NT - 07.05.1984, Qupperneq 16
Mánudagur 7. maí 1984 16
lil Útvarp — — Sjónvarp
Sjónvarp kl. 20.40:
HEILSUUNDIR
- lækning eða leyndardómur
■ Hér á íslandi þekkir fólk vel
hve leirböð geta verið heilnæm,
og þau hafa tíðkast hér um
áratugi sem lækning við gigt
o.fl. einkum á Heilsuhælinu í
Hveragerði.
Nú sýnir sjónvarpið okkur
kanadíska heimildamynd, þar
sem segir að slík leirböð hafi
þekkst í meira en 2000 ár!
í kynningu á myndinni segir:
í meira en 2000 ár hefur fólk
leitað sér lækninga á gigt og
öðrum kvillum með böðum í
laugum eða leirböðum, og oft
með góðum árangri. I myndinni
er vitjað nokkurra kunnra
heilsulinda og fjallað um lækn-
ingamátt þeirra. Þýðandi og
þulur er Jón O. Edwald. Sagt er
að sl. árhafi 43.000 manns komi
til Dax í Frakklandi til að baða
sig í séstakri Dax-leðju. Hún
þykir hafa góð áhrif á gigtsjúk-
dóma. Sýnt verður frá þessum
leðjuböðum í myndinni. Einnig
verður sýnt frá heilsulindum í
Myoban í Japan og hinum sjóð-
andi sandi þar, frá Bath í
Englandi og öðrum frægum
stöðum
A rólegu nótunum:
Arnþrúður fjallar
um einmanaleikann
Tveir ánægðir í leirbaði
■ A Rás 2 milli kl. 15.00-16.00
verður Arnþrúður Karlsdóttir
með þátt sinn „Á rólegu nótun-
um“.
Arnþrúður sagði okkur hjá
NT að þessi þáttur væri aðallega
hugsaður sem músíkþáttur, en
hún tæki alltaf fyrir eitthvert
sérstakt efni.
- Einmanaleikinn er efnið,
sem ég tek fyrir í dag, sagði
Arnþrúður. Ég hef hugsað mér
að fá sérfræðing til þess að segja
okkur hvað einmanaleiki í raun
og veru er, og ég fæ gott fólk til
að ræða málið.
- Hinn sérfróði aðili, sem
kemur fram í þættinum ræðir
um einmanaleikann og sam-
skipti við annað fólk, en hið
ótrúlegasta fólk getur verið
einmana. Ef til vill verður hlust-
endum gefið tækifæri til að slá á
þráðinn og koma með fyrir-
spurnir í þessari beinu útsend-
ingu í síma 38503, en það verður
tilkynnt um leið og þátturinn
byrjar.
■ Arnþrúður Karlsdóttir
Tónlistina sagðist Arnþrúður
hafa valið með einmanaleikann
í huga. Sem sagt - efnið er í
tengslum við tónlistina, sagði
Arnþrúður að lokum.
Signý Pálsdóttir hefur llutt okkur KOTRU-þætti sína í vetur
Utvarpkl. 11.30:
Kotra frá RÚVAK
- endurtekinn frá sunnudagskvöldi
Þór og Páll ræða um jarðskjálfta
-aðallega Skagafjarð-
ar-skjálftana ’63
■ Marga góða þætti höfum
við fengið „að norðan" í vetur,
og má þar nefna KOTRU-þætt-
ina sem Signý Pálsdóttir,
leikhússtjóri á Akureyri, hefur
flutt í vetur á sunnudagskvöld-
um og endurteknir hafa svo
verið á mánudagsmorgnum.
Signý les vanalega eitthvað úr
Spámanninum eftir Kahil Gibr-
an í þýðingu Gunnars Dal, og er
lesturinn oft inngangur að efni
því sem hún tekur fyrir í hverj-
um þætti.
■ I Vísindarásinni í dag ræðir
Pór Jakobsson við Pál Halldórs-
son um áhrif jarðskjálfta á
íslandi.
Páll sagði, að þeir félagar
tækju fyrir áhrif jarðskjálfta og
hvernig þeir finnast.
- Ég tek dæmi af Skagafjarð-
ar-jarðskjálftunum 1963, ogsíð-
an ræði ég svona almennt um
það hvernig áhrif jarðskjálfta
berast hér á landi miðað við
önnur lönd, sagði Páll, er blaða-
maður spurði hann um efni
Vísindarásarinnar.
- Pór talar þarna við mig um
það, sem ég hef aðallega verið
með í athugun að undanförnu
en ég hef verið að rannsaka
Sjónvarp kl. 21.40:
Kuská
hvítflibbann
■ Á jólum 1981 var sýnt í
sjónvarpinu leikrit eftir Davíð
Oddsson „Kusk á hvítflibb-
ann“. Leikstjóri var Andrés
Indriðason. Núætlarsjónvarp-
ið að endursýna það í kvöld kl.
21.40.
f kynningu á sjónvarps-
leikritinu segir: Eiríkur er ung-
ur og framsækinn maður í góðri
stöðu. Atvikin haga því þannig
að á hann fellur grunur um
eiturlyfjabrask og verður hann
að sæta gæsluvarðhaldi meðan
málið er í rannsókn.
Leikendur eru: Árni Ibsen,
Elfa Gísladóttir, Póra Frið-
riksdóttir, Jón Sigurbjörnsson,
Ragnheiður Arnardóttir, Sig-
urður Sigurjónsson, Jóhanna
■ Árni Ibsen, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Arnar-
dóttir og Sigurður Sigurjónsson í hiutverkum í „Kusk á hvítflibb-
ann“
Norðfjörð, Borgar Garðars-
son, Gunnar Rafn Guðjóns-
son, Steindór Hjörleifsson og
Róbert Arnfinnsson.
