NT - 07.05.1984, Side 24
■ Johan Cruyff er nú 37 ára að aldri en hefur aldrei verið
betri.
Holland:
Feyenoord
tvöfaldur
meistari
■ Feyenoord tryggði sér
Hollandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu með stórsigri á
Willem II Tilburg í gær, 5-0
á útivelli. Þar með sigraði
Feyenoord tvöfalt í ár, unnu
einnig bikarkeppnina.
Það voru þeir Houtman
(2), Cruyff, Duut og Brard
sem gerðu mörkin. Hout-
man gerði síðara mark sitt 10
mínútum fyrir leikslok og
brutust þá út gífurleg fagn-
aðarlæti á áhorfendapöll-
unum og fylgismenn Feyen-
oord þustu út á leikvöllinn
og eftir að leikurinn hafði
tafist um nokkrar mínútur af
þessum sökum, þá ákvað
dómarinn að flauta leikinn af
áður en venjulegum leiktíma
væri einu sinni lokið.
Jolian Cruyff á sjálfsagt
mestan heiðurinn af vel-
gengni Feyenoord í viku og
í útvarpsviðtali var þessi 37
ára knattspyrnusnillingur
spurður að því hvort hann
ætlaði að endurnýja samning
sinn við Feyenoord. Hann
svaraði.
„Fyrst þarf ég að ákveða
hvort ég ætla að halda áfram
að leika knattspyrnu. Ef
svarið við því er já, þá byrja
ég á að hugsa um Feyenoord.
Þetta hefur verið erfitt
tímabil, en þess virði."
Mánudagur 7. maí 1984 24
■ Frá Gísla Ágústi Gunn-
laugssyni í V-Þýskalandi:
Ekki lagaðist útlitið hjá Atla
Eðvaldssyni og félögum hans í
Fortuna Dússeldorf eftir leik
liðsins við Werder Bremen um
helgina. Dússeldorf hefur geng-
ið fádæma illa frá því í lok
janúar og leikur liðsins gegn
Bremen á heimavelli á laugar-
daginn var, var engin undatekn-
ing.
Þó var það Dússeldorf liðið
sem náði forystu í leiknum Atli
Eðvaldsson skoraði örugglega
úr vítaspyrnu á 26. mín leiksins.
Neubart náði að jafna fyrir
Bremen í hálfleik og staðan því
1-1 í hálfleik.
Á 52. mínútu kom Neubart
Bremen-liðinu yfir og Bremen
náði nú algjörum undirtökum í
leiknum þrátt fyrir að Fach
næði að jafna metin 2-2. Þá
náðu Bremcn-piltarnir tveggja
marka forystu 4-2 en rétt undir
lok leiksins náði Fach enn að
skora og minnka muninn í 4-3,
Bremen í hag.
Það er greinilegt að lið Atla
er algjörlega heillum horfið.
Meiðsli hafa hrjáð íjölmarga
fastamenn, meðal annars Pétur
Ormslev. Dússeldorf hefur nú
fullkomlega tapað af lestinni til
að fá sæti í UEFA keppninni.
■ Atli Eðvaldsson skoraði sitt fyrsta mark í alllangan tima um helgina fyrir Dússeldorf. Atli skoraði
úr vítaspyrnu, en á þessari mynd er hann í uppáhaldsstellingu sinni í knattspyrnuvellinum, að sigra
glæsilega í skallaeinvígi.
V-Þýskalandsknattspyrnan:
Mönchengladbach tapaði óvænt!
- og er nú ásamt Bayern að mestu úr leik í toppbaráttunni
■ Frá Gísla Ágústi Gunn-
laugssyni í Þýskalandi:
Línurnar skýrðust á toppi og
botni í v-þýsku Bundesligunni
um helgina. Með sigri HSV á
Bayern Múnchen má segja að
Bayern sé úr leik í baráttunni
um meistaratitilinn.
Borussia Mönchengladbach
tapaöi gegn Bortmund á útivelli
1-4 og alit stefnir í einvígi Stuttgart
og Hamburger Sport vcrein, um
v-þýska meistaratitilinn.
Múnchen og Gladbach eru
nú orðin þremur stigum á eftir
Stuttgart þegar þrjár umferðir
eru eftir og komi ekkert mjög
óvænt fyrir í þessum þremur
umferðum bendir allt til þess
að leikur Hamburger Sport-
verein og Stuttgart í Stuttgart
26. maí, verði algjör úrslita-
leikur deildarinnar, en einu
stigi munar á liðunum. En víkj-
um að leikjum helgarinnar.
Dortmund-Mönchengladbadi 4-1
Gladbach hafði leikið erfið-
an bikarleik gegn Werdér
Bremen fyrr í vikunni sem lauk
með sigri Gladbach 5-4 Leiks
Dortmund og Mönchengla-
dbach, sem eru nágrannalið,
var beðið með nokkurri
spennu: Vitað var að Gladbach
mátti ekki tapa stigi í leiknum,
ef liðið ætlaði sér að vera með
í baráttuni um meistaratitilinn.
í fyrri hálfleik var nokkuð
jafnræði með liðunum í fremur
slökum leik. í lið Gladbach
vantaði miðherjann Rahn en í
hans stað kom gömul kempa,
Pinkall, sem ekki hefur leikið
með liðinu um nokkurt skeið.
Um miðbik fyrri hálfleiks
komst Dortmund yfir með
markir Rúmenans Raducanu,
hann átti hreint frábæran leik á
laugardaginn. Var þetta mark
gert úr vítaspyrnu. Á 39. mín-
útu jafnaði Pinkall fyrir
Gladbach. 1-1 í hálfleik. Síðari
hálfleikur fór af stað eins og sá
fyrri endaði. Hvorugt liðið lék
sína bestu knattspyrnu, en eftir
því sem leið á hálfleikinn var
greinilegt að kraftar Gladbach
leikmannanna gáfu eftir og
Dortmundarliðiö drifið áfram
af Raducanu komst sífellt
meira inn í myndina. Klotz
skoraði 2-1 eftir góða sókn um
miðjan síðari hálfleik. Weg-
mann og Kaeser bættu síðan
við sínu hvoru markinu og
lokatölur því 4-1 fyrir
Dortmund.
Leverkusen - Mannheim 0-1
Með tapi á heimavelli gegn
Mannheim, þvert gegn gangi
leiksins, má segja að möguleik-
ar Leverkusen á að tryggja sér
sæti í UEFA-keppninni hafi
orðið úr sögunni, því liðið á
mjög erfiða leiki eftir.
Sigur gegn Mannheim hefði
tryggt liðinu heldur betri stöðu
en nú er. Nýliðarnir úr Mann-
heini skoruðu úr eina raunveru-
lega marktækifæri sínu í öllum
leiknum.
Frankfurt - Núrnberg 3-1
Tvö af neðstu liðum deildar-
innar áttust við í Frankfurt.
Núrnberg liðið er með tapi
sínu 3-1, fyrsta liðið sem er
örugglega fallið í aðra deild.
þ.e.a.s. ekki er lengur stærð-
fræðilegur möguleiki á að liðið
haldi sér uppi.
Leikur liðanna þótti frekar
lélegur og greinilegt var að þar
áttust við tvö lið, taugaspennt,
í fallbaráttu.
Frankfurt komst yfir strax í
5. mínútu með marki Körpels,
fyrirliða liðsins. Staðan í hálf-
leik var 1-0 en Núrnberg jafn-
aði í upphafi síðari hálfleiks.
Síðan skoraði Frankfurt eftir
að hafa brennt af vítaspyrnu.