NT - 06.05.1984, Blaðsíða 19
Ég hef ekkert annað en orðin
M „Ríkisútvarpið á Akureyri, gjörðu
svo vel“.
„Erþað Jónas Jónasson útvarpsstjóri,
já komdu sæll og blessaður. “
„Já blessaður sjálfur og til hamingju
með nýja blaðið. Það getur nú satt að
segja verið býsna sársaukafullt að byrja
og það verður enginn óbarinn í upphafi,
þið verðið vafalaust að standast það að
þola alls konar aðkast. “
„ Við tökum það nú ekki nærri okkur“
(það gætir samvinnuanda í rödd blaða-
manns).
„Annars er það þannig með mig að ég
ernú kominn á þann aldur, skalégsegja
þér, að ég er alltaf hundóánægður með
það sem éggeri. Éggeri mér þær kröfur
að þetta verði alltaf svolítið skárra næst
sem ég er að fást við“.
„Þú verður nú samt að viðurkenna
það Jónas að kvöldgestir þfnir á föstu-
dagskvöldum hafa stytt mörgum stundir
og þér hefur oft tekist meistaralega
upp. “
„Já, já ég get ekki kvartað en það
héldu nú samt allir að ég væri að verða
vitlaus þegar ég byrjaði að veifa þessari
hugmynd að lengja dagskrána á föstu-
dagskvöldum og fara með samtal inn í
nóttina. Menn geispuðu mikið yfir
þessu. En svo hefur þetta svona smá
komið. Upphaflega setti ég mér það
markmið að ég skyldi halda þessu áfram
þangað til fólk vildi sjálft koma f þáttinn
og það rættist nú í fyrsta skipti í vor. Nú
er þessu markmiði náð og þar með lýkur
þessum þáttum. Annars ætti ég ekki að
vera að blaðra þetta við þig, ég er svo
mikið ífjölmiðlum sjálfur vinnu minnar
vegna. “
„Svona, svona Jónas minn“ (Blm.
orðinn enn samvinnuþýðari en áður)
„Hvernig er það með þig nú ert þú að
opna fólk íþessum þáttum þínum, ertu
opinn sjálfur?“
„Já ég held það og ég byrja ævinlega
á því að reyna að vera opinskár viðgesti
mína þegar við röbbum saman áður en
þátturinn byrjar. Annars hef ég verið
skammaður fyrir það að vera of mikið
að blanda mér í samræðurnar eða taka
of mikinn þátt í þeim. Ég held að það
hafi verið hún Jóhanna Kristjónsdóttir
sem er nú náfrænka mfn og hund
geðvond út í mig fyrir það hversu
leiðinlegur útvarpsmaður ég ér. Hún
skammaði mig mjög fyrir kvöldgestina.
Annars held égaðég hafi sjálfur sloppið
við það að vera sjálfurmikið til umræðu
en ég lít þannig á að svona þáttur þar
sem rætt er um eitthvað meira en bara
veðrið og vindinn krefjist þess að ég taki
þátt í umræðunni. “
„Fyrir hverja er þessi þáttur“?
„Ja, við þessarí spurningu er aðeins
eitt svar: Fyrir þá sem vaka. Ég hef
reynt að fá til mín fólk sem er dálítið
þekkt og hefur náð árangri og síðan hef
ég beðið það að segja frá því hvað þessi
árangur hefur gefið því, og hvað hann
hafi kostað. “
„Er það tilfellið Jónas að þú hafir
fengið fólk til að tjá sig um hluti í
þessum þáttum þínum sem hafi síðan
orðið til þess að til meiríháttar uppgjörs
hafi komið milli þessara sömu einstakl-
inga“?
„Nei ekki held ég það en hitt má vera
að sumir hafi haft gott af því að koma
sem kvöldgestir til mín, og skoða svo-
lítið sjálfa sig. Það er að verða svolítið
landlægur misskilnigur að ég sé eins og
einhvers konar grenjaskytta að skjóta á
tófuna. Ekkert afþví sem þarna kemur
fram á að koma fólki á óvart. Ég hef
aldrei dulið það að ég á undirbúnings-
viðræður við fólkið sem fram kemur.
Það veit um hvað verður rætt áður en
spjallið byrjar. “
„Þetta með myrkrið hefur verið til
umræðu. Ert þú myrkfælinn maður
Jónas?“
„Nei ekki lengur en ég var það sem
drengur. Ég gerði þetta nú svona í
bríaríi að biðja menn að passa sig á
myrkrinu í lok þáttanna og ég tók eftir
því að menn sperrtu eyrun við þessu.
