segja að þetta er alveg
makalaust skemmtilega skrif-
að leikrit. Davíð fjallar þarna
um trúarleg efni af mátulegri
kímni án þess nokkurn tíma
að fara yfir strikið. Þetta hefur
hann gert af mikilli íþrótt. Við
sem unnið höfum að þessu
erum alltaf jafn dolfallin yfir
ágæti textans. Áherslur verða
einnig mjög svipaðar og Davíð
gerði ráð fyrir og staðreyndin
er sú að oft þegar átt hefur að
breyta út af hefur endirinn
orðið sá að við höfum snúið
aftur til textans eins og hann
var upphaflega skrifaður. Hér
er að mörgu leyti verið að
fjalla um fyrirmyndar hjóna-
band sem þó er komið að
leiðarlokum. Þau hjónin eru
að vísu ansi háð hvort öðru þó
að karlinn gefi annað í skyn. Á
himnaríkisvöllum segir hann
t.d. við kerlu sína: „Skyldi
maður ekki fá sér einhverja
yngri og rennilegri en þig hróið
mitt“ og kerling svarar: „Þú
verður víst feginn að fá nöldrið
þitt ef ég þekki þig rétt.“
Að þessum orðum sögðurn
heyrðust skruðningar að baki
leikstjórans. „Heyrðu ég er
með andskotann sjálfan á eftir
mér. Það er Arnar Jónsson
sem hann leikur". Og þar með
var Ágúst rokinn og við bíðum
spennt til jóla.
Lásby mykjudreifarinn og haug-
hafið samband við
sölumenn okkar,
sem veita allar nán-
ari upplýsingar.
dælan eru ódýrustu tæki sinnar
tegundar á markaðnum!
Viö hjá Glóbus völdum mykjudreifara og haugdælur frá danska fyrirtækinu Lásby eftir
aö hafa aflað tilboða og upplýsinga frá yfir fjörutíu framleiðendum slíkra tækja.
Það sem réði úrslitum var þetta:
- Lásby-tækin eru mjög vel smíðuð og einföld að allri gerð.
- Lásby-mykjudreifarinn er á stórum dráttarvéladekkjum.
- Lásby-tækin eru á sérlega hagstæðu verði.
- Lásby-tækin hafa reynst frábærlega vel í Danmörku, - t.d. notar þriðji hver danskur
bóndi Lásby-mykjudreifara.
fismss Gtobuse
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555 |
Eigum fyrirliggjandi 4000 og 6000 lítra Lásby-mykjudreifara. -
Útvegum stærri með stuttum fyrirvara.
Eigum einnig til afgreiðslu strax 3m og 3,6m haugdælur með eða án
galvaniseringu. Afkastageta 5-8000 lítrar á mínútu.
Gott verð, góð greiðslukjör.