■ Þór Jakobsson veðurfræð-
ingur
Skagajarðarskjálftana 1963.
Petta er mikill jarðskjálfti, sem
mældist um það bil 7 stig á
Richter, og upptökin voru talin
í mynni Skagafjarðar. Skjálft-
inn fannst svo til um allt land,
nema rétt á Suð-Austurlandi,
en mest þó báðum megin Skaga-
fjarðar og á Skaga.
Aðeins verður í þættinum
farið út í samanburð við önnur
lönd. T.d. berum við saman
jarðskjálftann sem nýlega varð
íKaliforníuvið Dalvíkurskjálft-
■ Páll Halldórsson eðlisfræð-
ingur (NT-mynd Sverrir)
ana 1934 sem gerðu mikinn
óskunda. Þeir voru svipaðir að
styrkleika, - en samt eru þeir
ólíkir að ýmsu leyti. T.d. dvín-
uðu áhrif Dalvíkurskjálftans
miklu hraðar en skjálftans í
Kaliforníu. í sömu fjarlægð,
t.d. 100 km fjarlægð, fannst
Dalvíkur-skjálftinn miklu
minna en Kaliforníu-skjálftinn.
Þarna kemur til greina mismun-
ur á jarðlögum, hvernig bylgj-
urnar berast, sagði Páll Hall-
dórsson.
Mánudagur
7. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Halldóra Þorvarðardóttir flytur
(a.v.d.v.). Á virkum degi - Stefán
Jökulsson - Kolbrún Halldórsdóttir
- Kristín Jónsdóttir. 7.25 Leikfimi.
Jónína Benediktsdóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Baldvin Þ. Kristjáns-
son talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hnifaparadansinn" eftir Jón
frá Pálmholti Höfundur les (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.).
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Sig-
nýjar Pálsdóttur frá sunnudags-
kvöldi (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Lög úr kvikmyndum
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar; seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (18).
14.30 Miðdegistónleikar David Ger-
ingas og Tatjana Schatz leika á
selló og pianó „Sex Ijóð" eftir
Jóhannes Brahms.
14.45 Popphólfið - Sigurður Krist-
insson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leikur forleik
að óperunni „Belfagor" eftir Ottor-
ino Respighi; Lamberto Gardelli
stj. / Lev Kuznetsov, Boris Dobrin,
Sergej Yavkovenko og Sinfóniu-
hljómsveit Moskvuútvarpsins flytja
atriði úr „Ágjarna riddaranum",
óperu eftir Sergej Rakhmaninoff;
Gennady Rozhdestvensky stj. /
Leontyne Price syngur með Hljóm-
sveit Rómarópérunnar áríu úr óp-
erunni „Aidu“ eftir Giuseppe Verdi;
Oliviero de Fabritiis stj. / Konung-
lega fílharmónfusveitin í Lundún-
um leikur „Simpie Symphony" op.
4 eftir Benjamin Britten; Sir Mal-
colm Sargent stj.
17.10 Síðdegisvakan Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson og Borgþór S.
Kjærnested.
18.00 Vísindarásin
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Dagiegt mál Mörður Arnason
talar.
19.40 Um daginn og veginn Sigurð-
ur Magnússon fyrrv. blaðafulltrúi
talar.
20.00 Löng unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Vatnajökulsleið
og Árnakvæði; síðari hluti Sig-
urður Kristinsson tekur saman og
flytur. b. Tilberi og tilberamóðir
Sigríður Schiöth les frásögn úr
Grímu. Umsjón: Helga Ágústsdótt-
ir.
21.10 Nútimatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Ríkisútvarp, grenndarútvarp.
Þáttur um skipan útvarpsmála í
Svíþjóð. Umsjónarmenn: Ólafur
Angantýsson og Þorgeir Olafsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
áir
Mánudagur
7. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-15.00 Dægurflugur Stjórn-
andi: Leópold Sveinsson
15.00-16.00 Á rólegu nótunum
Stjórnandi: Arnþrúður Karlsdóttir.
16.00-17.00 Á Norðurslóðum
Stjórnandi: Kormákur Bragason.
17.00-18.00 Asatími (umferðarþátt-
ur) Stjómendur: Ragnheiður
Davíðsdóttir
Mánudagur
7. maí
19.35 Tommi og Jenni Bandarísk
teiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Heilsulindir - lækning eða
leyndardómur Kanadisk heim-
ildamynd. í meira en 2000 ár hefur
fólk leitaö sér lækninga á gigt og
öörum kvillum með laugum eða
leirbööum, oft með góðum árangri.
I myndinni er vitjað nokkurra
kunnra heilsulinda og fjallaö um
lækningamátt þeirra. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
21.40 Kúsk á hvítflibbann. Endur-
sýning Sjónvarpsleikrit eftir Davíð
Oddsson. Leikstjóri Andrés Ind-
riðason. Leikendur: Árni Ibsen,
Elfa Gísladóttir, Þóra Friðriksdóttir,
Jón Sigurbjörnsson, Ragnheiður
Arnardóttir, Sigurður Sigurjóns-
son, Jóhanna Norðfjörð, Borgar
Garðarsson, Gunnar Rafn Guð-
jónsson, Steindór Hjörleifsson og
Róbert Arnfinnsson. Eiríkur er
ungur og framsækinn maður í
góðri stööu. Atvikin haga því svo
að á hann fellur grunur um eitur-
lyfjabrask og verður hann að sæta
gæsluvarðhaldi meðan málið er
rannsakað.
Áður sýnt í Sjónvarpinu á jólum
1981.
22.35 fþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
23.10 Fréttir í dagskrárlok