NT - 07.05.1984, Blaðsíða 13
LlL'
Mánudagur 7. maí 1984 13
ÞAD ER KUNST
AD KLÆDA SIG
ísam-
ræmi
við til-
efnið!
■ Ekki mátti á milli sjá
hvor þeirra fékk meira lof
fyrir klæðaburðinn Morgan
Fairchild (t.v.) eða Michele
Lee (t.h.) og er hann þó
vægast sagt ólíkur. Reynd-
ar verður að taka fram, að
myndirnar voru teknar við
tvö ólík tækifæri.
Morgan Fairchild var
viðstödd góðgerðaleik í
körfubolta í Beverly Hills
og klæddi sig náttúrlega í
samræmi við tilefnið.
Henni þótti við eiga að vera
í rosastórum ljósbláum
jakka með bleiku ívafi,
bleiku pínupilsi og stutt-
buxum í sama lit. Og þar
sem fótkuldi er óhollur, var
hún í bleik- og bláröndótt-
um legghlífum við og nátt-
úrlega með kálfslappir, eins
og tískan býður.
Michele Lee, sem þekkt
er fyrir leik sinn í sjónvarps-
þáttunum Knots Landing
þurfti hins vegar að finna
sér viðeigandi klæðnað til
að bera við verðlaunaaf-
hendingu í Santa Monica.
Hennar búningur er líka
fjölskrúðugur og margsam-
ansettur, en þótti helst
minna á þann klæðnað sem
Vesturlandabúar ímynda
sér að konur olíufursta beri
í kvennabúrum þeirra. Hafi
einhverjir lesendur Spegils-
ins áhuga á að líkja eftir
þessum fatnaði, virðist það
vera fremur auðvelt, en það
sem setur punktinn fyrir
i-ið á honum, er pallíettu-
saumurinn, sem víða
bregður fyrir á honum.
LOKSINS!!!
„Kálgarðsbörnin"
■ Síðastliðinn vetur flugu
fréttir um heiminn með elding-
arhraða um nýjasta aeðið, sem
gripið hefur um sig í Banda-
ríkjunum, og reyndar síðar
um allan heim.
Á markað kom ný tegund af
brúðum, sem þótti hafa margt
nýstárlegt sér til ágætis. Engar
tvær þeirra eru eins, og var það
eitt og sér nokkuð gott. En
annað vakti þó enn meiri at-
hygli og áhuga fólks á því að
koma höndum yfir þessa dýr-
gripi. Brúðurnar mátti ætt-
leiða! Það leiddi til þess að
eigendurnir bundust þeim sér-
stökum tilfinningaböndum og
undanfarna mánuði hefur eng-
inn verið maður með mönnum,
sem ekki hefur átt a.m.k. eitt
„kálgarðsbarn“, en svo hafa
brúður þessar verið nefndar.
Kvað svo rammt að eftirsókn-
inni, að fólk vílaði ekki fyrir
sér löng ferðalög, jafnvel yfir
Atlantshafið, ef það mætti
verða til þess að það gæti
klófest eins og eitt slíkt „barn“.
Nú þurfa íslendingar ekki að
fara í löng ferðalög til að verða
sér úti um slíkt „barn“ til
ættleiðingar. Það nægir að
bregða sér í leikfangaverslun-
ina K. Einarsson við Laugaveg
i Reykjavík og tryggja sér
eintak. Ekki dregur það úr
spenningnum, að þegar festl
eru kaup á „kálgarðsbarni",
veit kaupandinn ekkert hvers
konar bam hann hreppir fyrr
en viðskiptin eru um garð
gengin. Þau koma nefnilega í
innsigluðum blómkálshöfðum,
sem engin leið er að gera sér
grein fyrir hvað innihalda,
fyrr en innsiglið er rofið. Og
þeim fylgir auðvitað ættleið-
ingarskjal, eins og vera ber um
munaðarlaus „kálgarðsbörn“.
■ Michele Lee (t.h.) flnnst þessi klæðnaður hæfa við verðlauna-
veitingar, en Morgan Fairchild cr búin að finna hinn eina og sanna
búning til að mæta í á körfuboltaleiki!