NT - 07.05.1984, Qupperneq 22
Mánudagur 7. maí 1984 22
Nigería:
Eðlileg viðskipti
að hefjast á ný
Lago* - Rauttr
■ Peningaskiptunum í Niger-
íu er nú lokið. Á 12 dögum hafa
bankar skipt þrem milljörðum
gamalla naira fyrir nýja. Þetta
samsvarar um 12 milljörðum
ísl. kr. Þeir nairar, sem ekki
hefur verið skipt fyrir nýju pen-
ingana, eru nú verðlausir og
ólöglegt er að hafa þá undir
höndum.
Fyrir réttum tveim vikum til-
kynntu stjórnvöld í Nigeríu að
peningaskipti færu fram, landa-
mærum var lokað til að koma í
veg fyrir peningasmygl til lands-
ins og hótað var að skjóta niður
allar flugvélar, sem ekki kæmu
inn í nigeríska lofthelgi í eðli-
legu áætlunarflugi. Peningask-
iptin voru gerð til að stemma
stigu við spillingu og miklum
fjármagnsflótta frá landinu og
gera verðlausa peninga, sem
menn höfðu komist yfir á ólög-
legan hátt og gátu ekki gert
grein fyrir. Gífurlegum upp-
hæðum var smyglað úr landi þar
sem bankar keyptu naira með
miklum afföllum. Þeir sitja nú
uppi með verðlausan pappír.
Á þeim 12 dögum, sem pen-
ingaskiptin fóru fram, fékk hver
Nigeríubúi að skipta tilteknu
magni af gömlu naiörunum í
nýja. Bankastarfsmenn hafa
unnið sleitulaust alla daga við
peningaskiptin, sem sögð eru
hafa farið tiltölulega friðsam-
lega fram.
Bankar eru lokaðir í dag, en
verða opnaðir aftur á morgun,
þriðjudag.
Herstjórnin í Nigeríu mun nú
herða mjög eftirlit með fjár-
munahræringum einstaklinga
og fyrirtækja til að koma í veg
fyrir áframhaldandi spillingu.
Lögfræöingasamtökin hafa
mótmælt þeim ráðagerðum
stjórnarinnar að draga þá sem
staðnir eru að peningabraski
fyrir herdómstóla. En stjórnin
situr við sinn keip og ólögleg
meðferð fjár verður tekin fyrir
af herdómi.
■ Fimm manns fórust og yfir 20 slösuðust þegar þyrla hrapaði á áhorfendasvæði við kappakstursbraut í Ahvenisto í sunnanverðu
Finnlandi í gær, sunnudag. Myndin er tekin af flaki þyrlunnar á meðan slökkviliðsmenn voru enn að berjast við eldinn.
Símamynd Polfoto.
Árásá
sovéska
menn-
ingar-
miðstöð
R*Hut-R*ut*r
■ öfgasinnaðir múhameðs-
trúarmenn lýstu á hendur sér
árás á sovéska menningarmið-
stöð í Beirut um helgina. Eld-
flaug var skotið á bygginguna en
slys urðu ekki á fólki.
Skömmu síðar hringdi maður
í alþjóðafréttastofu í Beirut og
sagðist tilheyra her hinnar mú-
hameðsku sólarupprásar, sem
staðið hafi að eldflaugasending-
unni á menningarmiðstöðina.
Sagði hann hana svar við glæpa-
verkum sovéska hersins í
sAfganistan.
Tilkynnt var að þetta væri
á^eins fyrsta viðvörun. Eftirleið-
is mundi verða ráðist á sovéska
sendimenn í Líbanon og öðrum
múhameðskum löndum ef So-
vétríkin láta ekki af villimann-
legúpi aðgerðum gegn múham-
eðstrúarmönnum í Afganistan.
Herrey-bræður unnu Eurovision keppnina, en:
„Þeir verða gleymdir
efftir sex mánuði,“
segir Stikkan Anderson, Abbaforstjóri
■ Sænsku mormónastrák-
arnir, sem unnu Eurovision
söngvakeppnina í fyrrakvöld,
fá ekki sérlega fagnandi við-
tökur þegar þeir koma
heim til Svíþjóðar, a.m.k.
ekki af stéttarbræðrum sínum
í sænska poppheiminum.
Þannig var það haft eftir Stikk-
an Anderson, guðföður
ABBA, í sænsku síðdegis-
blöðunum í gær, að hann gefi
strákunum í hæsta lagi 6 mán-
uði, síðan mun frægð þeirra
vera lokið, spáir hann.
Á tíu ára afmæli ABBA-sig-
ursins unnu Svíar Eurovision
söngvakeppnina í annað sinn í
fyrrakvöld Fyrir því sáu Herr-
ey-bræður frá Gautaborg. Þeir
eru allir mormónatrúar og hafa
reyndar búið í Los Angeles
undanfarin ár. Einn þeirra
■ Mikil gleði ríkti í herbúðum Svía þegar tilkynnt var að The
Herreys hafi unnið Eurovisionkeppnina.
Símamynd Polfoto
mun hafa leikið í Fame-sjón-
varpsþáttunum, sem m.a. hafa
verið sýndir víða í Evrópu.
