NT - 07.05.1984, Side 25
\\\' Mánudagur 7. maí 1984 25
LlL íþröttir
Einvíai Stuttaart oa HSV
eftir sigur HSV á Bayern Múnchen í Hamborg
Ásgeir Sigurvmsson:
íliði
vikunnar
í 9. sinn:
Frá Gisla Agúst Gunnlaugssyni í Þýskalandi:
■ Þýsku dagblöðin áttu varla orð yfir
stórlcik Asgeirs Sigurvinssonar með Stutt-
gart gegn Offenbach á föstudagskvöldið.
Stóryrðin eru hvergi spöruð og honum hælt
á hvert reipi. í þýska blaðinu Welt am
Sonntag er Asgeiri í níunda sinn valin í lið
vikunnar og fékk bestu einkunn, 1, sem
þýðir að leikur hans hafi verið á heimsmæli-
kvarða-Ásgeir hefur leikið 28 leiki með
Stuttgart og að vera 9 sinnum í liði vikunnar
hlýtur að teljast stórkostleg frammistaða.
Frá Gísla Águst Gunnlaugssvni i
V-Þýskalandi:
■ Hamburger Sportverein bar
hærri hlut frá borði er liðið mætti
Bayern Miinchen á heimavelli
sínum á laugardag. Leikur lið-
anna var æsispennandi frá fyrstu
mínútu til þeirrar síðustu og
greinilegt að bæði liðin ætluðu
ekkert að gefa eftir í þessari
mikilvægu viðureign. Urslitin
urðu 2-1 fyrir Hamburger SV.
Það kom á óvart hve kröftug-
lega leikmenn Bayern Miinchen
fóru af stað.Fyrstu 15 mínúturn-
ar voru algjörlega þeirra eign.
Þetta kom sérstaklega á óvart
eftir hinn erfiða bikarleik Ba-
eyrn gegn Schalke 04 í vikunni
sem endaði sém kunnugt er 6-6.
Á 21. mínútu kom fyrsta
mark leiksins Manfred Kaltzgaf
fyrir markið og knörturinn barst
til Jimmy Hartwing sem tók
hann niður úr erfiðri aðstöðu og
sendi hann rakleitt í vinstra
markhornið, óverjandi fyrir
Pfaff markvörð. Hamburger var
komið yfir 1-0 og allt varð
vitlaust á áhorfendapöllunum.
Stórglæsilegt mark þetta og það
setti Baeyrn leikmennina greini-
lega nokkuð út af laginu.
Næstu mínútur voru mínútur
Hamburger Sportverein og á
32. mínútu bætti liðið við öðru
marki sínu í leiknum. Þegar
Kaltz skoraði úr vítaspyrnu eftir
að Milewski hafði verið felldur
inni í vítateig. Kaltz skoraði af
öryggi og staðan nú 2-0 í hálf-
leik.
í síðari hálfleik var greinilegt
að Udo Lattek hafði lesið ræki-
lega yfir mönnum sínum í
leikhlé því það var eins og allt
annað lið gengi inn á leikvöllinn
í síðari hálfleik, ekki sama lið
og lék síðustu 30 mínútur fyrri
hálfleiks.
Bayern tók nánast öll völd á
leikvellinum, þegar í upphafi og
nú munaði talsvert um það í
sókninni að Dieter Höeness var
Körbel aftur. Þetta var eftir-
minnilegur leikur fyrri Körbel.
Hann skoraði tvö af mörkum
liðsins en varð síðan að fara af
leikvelli skömmu eftir að hann
setti annað markið með brot-
inn sköflung. Staða Frankfurt
er slæm. Liðið er í þriðja
neðsta sæti með 22 stig en þar
fyrir ofan er Bochum með 24
stig. Frankfurt á eftir leiki í
Bochum og Hamborg, og vafa-
samt er að liðið nái stigum þar.
Baráttan um það hvort Frank-
furt eða Offenbach lendir í
þriðja neðsta sæti verður vafa-
laust hatrömm.
Kaiserslautern - Köln 2-2
Liðin léku furðu varfærnis-
lega, í hálfleik var staðan 0-0.
