NT - 06.05.1984, Side 18
IU'
»
Erum
ekki
hættir“
■ Frá því að hljómsveitin EGÓ var stofnuð hafa orðið þar
ótal mannabreytingar, fjöldi manna komið og farið. Einn
hefur þó alltaf verið með, fyrir utan Bubba sjálfan, og það
er bróðir hans Bergþór. Bergþór, eða Beggi eins og flestir
kalla hann er gítarleikari hljómsveitarinnar og núorðið
annar aðallagasmiður. Hann hefur farið stöðugt vaxandi
sem slíkur og á nýju plötu EGÓ nær hann loks að blómstra.
Eg náði tali af honum heima hjá honum.
- Hefur ekki verið nóg að
gera hjá þér undanfarið, þú
hefur bæði verið að taka upp
plötu með EGÓ og Ikarusi?
„Jú, það er satt, þetta er
búið að vera djöfull mikil
vinna“.
- Hvað voruð þið lengi að
gera EGÓ-plötuna?
„Það tók 120 tíma. Það er
ekki mikið. Ekki miðað við að
við áttum 140 tíma. í samn-
ingnum við Steina var gert ráð
fyrir 100 tímum fyrir fyrstu
plötuna, 120 fyrir aðra og 140
fyrir þá þriðju."
- Hvernig finnst þér hafa
tekist?
„Þéssi plata er afgerandi
best, bæði sándlega og efnis-
lega.“
- Hvað heldurðu að ráði
því?
„Kannski það að við höfum
þroskast á þessum tíma pg
þetta hafi komið út úr því. Ég
tel mig eiga minn þátt í músík-
inni, og hef þróast með henni
allan þennan tíma.“
- Hvernig komstu upphaf-
lega inn í bransann?
„Ég hafði lítið spilað áður en
ég byrjaði með EGÓ. Ég hafði
að vísu glamrað í skólahljóm-
sveitum. Ég og Kiddi kunningi
minn sem svo fór í Fræbbb-
lana ákváðum að stofna
grúppu, töluðum við Þorleif
bassaleikara (núí Frökkunum)
og byrjuðum að æfa. Þegar
Bubbi var rekinn eða fór úr
Utangarðsmönnum kom hann
með Tolla á æfingu hjá okkur
og bauð mér og Þorleifi til liðs
við sig. Þarna var upprunalega
EGÖið komið, og síðan bætt-
ust Jói Mótorhead og Ragnar
Sig. við.
- Af hverju hættu Jói og
Þorleifur svo?
„Músfkin var að breytast.
Hún var upphaflega keyrslu-
rokk, og Jói var stökk í því,
vildi bara spila það. Hann var
látinn hætta, frekar en að við
hinir yrðum áfram í keyrslu-
rokkinu.
Það var margt sem spilaði
inn í þegar Þorleifur fór. Það
gengu um það margar kjafta-
sögur, en engin þeirra sönn.
Við fengum svo Magnús
Stef. í bandið, æfðum í þrjá
daga og komum fram á hljóm-
leikum á Lækjartorgi vegna
Rokks í Reykjavík. Þann sama
dag, um kvöldið, fórum við
beint í Hljóðrita að taka upp
fyrstu plötuna."
- Nú urðu Stórir strákar og
Móðir mjög vinsæl lög af þeirri
plötu. Var það planið, að gera.
vinsæl lög?
„Það var tilviljun, þetta átti
ekki að verða neitt svona. Við
vorum miklu grófari áður en
við fórum í stúdíóið, og það
var pródúséringin sem skipti
öllu máli í þessu sambandi.
Tómas Tómasson, pródúsent-
inn á plötunni átti mikinn þátt í
að gera lögin poppaðri. Ég vil
taka fram að Bubbi á lagið
Stórir strákar aleinn."
- Hvenær fórst þú að
semja?
„Ég fór ekki að semja heilar
melódíur fyrr en seinna. Fyrst
var það þannig að Bubbi kom
með lög sem við útsettum."
- Síðan kemur nýja platan
og þar eigið þið Rúnar allt efni
nema texta, svo að segja.
„Upphaflega var EGÓið
stofnað til að koma músík
Bubba á framfæri. Síðan
breyttist það á i mynd, og svo
tökum við við á nýju plötunni.
Egóið var búið að vera tiltölu-
lega óvirkt í 14-15 mánuði, allt
frá því I mynd kom út. Á þessu
tímabili hefur Bubbi gert þrjár
sólóplötur, og við Rúnar höfum
samið lög. Við komum svo
með fullt prógram inn í stúdíó-
ið.“
- Hefur sólóferill Bubba
komið niður á grúppunni?
„Hann hefur heft ákveðið
aktívítet sem hefði átt að vera
hjá EGÓ. En það er ýmislegt
fleira sem hefur spilað inn í.
Það er með ólíkindum hvað
Bubbi hefur sent frá sér og
samt haldið þessum standard,
sem verið hefur á efni hans.
Síðan eru það trommara-
vandræðin, sem hafafylgtokk-
ur frá byrjun. Það er eiginlega
það sem var verst. Á síðasta
ári vorum við nýbúnir að fara
Skandinavíutúr þegar Jökull
hætti. Þá kom Magnús Stef-
ánsson inn til að hægt væri að
spila, en það gekk ekki alveg
upp. Svo fengum við Ásgeir
Óskarsson og höfum verið
mjög ánægðir með hann, en
hann hefur bara svo mikið
annað að gera.“
Inudagur 6. maí 1984 1 8
- Af hverju hætti Jökull?
