NT - 07.05.1984, Blaðsíða 4

NT - 07.05.1984, Blaðsíða 4
■ Hagkaup ætlar að halda á- fram að selja gleraugu þrátt fyrir að ný löggjöf um sjón- tækjafræðinga hafi öðlast gildi við útkomu Stjórntíðinda, en eins og kunnugt er innihalda lögin ákvæði um að engum nema sjóntækjafræðingum sé heimilt að selja gleraugu. „Strax á mánudaginn ætlum við að leita eftir úrskurði heil- brigðisráðherra um það hvort þau gleraugu sem við seljum falli undir þetta lagaákvæði. Við efumst stórlega um að svo sé því að í einstaka ríkjum í Bandaríkjunum, þar sem álíka lagaákvæði gilda, selja menn gleraugu af þessu tagi sem stækkunargler, sem þau vissu- lega eru,“ sagði Gísli Blöndahl, fulltrúi framkvæmdastjóra Hag- kaups, þegar NT hitti hann að máli í versluninni. Hann sagði að til vara myndi verslunin sækja um undanþágu til ráðherra á þeirri forsendu að lagasetningin séu mistök. „Við Því ekki að gera áætlun fyrir vorið í róleg- heitum heima í stofu? Það vorar senn Þarftu að skipuleggja nýja garðinn þinn, eða lagfæra þann gamla? Hringið eba skrifið og ykkur verða sendir pöntunarlistar yfir allar algengustu plöntu- tegundir ?camt litprentuðum bækling yfir garðrósir. GARÐYRKJUSTÖÐIN GRÍMSSTAÐIR Hveragerði - Símar: 99-4161, 99-4230 Vindhögg Þorsteins Mánudagur 7. maí 1984 ■ Valdleysi Þorsteins Pálssonar í stöðu formanns Sjálfstæðisflokksins er að sjálfsögðu óþolandi fyrir hann. Eftir að hann tók við embætti sínu hefur nánast ekkert til hans sést né heyrst. Hann var miklu meira áber- andi og afgerandi sem herforingi Vinnuveitendasambandsins áður en hann fór á þing. Þolinmæði hans er augljóslega á þrotum því nú er Ijóst að án forystuhlutverks í ríkisstjórinni verður aldrei formannsbragur á hon- um meðal sjálfstæðismanna. Það er þess vegna heldur dapurlegt fyrir hann að tilkall hans til ráðherradóms fyrir helgina er dæmt til að mistakast. Hvernig stendur á því? Formaður Sjálfstæðisflokksins væri sjálfkjörinn sem forsætisráðherra ef flokkur hans færi með það ráðuneyti. Hann getur því ekki tekið hvaða ráðherrastól sem er. Af þeim ráðu- neytum sem Sjálfstæðisflokkurinn nú fer með eru aðeins tvö sem hæfa virðingu hans, utanríkisráðuneytiðog fjármálaráðuneytið. Af þessum tveimur kemur aðeins fjármálaráðuneytið til greina. Pó Geir Hallgrímsson hafi aldrei verið snöggur að draga sig í hlé, væri hann nú vís með að hopa úr stóli sínum fyrir Þorsteinn arftaka sinn. Það eitt sér er hins vegar til lítils því sérhæfing Þorsteins í pólitíkinni er í efnahags- málunum, í reynd eins langt frá utanríkismálunum og hugsanlegt er. Að setja Þorstein í utanríkismálin væri eins og að gera Jóhannes Nordal að Þjóðleikhússtjóra. Samt gæti brottför Geirs úr ríkis- stjórninni hugsanlega opnað mögu- leika á uppstokkun og tilfærslum milli ráðuneyta, þannig að hið valdamikla fjármálaráðuneyti myndi losna fyrir Þorstein. Eðlilegasti framgangurinn í þessari leikfléttu væri sá, að Matthías Á. Mathiesen, viðskipamálaráðherra, sem hefur staðið sig þokkalega á vettvangi Norðurlandaráðs, færi í utanríkismálin og Albert Guðmunds- son færi í viðskiptamálin. Fyrir flokkseigendafélagið og Þorstein er þetta óskalausnin. Höfuðverkur þeirra er hins vegar sá, að Albert siglir þessum áformum í strand. Enginn ráðherranna er sérlega fús að láta reka sig úr ríkisstjórninni. Slík