NT - 07.05.1984, Page 21
nv
j IlL Útlönd
Kórea:
Páfinn boðar fyrirgefningu
En stúdentar krefjast lýðræðis
notað heimsókn páfa til mikilla
mótmælaaðgerða. Fyrir helgina tóku
um 10 þúsund háskólastúdentar við sex
háskóla þátt í mótmælum gegn stjórn-
völdum. Þeir kröfðust meira lýðræðis.
Stúdentar hafa mótmælt á hverju ári frá
1960 þegar blóðug stúdentauppreisn
neyddi Syngman Ree, fyrsta forseta
Suður Kóreu frá völdum.
Á sunudag er páfi var á leið í
höfuðdómkirkju Seoulborgar hljóp 22
ára gamall stúdent út úr mannþyrping-
uni meðfram götunni sem páfi ók um í
skotheldum bíl og hleypti nokkrum
skotum af skammbyssu í átt að fara-
tækinu. Hann var þegar yfirbugaður af
öryggisvörðum. í ljós kom að maðurinn
var með leikfangabyssu úr plasti sem
ekki var hægt að hleypa skoturn úr, en
hvellhetturnar höfðu hátt þegar þær
sprungu. Páfa brá greinilega við árásina
en brátt breiddist bros yfir andlit hans
og ferðinni var haldið áfram,.
Það hefur vakið talsverða undrun að
stúdentinum hafi tekist að komast í
skotfæri við páfann, því gríðarmiklar
öryggisráðstafanir eru gerðar vegna
komu lians.
Páfi mun fara frá Suður-Kóreu í
dag og halda til Nýju Guineu.
■ Eftir heim-
sókn sína til
Suður-Kóreu
heldurpáfmn til
Papua Nýju-
Gíneu en þang-
að mun hann
koma þann 7.
maí. Kaþólikar
þar eru þegar
farnir að undir-
búa heimsókn
páfans. Hér sést
hvar kaþólskir
pílagrímar þar í
landi ganga
með kross á leið
sinni til Hagen-
tinds en þangað
er páfinn vænt-
anlegur. Þegar
göngunni lýkur
munu píla-
grímarnir hafa
lagt 2.500 km.
að baki sér.
Símamynd -
POLOFOTO
Seul - Reuter
■ Heimsókn Jóhannes Páls páfa ann-
ars til Suður-Kóreu gengur samkvæmt
áætlun. St.l föstudag heimsótti hann
Kwangju- borg, en þar var gerð upp-
reisn gegn stjórnvöldum fyrir fjórum
árum. Uppreisnin var barin niður með
hervaldi og fjöldi manns lét lífið. í
Kwangju hitti páfinn ættingja 189 manna
sem féllu í uppreisninni. Hann boðaði
þeim fyrirgefningu og við sama tækifæri
sagði hann við hóp nýrra kaþólika, sem
átti að fara að skýra, að þeir yrðu að
fyrirgefa þeim sem hefðu syndgað gegn
þeim. Þáheimsótti páfi holdsveikrahæli.
Háskólastúdentar í Suður-Kóreu hafa
■ Meira en 300 unglingar voru teknir í vörslu lögreglunnar
vegna mótmæla fvrir utan Frelsissafnið í Kaupmannahöfn.
Um 1000 unglingar tóku þátt í mótmælunum. Þeir mótmæltu
því sem þeir kölluðu menningarheimsvaldastefnu (kulturim-
perialisma). Unglingarnir skvettu málningu á húsveggi og
máluðu vígorð. Þeir voru handjárnaðir og fluttir í bflum til
lögreglustöðva víðsvegar um Kaupmannahöfn. Unglingarnir
sögðu að mótmælin hefðu verið upphaflð að tíu daga
kjötkveðjuhátíð.
Beint úr réttarsalnum
í „Svanavatnið“
London-Keutcr.