„Skadinavíutúrinn var mikið
álag, eins og dæmin sanna.
Það er erfitt að fara svona túr.
Þó að menn séu nafn hérna
þá er maður að byrja frá grunni
þarna úti. Hann var líka að
fara út í íbúðakaup, átti von á
barni með konu sinni og sneri
bara aftur til Isafjarðar."
- Hvernig fór Skandinavíu-
túrinn annars?
„Mjög vel. Það komu tilboð
um hljómleikaferðir og útgáfu-
fyrirtæki buðu samning.
Norska Dagbladet sagði:
EGÓ var det store overra-
skelset.
En þetta var dýr ferð, við
komum út með 200.000 kr.
kostnað. Við gátum ekki tekið
tilboðum um plötusamning
m.a. vegna þess að við vorum
samningsbundinir við Steinar.
Við hefðum í rauninni átt að
vera farnir út í aðra ferð, og nú
til bæði Skandinavíu og
Þýskalands ef utanlandsferð
Bubba hefði ekki komið til.“
- Framtíðin?
„Við höldum áfram að starfa
og það verður fyllt upp í
bandið. Enn sem komið er er
ekkert ákveðið hvort Bubbi
verður með eða ekki. í hvaða
formi hljómsveitin mun starfa
er ekki ákveðið."
- Verðiði áfram hjá Stein-
um?
„Við erum búnir með samn-
inginn hjá Steinum og það er
ekkert ákveðið hvað við
gerum. Við erum reyndar búnir
að fá tilboð frá bæði Steinari
og fleiri útgáfufyrirtækjum.
Sambúðin við Steinar hefur
verið svona upp og niður. Hún
var góð fyrst, en svo komu
leiðindamál inn í þetta. Steinar
var búinn að bjóða okkur að
fara út, og taka plötu upp þar,
en það voru ákvæði í þeim
samning sem við sættum okk-
ur ekki við, og við töldum okkur
ekki geta gengið að þessu.
Upp úr því fór svo að versna
sambúðin."
- Hyggstuhaldaáframmeð
Ikarusi?
„Ikarus er mjög óráðið
dæmi. Þetta var aldrei hugsað
sem hljómsveit með fastri liðs-
skipan, heldur sem prójekt
sem menn mundu verða í eftir
fíling hverju sinni. Þetta er
búið að vera mjög skemmti-
við
Morthens
í
um
foríl
hans
í
rokkinu
Beggi úti í glugga heima hjá sér.
Tímamynd Sverrir
legt, en ég á ekki von á að vera
með í fleiri íkarus-prójektum.
Það hefur reyndar ýmislegt
valdið mér vonbrigðum í
sambandi við íkarus, en þessi
nýja piata er mjög sérstök og
skemmtileg að því leyti að allir
syngja á henni. Það gefur
plötunni mikla vídd. Það semja
líka allir lög.“
- Svoviðsnúumokkuraftur
að EGÓinu, hafið þið hugsað
ykkur að halda áfram á svipuð-
um slóðum í músík?
„Við Rúnar teljum að við
séum að nálgast það sem við
ætlum okkur. Við erum ekki
komnir þangað, en nýja platan
gefur hugmynd um hvert við
stefnum. Á nýju plötunni finnst
mér gott hvað platan er litið
óverdöbbuð, sem gefur góðan
fíling. Aftur á móti þá var í
mynd allt of mikið unnin, ætli
menn lendi ekki oft í þeim
punkti að ætla sér að fíníséra
of mikið.
Svona eftir á að hyggja þá
er Breyttir tímar að mörgu leyti
betri plata en í mynd, en
nálgast þó ekki það sem nýja
platan er. Það er kannski það
að við höfum haft betri tíma
fyrir nýju plötuna."
- Eitthvað að lokum?
„Ég ætla bara að vona það
að þeir sem kaupa nýju plöt-
una hafi gaman af henni. Og
þeir sem ekki kaupa hana líka.
Við erum ekki hættir."
Oháði vinsældalistinn
V
Olympia Rafeindaritvélar
í takt við tímann
Hraði, nákvœmni og nýjasta tœkni við skrifstofustörfm.
Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst, hagkvœmni og
hljóðlátan vinnustað.
Prenttijólið skilar áferðarfallegri og
hreinni skrift. Leiðréttingarminnið
hefur 46 stafi. Pappírsfœrslu og dálkasetningu
er stjórnað án pess að fœra hendur af
lyklaborði. Endurstaðsetning, leturpétting og
ýmsar leturgerðir.
Report 18.500,-
Compact 20.900,-
KJARAIM
ARMULI 22 - REYKJAVlK - SÍMI 83022
■ The Smiths hertaka
annað sætið á ný, John
Cale kemst í fimmta sætið
með nýja plötu, The The,
Dave Ball úr Soft Cell og
Television Personalities
komast inn á lista. Þessar
eru helstu breytingarnar
frá fyrri viku, Dance Soci-
ety er enn í efsta sæti. Og
þannig lítur listinn út
þessa vikuna:
1. (1) Heaven is Waiting...................................Dance Society
2. (2) The Smiths.............................................The Smiths
3. (3) Making History...............................Linton Kwesi Johnson
4. (7) Three of a Perfect Pair..............................King Crimson
5. (-) Caribbian Sunset...........................................JohnCale
6. (8) Johnny Yes No.....................................Cabaret Voitaire
7. (9) Head Over Heels....................................Coctaeu Twins
8. (-) Soul Mining..................................................TheThe
9. (-) Strict Tempo...............................................DaveBall
10. (- The Pinted Word..............................Television Personalities