mannaskipti á miðjum kjörtíma hafa ekki rnikið tíðkast hér á landi og fela því í sér allt of mikla hneysu fyrir viðkomandi ráðherra. Albert myndi, til dæmis, aldrei láta færa sig niður í óvirðulegra ráðuneyti í tilfærslum bak við tjöldin. Þaðer allt of veikur leikur fyrir hann. Því síður lætur hann þingflokkinn reka sig úr Lögin um gleraugnasölu öðlast gildi: „Við höldum áfram að selja gleraugu“ segir Gísli Blöndahl í Hagkaup ríkisstjórninni með skít og skömm. Ef hann fer verður það að vera að hans eigin frumkvæði og vegna einhvers tilbúins ágreinings, sem hann getur gert sér fjölmiðlamat úr. Hann þarf einnig að hafa góða ástæðu fyrir sjálfan sig til að yfirgefa ríkisstjórn- ina. Metnaður Alberts er alveg jafn mikill og verið hefur. Foringjakreppan í Sjálfstæðisflokk- num er þvf langt frá því að vera leyst. Ef formaðurinn og flokksvélin hefðu næg völd í flokknum væri löngu búið að setja Þorstein í fjármálaráðu- neytið í kyrrþey. Sú staðreynd að Friðrik og Þor- steinn bera vansæld sína á torg þessa dagana endurspeglar sjálfhelduna í flokknum. Árásir þeirrá á ríkisstjórn- ina og Albert eru vindhögg örvænt- ingarinnar, enda hlær Albert að þeim og segir þá drengina vera ansi „greinda". Albert hló líka þegar Þorsteinn ætlaði að taka hann á beinið eftir sérsamning Alberts við Dagsbrún í vetur. Þorsteinn hlýtur að hafa lagst í þunglyndi eftir þann ösigur. Staða Þorsteins er augljóslega óþolandi. Ef óbreytt ástand varir til næstu formannskosninga verður hann þá að engu orðinn. Menn eins og Davíð Oddson og jafnvel Albert myndu standa langt fyrir ofan hann. Friðrik Sophusson, varaformaður, færi í sama farveg og Ellert Schram. Valda- og verkefnalaus myndi hann sigla út úr pólitíkinni, eða dorma áfram í leiðindum lognmollunnar. Eini möguleikinn sem Þorsteinn á er sá, að ríkisstjórnin liðist í sundur. Það gæti gerst með átökum við Fram- sóknarflokkinn, eða, það sem lík- legra er, með því að ÁSÍ fari fram með hörku í kjarabaráttunni í haust. Þá sæi flokksvél Sjálfstæðisflokksins sér leik á borði í því að slíta stjórnar- samstarfinu og boða til kosninga um það hvort ASI eða ríkisstjórnin eigi að stjórna landinu. Útkoma Sjálf- stæðisflokksins úr kosningum í haust gæti orðið góð og þá yrði Þorsteini tryggt forsætisráðuneytið í nýrri ríkis- stjórn. Svo kaldhæðnislegt sem það annars er, kann svo að vera að ASÍ hafi framtíð Þorsteins Pálssonar í for- mannsembætti Sjálfstæðisflokksins í höndum sínum. Skuggi erum þess fullvissir að ef þing- menn og ráðherrar skoða sinn hug vandlega munu þeir fallast á okkar sjónarmið. Einfaldlega vegna þess að við seljum ódýrari gleraugu en fáanleg eru annars staðar hér á landi og fólk hefur kunnað að meta það, sérstak- lega eldra fólk, sem ekki hefur úr miklu að spila" sagði Gísli. - Óttist þið einhverjar að- gerðir - annað hvort hins opin- bera eða sjóntækjafræðing- anna? „Nei. Ég get ekki ímyndað mér að farið verði í harðar aðgerðir gegn okkur. Það eru allir sammála um að hér er engin hætta á ferðum - ekki frekar en af magnylsölu án til- vísunar frá lækni,“ sagði Gísli. ■ Gísli Blöndahl, fulltrúi framkvæmdastjóra Hagkaups, rýnir í Stjórnartíðindi. Viðskiptavinur skoðar hina forboðnu vöru, gler- augun. NT-mynd Árni Sæberg

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.