■ Kúbönsk ballettdansmær
var sektuð um 50 sterlingspund
fyrir að stela úr verslun í
London á laugardag. Úr réttar-
salnum fór hún beint í leikhúsið
til að taka létt spor og svífa um
sviðið í Svanavatninu og missté
sig þar hvergi.
Ballerínan, sem er í menning-
arfgrðalagi Kúbanska þjóð-
ballettsins í Bretlandi, viður-
kenndi fyrir réttinum að hafa
hnuplað fötum, skartgripum og
sælgæti í verslun s.l. föstudag.
Flugvellinum
í Meistaravík
verður lokað
■ Flugvellinum í Meist-
aravík á Norðaustur-
strönd Grænlands verður
lokað um næstu áramót.
Ekki verður hægt að halda
tlugvellinum opnum
lengur þar sem fjárveiting-
ar til reksturs hans hafa
verið skornar niður. Sjó-
leiðin til Meistaravíkur
lokast stundum árum sam-
an vegna ísa.
Danskir vísindamenn
eru mjög óhressir með
þessa ákvörðun og halda
því fram að það torveldi
mjög allar rannsóknir á
norðaustur Grænlandi að
loka flugvellinum, því að
frá Meistaravík er farið
alla meiriháttar rannsókn-
arleiðangra til norðaustur
svæðanna. Eftir lokun
flugvallarins í Meistaravík
verður erfitt að koma við
olíuleit við Jameson Land
eins og fyrirhugað er.
Það er danska Flugmál-
astofnunin sem rekur völl-
inn fyrir herinn, Græn-
landsmálaráðuneytið og
atvinnuráðuneytið. Árleg
fjárframlög til flugvallar-
ins nema 11. millj.
danskra króna, þar af
greiðir landvarnaráðu-
neytið 3.6 millj. kr.
Hugmyndir hafa komið
fram um að loka flugvell-
inum yfir vetrarmánuðina
en hafa hann opinn á
sumrin en það mun vart
mögulegt þar sem halda
■ Flugvöllurinn í Meist-
aravík er mikilvægur fyrir
alla rannsóknarleiðangra
sem fara til norðaustur-
hluta Grænlands.
verður flugbrautunum við
allt árið ef þær eiga ekki
að eyðileggjast.
í árfara 15 rannsóknar-
leiðangrar til norðaustur
Grænlands og 10-12
þeirra munu fara um flug-
völlin í Meistaravík. í
Danmerkurhöfn sem er
mun norðar en Meistara-
vík er malarflugbraut, sem
lögð var til bráðabirgða og
ef til vill mun vera hægt að
lagfæra hana eitt hvað.
Wtt
^STURfi
,fí;0 nlfS B
.(rD 0 “ -
Póstsendum
um land allt JJ
, TAUOGTÖLU^.
löÍLim opnað
vefnaöarvöruversfun
í porti JL — hússins
Verið velkomin
TAXJ OG TÖLUR
JL - ix.rnnu l IrinHbruul 121 Hc-ykjuvík Sími 23075
-5 l' :V
•V>*
ODYRAR
BÓKAHILLUR
fáanlegar úr
eik og teak
ogfuru
Stærd:
Hæd 190 cm
Dýpt 26 cm
Breidd 60 cm
Breidd 90 cm
Breidd 120 cm
Húsgagnadeild
Jon Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10600
Citroén CX 2500 dísel ’82
8 manna
Til sölu einstaklega fallegt eintak af þessum vinsæla
feröabíl. Topp bíll. Upplýsingar í síma 18129 eftir kl.
19.00.
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Tökum aö okkur aö
þétta sprungur
i steinvegjum,
lögum alkaliskemmdir,
þettum og ryöverjum
gömul bárujérnsþök.
Sprungu-
K —- Upplýsingar i simum
^ (91) 66709 & 24579
þétting
Höfum háþróuö
amerisk þéttiefni frá RPM
11 ára reynsla á efnunum
hér á landi.
Gerum föst verötilboö
yöur aö kostnaöarlausu
án skuldbindinga af
yðar hálfu.