Leikurinn lagaðist í seinni hálf-
ieik og mörkin fjögur komu þá
hvert af öðru. Mörk Kaisers-
lautern gerðu Hubner og
Thomas Allofs, en mörk Köln-
ar gerðu Klaus Allofs og
Trestin.
Pétur Ormslev:
■ „Ég er kominn á sölulista, þannig að
maður bara bíður og vonar. Ef af því
verður að ég fái tilboð frá öðrum liðum hér
úti, þá vcrður það örugglega í þessum
mánuði". sagði Pétur. „Ef ég fæ engin tilboð
hér þá kem ég heim um miðjan júní og spila
í 1. deildinni í sumar".
Með Fram þá eða einhverju öðru liði?
„Já sennilega Fram, en maður veit aldrei
hvað gerist í þeim efnum", sagði Pétur.
kominn inn á fyrir Lothar
Mathy og ógnaði mjög með
skallaboltum eftir fyrirgjafir frá
Lerby og Nachtweih. Samt sem
áður tókst Múnchenarliðinu
ekki að skora lengi vel þrátt
fyrir að til þessi hefði það feyki-
nóg af tækifærum. Það var ekki
fyrr en á 76. mínútu að Dieter
Höeness skoraði með glæsi-
legum skalla og náði að minnka
muninn í 2-1.
Síðustu 14 mínútur leiksins
voru æsispennandi, bæði liðin
áttu góða möguleika til að skora
einkum þó Bayern Múnchen en
Uli Stein, markvörður Bayern
varði meistaralega hvað eftir
annað. Eða eins og Udo Lattek
Kemur
kannske
heim!
þjálfari Bayern sagði eftir leik-
inn: „Hann varði bolta sem
nánast á að vera útilokað fyrir
markverði að verja, hörkuskot
af 3-4 metra færi".
Udo Lattek, þjálfari Bayeren
var auðvitað óánægður eftir
leikinn, en þjálfari Hamburger
var hinn hressasti og sömu sögu
er að segja um þjálfara Stuttgart
liðsins en hann horfði á leikinn.
Benthaus sagði: „Ég hef séð
hörkusterkt HSV lið í fyrri hálf-
leik, en í seinni hálfleik hef ég
líka séð HSV lið sem auðvelt er
að sigra. En ljóst er að það er það
sem mínir menn verða að gera
þegar liðin mætast í endann á
maí“.
■ Jimmy Hartwing skoraöi
gullfallegt mark fyrir HSV gegn
Bayern Múnchen.
VERÐ KR.
1358,00
ATLI
GOAL
FÓTBOLTA-
SKÓRNIR
KOMNIR
Póstsendum
Sportvöruverslun
Ingólfs
Óskarssonar
Laugavegi 69
simi 11783.
Klapparstig 44
simi 10330.
Úrslit
1 Úrslítin í i-þvsku knattspvrnunni um helgina:
Föstudagur: Stuttgart-Ofíenbach . lerdingen-Bochum . 5-1 1-2
Kaiserslaulern-Köln .
Laugardagur:
Mambur^er SV-Ba»cm 2-1
Frankfurt-Numberg . H
Dortmund-Gladbach 4-1
Leverkusen-Mannheim 0-1
Diisseldorf-Bremen . 1-4
Bielefeld-Braunschweig .... 0-0
Staðan er þessi: Stuttgart .31 18 9 4 75 29 45
Hamborg .31 19 6 6 68 33 44
Bayern .31 18 6 7 75 36 42
Gladbach .31 18 6 7 69 46 42
Bremen .31 17 7 7 69 40 41
Leverkusen 31 13 8 10 48 44 34
Köln 31 13 6 12 57 51 32
Úrdengen 31 12 7 12 59 63 31
Diisseldorf 31 11 7 13 60 63 29
Bielefeld 31 10 9 12 36 45 29
Kaiserslautern .... 31 11 6 14 62 59 28
Brunscweg 31 11 6 14 47 65 28
Dortmund 31 10 7 14 49 59 27
Mannheim 31 8 11 12 3 7 54 27
Bochum 31 8 8 15 49 66 24
Frankfurt 31 5 12 14 38 89 22
Offenbach 31 7 5 19 43 91 19
Númberg 31 6 2 23 35 73 14