Að vonum eru margir Svíar
í sæluvímu þessa dagana og
þeir bræður mjög hreyknir af
sigrinum, sem sænsku blöðin
segja vera að minnsta kosti 3-4
milljóna virði. Það virðist á
hinn bóginn vera samdóma álit
manna í sænska poppheimin-
um, að sigurinn muni ekki
duga þeim til neins verulegs
framdráttar. Stikkan Ander-
son, sem er með voldugri
nöfnum í hljómplötuiðnaðin-
um í Svíþjóð, segist ekki vera
reiðubúinn að „veðja mörgum
aurum á þá“ og Björn Skifs,
sem sjálfur hefur tvisvar tekið
þátt í keppninni, segir það
vera „synd að þessi tegund
tónlistar“ sé látin kynna Sví-
þjóð erlendis.
Kína og
V-Þýskaland
semja um kjarn-
orkumál
Bonn-Rcuter
■ Li Peng, varaforsætisráð-
herra Kína, kom til Bonn í gær.
Hann mun dvelja i Vestur-
Þýskalandi í 11 daga og ræða
við forystumenn þar um efna-
hagssamvinnu og sérstaklega
um samvinnu á sviði kjarnorku-
mála. Búist er við að undirritað-
ur verði samningur um að vest-
ur-þýsk fyrirtæki fái að gera
samninga við Kínverja um að
fá að selja þeim tækniþekkingu
og kjarnorkuver. Þó munu
Þjóðverjar ekki selja Kínverj-
um tæki eða efni, sem hægt
verður að nota til framleiðslu
kjarnorkuvopna. En Þjóðverjar
munu fá leyfi til að gera tilboð í
byggingu kjarnorkuvera til raf-
orkuframleiðslu. Hyggjast Kín-
verjar reisa 12 slík orkuver.
Reiknað er með að Banda-
ríkjamenn muni reisa 10 þeirra,
en eftir samningagerðina í Bonn
stendur þýskum fyrirtækjum
opið að bjóða í byggingu þeirra
tveggja sem ekki er búið að
semja um.
Li mun hitta Khol kanslara
að máli n.k. fimmtudag í
Stuttgart, en þar mun þá standa
yfir landsfundur Kristilega dem-
ókrataflokksins.
El Salvador:
Duarte spáð sigri
SanS«lvador-R«uter
■ Mjög mikil kjörsókn var í
síðari umferð forsetakosning-
anna í E1 Salvador sem fram fór
í gær. Þegar kjörstaðir opnuðu
voru kjósendur mættir í biðröð-
um. Kosningarnar fóru friðsam-
lega fram og lítið var um átök í
landinu, andstætt því sem var
þegar kosið var í fyrri umferð.
Jose Napoleon Duarta þykir
sigurstranglegur, en hann fékk
43.4% atkvæða í fyrri umferð.
Duarte, fyrrum forseti er í
flokki Kristilegra demókrata og
er frjálslyndur umbótasinni.
Höfuðandstæðingur hans er Ro-
berto D’Aubuisson, hægri harð-
línumaður, fékk 29.7% at-
kvæða í fyrri umferð. En þessir
tveir keppa einir í síðari um-
ferðinni.
Bandaríkjamenn draga enga
dul á að þeirra vilji er að Duarte
verði kosinn. Hægri sinnaðir
andstæðingar hans hafa haldið
því á lofti í kosningabaráttunni
að hann sé leppur Bandaríkja-
manna og kalla hann „gringo".
Þótt Duarte nái kosningu er
engan veginn víst að honum
takist að sameina þjóðina. Vin-
strisinnaðir skæruliðar munu
ekki sætta sig við stjórarforystu
hans, fremur en áður og herinn
og dauðasveitirnar munu tæpast
sætta sig við frjálslynda umbóta-
stefnu hans.
■ Ungur Beirutbúi sýnir vilja sinn. Hann mætti á græna svæðinu
með skilti sem á stendur „Frið núna“ á arabísku og ensku.
Beirut:
Skothríð í stað f riðargöngu
Beirut-Reuter
■ Friðargöngu, sem halda átti
í Beirut í gær, var aflýst vegna
stórskotaárása. Vonast var til
að þúsundir manna, kristinna
og múhameðstrúar mundu taka
þátt í göngunni. Hún átti að
hefjast við þinghúsið og mein-
ingin var að ganga yfir græna
svæðið milli Vestur- og Austur
Beirut en þar er markalínan
miUi stríðandi herja kristinna
og múhameðstrúarmanna. Á
laugardag og aðfararnótt sunnu-
dags féllu að minnsta kosti 20
óbreyttir borgarar og yfir 100
særðust í hörðustu átökum sem
orðið hafa í borginni í nokkrar
vikur.
Aðstandendur friðargöng-
unnar sögðu að átökin hafi orð-
ið til að koma í veg fyrír að
gangan yrði farin.
Karami, sem faiið hefur verið
að mynda samsteypustjórn
helstu stjórnmálaflokka og trú-
arhópa, hefur gengið illa að fá
leiðtoga nokkurra hópa mú-
hameðstrúarmanna til að taka
sæti í stjórninni. Þeir setja skil-
yrði, sem þykja óaðgengUeg, og
mun ekki síður að leita orsaka
harðnandi átaka í Beirut því, en
að skothríðinni hafi verið beint
gegn friðargöngumönnum.
Ekki mun reynt að efna til
annarar göngu því sú friðarvið-
leitni virðist aðeins efla ófríð.