NT - 06.05.1984, Blaðsíða 22
Úr
árbókum
Hollywood-
bæjar
önnur grein
■ Hneykslismál þau sem sagt var frá hér í síðustu
viku áttu eftir að reynast Holly wood - og amerískri
kvikmyndagerð - dýr. Þjóðin dáði og elskaði
stjörnurnar sínar jafn mikið og fyrrum, en vissi nú
að oft var flagð undir fögru skinni. Olive Thomas
og Mabel Normand höfðu reynst vera eiturlyfja-
neytendur, Mary Miles Minter var ekki sú bláeyga
jómfrú sem ætlast hafði verið til, trúðleikarinn
Fatty Arbuckle var nauðgari og morðingi. Siða-
postularnir sem fóru hamförum gegn lifnaðarhátt-
um í Hollywood náðu nú eyrum fleiri en fyrr,
kvikmyndamógúlarnir óttuðust að of safaríkar
uppljóstranir um líf stjarnanna myndu fæla fólk úr
bíóhúsunum, og eftir sætu þeir - gjaldþrota. Þeir
' gripu til sinna ráða.
Sunnudagur 6. maí 1984 22
OUBLE SPtE
"immm D Ssxmrks fy ClAtA SIIIRIIVE RERMfW
AMOUNT-ARTCRAFT PICTUR.E*
■ Mary Miles Minter dáist
að plakati með mynd Wally
Reid meðan allt lék í lyndi hjá
þeim báðum. Skömmu seinna
var hún fallinn í gleymsku og
dá, hann dáinn af neyslu kóka-
íns og morfíns.
But ah, my foes, and oh, my
friends -
It gives a lovely light!
Kertin brunnu glatt. íburð-
urinn og glæsileikinn í lífi
stjarnanna jókst sífellt, jafn-
framt því sem Hays reyndi að
þvo af hvíta tjaldinu allan
óamerískan ósóma. Ekki varð
Chaplin til að liðsinna honum
en kvennamál þessa fremsta
trúðleikara allra tíma voru
mjög í sviðsljósinu á þriðja
áratugnum. Chaplin gekk fyrst
í hjónaband 1918 en entist
ekki lengi. Brúðurin var barn-
ung stúlka sem Chaplin hafði
gert barn, Mildred hét hún og
mun hafa verið fremur illa
gefin. Meðal annars lét hún
MGM-mógúlinn Mayer ginna
sig til kvikmyndaleiks þar sem
fyrst og fremst var gert út á
frægð eiginmannsins. Chaplin
réðst að Mayer fyrir utan veit-
ingahús vegna þessa máls en
var sleginn snaggaralega niður.
Pegar barn þeirra hjóna fædd-
ist ógurlega vanskapað og dó
eftir þrjá daga var fátt eftir til
að halda hjónabandinu saman.
Barn þetta, drengur, var graf-
inn undir legsteini er á var
letrað: „Litla músin“. En
Chaplin lærði ekki neitt. Hann
var heltekinn brókarsótt og
hreifst ekki síst af mjög ungum
stúlkum. Par á meðal var Lilli-
ta McMurray (Lolita) sem
Chaplin sá fyrst er hún var sjö
ára. Hnátan var skemmtileg
og Chaplin fylgdist grannt með
uppvexti hennar og hafði
Arið 1922 var einn helsti
aðstoðarmaður hins alræmda
Warren G. Harding Banda-
ríkjaforseta fenginn til Holly-
wood og gerður að formanni
nýrra samtaka - Motion Pict-
ures Producers & Distributors
of America. Maður þessi hét
Will H. Hays og raunverulegt
hlutverk hans var að vera eins
konar yfirsiðameistari Holly-
wood. Hann ákvað hvað mátti
og hvað ekki í bíómyndum,
njósnaði um líferni stjarnanna
og var fljótur að gera mógúl-
unum viðvart ef einhver fór
yfir velsæmisstrikið. Raunar
var Hays illa til þessa hlutverks
fallinn. Seinna kom í Ijós að
hann var ósmeykur við að
þiggja mútur, en engu að síður
hafði starfsemi hans mikil áhrif
í Hollywood. Meðal annars sá
hann til þess að amerískar
bíómyndir voru „hreinsaðar".