Mér fannst allt í einu í öllu þessu myrkri
sem við búum við að það værí fyllsta
ástæða til að biðja menn um að fara
varlega í myrkrinu. Annað var það nú
ekki en þetta hefur vakið athygli og þess
vegna held ég áfram að biðja fólk að
passa sig á myrkrínu. “
„Ertu trúaður Jónas?"
Ég vildi að ég væri trúaðri en ég er,
ég er sjálfsagt að leita eins og við öll
erum að gera.
Sumir eru alltaf að leita að
lífshamingjunni eins og þú veist. Það
var einn góður maður sem sagði við mig
einhvern tímann að lífshamingjan væri
þar sem við hættum að leita hennar. “
„Hver ertu Jónas?“
„Já, nú notarðu mfna eigin spurningu
og fara nú vopnin að snúast í höndum
mér. Þetta er vond spurning þó að ég
noti hana oft. Ég hef líka alltaf viður-
kennt að hún væri vond en hefur þó
þann kost að maður verður að setjast
niður og fara að velta því fyrir sér hver
maður í rauninni er. Ég er starfsmaður
útvarps, ég er fjölmiðlamaður eins og
það heitir núna, sem er eitt voðalegt
orð. Ég er útvarpsmaður og hef ævin-
lega reynt að gera svolítið betur á
morgun. Égerósköp venjulegurmaður,
einrænn frekar og ekki vinamargur, en
þeir vinir sem ég á eru mér mjög góðir
og eru mér mikils virði. Éggeri fastlega
ráð fyrir því að það sé mér sjálfum að
kenna að ég á ekki fleiri vini. Ég er þó
vinur dætra minna og sérlegur vinur
konunnar minnar. Mér leiðist eiginlega
aldrei, já ég held að það sé rétt. Ég hef
verið heppinn,ég heffengið að kynnast
atburðum og fólki og á í minnisbók
minni mörg góð nöfn. Ég er letidýr,
örugglega einn latasti maður sem ég
þekki og elska aðgera ekki neitt en kem
þó ýmsu í verk".
„Nú hefur stundum verið sagt að
útvarpsþættir þínir væru væmnir. Er
það rétt að þínu mati?“
„Ja hvað er væmni, ég er ekki viss um
hvað það í rauninni er. Ef þú talar við
einhvern af ákveðinni einlægni þá verð-
ur oft stutt f eitthvað sem kalla mætti
væmni. Er það væmni að tala um lamb
sem leitar móður sinnar með jarmi og
það berst til þín með golunni ? Og hættir
það að vera væmið þegar lambið er
orðið þátttakandi í sviðaveislu? Ég hef-
yndi af póesíu og fallegum orðum. Ég
er einnig svolítið rómantískur. Ég heyrí
og skynja orð sem tegund af tónlist og
ef til vill sem hluta aflitum í málverki.
Ef þú ætlar að ná í útvarp hughrifum
eða stemmningu sem þú upplifir og
hefur ekki mynd til að sýna, hvorki til
að sýna litina sem eru í loftinu eða
fuglana sem láta vindinn halda sér uppi,
þá verður þú að nota orð til að lýsa
þessari stemmningu. Ég hef ckkert
annað en orðin og mér er ekki sama
hver þau eru“.
„Ætli við látum ekki þessi orð þín
verða lokaorðin hjá okkur. Kærarþakk-
ir fyrir spjallið Jónas og passaðu þig á,
nei annars, vertu blessaður".
„Blessaður sjálfur og gangi ykkur allt
f haginn á NT“.
Jónas
Jónasson
í símanum
Meiriháttar lög
úr samnefndri kvikmynd
Footloose nefmst ny safnplata með lögum
úr samnefndri kvikmynd sem Háskólabíó
mun frumsýna innan skamms. Á Footloose
plötunni eru 9 meiriháttar lög og hafa 4
þeirra nú þegar komist inná Topp 40
bandaríska popplistans. Eru það lögin
Footloose með Kenny Loggins sem
komst á toppinn, Dancing in the
Sheets með Shalamar, Let's
í. Hear it for the Boy með
Deniece Williams og Hold-
ing out For a Hero með
Bonnie Tyler. Footloose
\ er engin smá safnplata
\ og það er sérlega vitur-
I legt að tryggja sér
/ eintak í tíma.
E3E
... SIMI 45800 POSTKROFUSÍMI 11620
Sunnudagur 6. maí 1984 19