NT - 07.05.1984, Side 3
■ NT skýrði frá því í liðinni viku að þrjú
börn hefðu verið tekin með keisaraskurði á
20 tímum á Húsavík. Nú hafa Selfyssingar
bætt um betur.
Sjúkrahúsið á
Selfossi:
Þrír keisarar
á 11 tímum
■ Þrjú börn voru tekin með keisaraskurði
á aðeins ellefu klukkustundum á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Selfossi á fimmtudaginn var.
Fyrsta barnið var tekið um níuleytið að
morgni, annað um miðjan dag og það þriðja
rétt eftir kvöldmat.
„Ég veit ekki hvort um nokkurt met er að
ræða, en þetta er vissulega nokkuð merki-
legt. Sérstaklega ef það er haft í huga að
undanfarin ár höfum við tekið tólf til fjórtán
börn á ári með keisaraskurði, en þarna
komu þau þrjú sama daginn“, sagði Daníel
Daníelsson, yfirlæknir sjúkrahússins, við,
NT.
Daníel sagði að í öllum þessum tilfellum
hefði það verið séð fyrir að börnin þyrfti að
taka með keisaraskurði, en svona hlutir eru
alltaf óútreiknanlegir“, sagði Daníel.
Hann sagði að bæði mæðrum og börnum
heilsaðist vel.
Blárefaskinn
hækka í
verði
■ Meðalverð á blárefaskinnum í Kaup-
mannahöfn hefur hækkað um 80-85% frá
desemberuppboði og til uppoðs sem þar er
nýlokið, miðað við sambærileg gæði í hærri
flokkunum, að sögn Jóns R. Björnssonar,
hjá SÍL. Þar af sagði hann hækkun hafa
verið um 11% frá marsuppboði. Meðalverð
fyrir betri flokkana reyndist nú um 1.455
kr., en seld voru um 7.700 blárefaskinn.
Meðalverð á um 1.100 shadow-skinnum var
1.536 kr. og hafði ékki hækkað frá síðasta
uppboði. Mestur hluti skinnanna á þessu
uppboði var í undirflokkum, eða um 24.550
blárefaskinn og um 5.500 shadow og seldust
þau 100% að sögn Jóns. Meðalverð á
blárefaskinnum í þeim flokkum var 1.215
kr. og af shadow 1.255 kr. fyrir skinnið.
Vertíðartilboð
Nú ber vel í veiði.
snorrabraut 56 sími 135 05 glæsibæ siMi 3 43 50 Ekki barct benjuleg verslun!
Utanhússmálnins
Olíulímmálning 18 litir °
Ken-Orí notast á alla lárétta og áveðursfleti áður en málað er.
(silicon) hentar einnig vel á múrsteinshlaðin hús.
PESMA-Oítl hentar vel bæði á nýjan og málaðan stein
PERMA-DRI er í sérflokki hvað endingu á þök snertir.
Næsta sending Smiðsbúð
** . Smiðsbúð 8, Garðabæ
hækkar um 10% simi 91-44300
Greiðslukjör. Sendum í póstkröfu. bregingáme'siar"