Hér eftir mátti ekkert sýna
sem gæti ofboðið siðferðis-
kennd tíu ára barns. Þrátt fyrir
allt höfðu margar amerískar
myndir hreint ekki farið í felur
með mannlegan breiskleika en
nú var tekið fyrir allt nautnalíf
á hvíta tjaldinu. Með tilkomu
Hays fengu amerískar myndir
endanlega það gelda, hræsnis-
fulla yfirbragð sem ekki fór að
skína gegnum fyrr en nú á
síðustu áratugum.
Og afleiðingarnar urðu
fleiri. Eitt fyrsta verk Hays var
að taka saman lista yfir kvik-
myndastjörnur sem væru
„vafasamar" siðferðislega og
á þessum lista lentu 119
stjörnur, stórar sem smáar.
Listinn var lagður fyrir bíó-
mógúlana og þeir losuðu sig í
skyndingu við þetta fólk.
Reyndar hafði listinn strax í
upphafi öfug áhrif. Efstur á
honum var enginn annar en
Wallace Reid, ein bjartasta
stjarna Paramount. Reid var
góðkunnur fyrir að leika ung,
djörf og hraustleg karlmenni
en nú hafði Hays uppgötvað
að hann var forfallinn morfín- (
sjúklingur og geymdi kókaín í
verðlaunabikar á arinhillunni
lieima hjá sér. Stórmógúllinn
yfir Paramount, Adolph
Zukor, reyndi að malda í
móinn því hann taldi sig ekki
hafa efni á að missa Reid.
„Pað myndi kosta okkur tvær
milljónir dollara!" emjaði
Zakor, en hinir mógúlarnir
sönnuðu þá að enginn er ann-
ars bróðir í leik og laumuðu
fréttinni um eiturlyfjaneyslu
Reids í blöðin. Honum var í
skyndingu komið fyrir á heilsu-
hæli en málið varð að miklu
hneyksli. Það náði svo hámarki
þegar Reid gaf upp öndina í
janúar 1923. Hvorki skrokkur
hans né sál höfðu þolað álagið
þegar burt var tekið kókaín og
morfín. Fyrsta aðgerðin til að
koma í veg fyrir hneyksli í
Hollywood varð þannig í sjálfu
sér að hneyksli og lofaði það
ekki góðu um framhaldið.
„The Jazz Age“
Enda gerðust stjörnurnar
ekki hótinu siðprúðari en þær
höfðu verið áður en Will Hays
kom í bæinn. Nú var runnin
upp „The Jazz Age“ og vita-
skuld tóku stjarnmennin í
Hollywood þátt í þeirri ærðu
veislugleði. Þau reyndu samt
cftir megni að fara á bak við
mógúlana og varðhund þeirra
en það kom ekki í veg fyrir
orðróm um ótrúlegar svall-
veislur á afskekktum stöðum,
veislur sem máske enduðu með
því að gestir stungu sér aílsber-
ir til sunds í kampavínslaug.
Eiturlyfjaneytendurnir létu
dauða Wally Reid heldur ekki1
á sig fá og „Greifinn" hélt
uppteknum hætti. „Greifinn"
var leikari, engin stjarna en
virtur og virðulegur og kunnur'
fyrir að þekkja svo undur góð
ráð gegn timburmönnum.
Fyrsti skammturinn af duftinu
hans var ókeypis en hina síðari
þurfti að borga dýru verði. Það
var „Greifinn" sem hafði kom-
ið Mabel Normand og Wally
Reid á bragðið og meðal nýrri
viðskiptavina hans voru þrjár
efnilegar leikkonur. Barbara
La Marr var kölluð „of falleg"
og hún virtist ákveðin í að
tæma alla þá bikara sem hún
festi hendur á. Það tókst. 1926
dó hún af ofneyslu alls konar
eiturlyfja, tæplega þrítug.
Reynt var að venja Ölmu Ru-
bens af þessum ósið en hún var
of langt leidd og dó 1931, orðin
skar. Juanita Hansen lifði á
hinn bóginn af endurhæfingu
og einbeitti sér eftir það að
herferð gegn eiturlyfjum. Sú
herferð varárangurslítil. Kvið-
lingur Ednu St. Vincent Millay
mátti sín meira, og varð eins
konar stefnuyfirlýsing stjarn-
anna í Hollywood:
My candle burns at both ends;
It will not last the night;
■ Rudolph Valentino og Nazimova í myndinni Camille - hún sá honum fyrir tveimur eiginkon
um en báðar voru hriéiari af henni...