NT - 07.05.1984, Blaðsíða 26
Vandaðarvörur-Vægtverð
Djúpsteikingarpottur kr. 4452.- Djúpsteikingarpottur kr. 2458.-
Grill kr. 3970.-
$ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900-38903
Varið vítakast
Alf reðs varð
afdrifaríkt
Schwabing náði sigri og Grosswallstadt
varð Þýskalandsmeistari
- Frá Gísla Á Gunnlaugssyni íþrótta-
fréttamanni NT í V-Þýskalandi:
■ Vífaskot Alfreðs Gíslasonar, sem
varið var rúmri einni mínútu fyrir
leikslok í leik Tusem Essen og
Schwabing réð úrslitum 1. deild v1'
þýska handboltans. Schwabing skor
aði úr hraðaupphlaupi og tryggð
sigur. Þar með tapaði Essen af Þýska
landsmeistaratitlinum í handknatt
leik, því Grosswallstadt sigrað
Gummersbach 18-16 í hörkuleik. Ess
en varð því í öðru sæti deildarinnar
Alfreð Gíslason lék vel í áðurnefnd
um leik, skoraði grimmt úr lang
skotum og vítaköstum, en mistökin
lokin reyndust afdrifarík.
I þessum tveimur leikjum áttust við
fjögur efstu lið Búndeslígunar. Ess-
en og Grosswallstadt voru jöfn með
38 stig fyrir þessa síðustu leiki lið-
anna, en 19 mörkum hagstæðara
markahlutfall. Essen dugði því að
vinna í sínum leik til að verða meist-
ari, hvort sem Grosswallstadt ynni
eður ei.
Báðir leikirnir reyndust hörku-
spennandi og úrslitin ekki ráðin fyrr
en rétt undir lok leikjanna.
í leik Essen og Schwabing var
talsverð taugaspenna í leikmönnum
beggja liða. Fyrir bæði liðin skipti
leikurinn miklu máli. Schwabing
kemst í Evrópukeppni haldi liði
þriðja sætinu og Essen vildi auðvitað
hreppa titilinn.
Staða í hálfleik í þessurn leik var
7-6 Essen í hag og í upphafi síðari
hálfleiks fór heldur betur að keyra
fram úr hófi, kappið á leikmönnum
liðanna. Skv. vestur þýsku sjónvarps-
stöðinni ZDF sem sýndi frá báðum
leikjum í gærkveldi, misstu dómaram-
ir nokkuð tökin á leiknum og kom það
þó fremur niður á leikmönnum
Schwabing en leikmönnum Essen.
Á tímabili í síðari hálfleik léku
einungis þrír menn í liði Schwabing
á móti sex leikmönum Essen. Samt
tókst leikmönnum Essen ekki að nýta
sér það til að auka forskot sitt. Þetta
var harður leikur og varnir liðanna
sterkar,markverðir vörðu vel.
Þegar tvær mínútur voru eftir af
leiknum var staðan 11-11. Þá kom
það í hlut Alfreðs okkar Gíslasonar
að taka vítakast fyrirEssen. Alfreð
hafði átt ljómandi leik skorað falleg
mörk, hvorutveggja úr vítaköstum
eða með þrumuskotum, langt utan af
vellinum. En í þetta sinn brást Alfreð
bogalistin og markvörðurinn varði
frá honum. Knötturinn barst út á
völlinn og leikmenn Schwabing náðu
knettinum og fengu vítakast þegar ein
og hálf mínúta var eftir af leiknum.
Úr því var skorað og staðan 12-11.
Leikmenn Essen brotnuðu gjörsam-
lega og Schwabing náði að bæta við
þrettánda markinu fyrir leikslok, og
sigruðu 13-11.
Þetta tap gat þó samt sem áður
dugað til meistaratitils, tapaði Gross-
wallstadt gegn Gummersbach.
Hell’s Angels
með í flutningi
Ólympíueldsins!
■ Ólympíueldurinn frægi er vænt-
anlegur til New York, frá heimalandi
sínu Grikklandi, í dag. Á morgun
hefst síðan flutningur eldsins í gegn-
um Bandaríkin þver og endilöng og
ekki verður hætt fyrr en í Los Angeles
28. júlí, þá hefjast Ólympíu-
leikarnir formlega.
Samfara flutningi eldsins í gegnum
Bandaríkin, verður safnað fé til
æskulýðsstarfs í Bandaríkjunum og
til styrktar Ólympíuleikum fatlaðra.
Þessi fjársöfnun sætir mikilli gagnrýni
í Grikklandi, heimalandi Ólympíu-
leikanna, og telja menn þar, að verið
sé að nota Ólympíutáknið í auglýs-
ingaskyni og sem söluvöru.
Meðal þeirra fyrstu sem fá þann
heiður að hlaupa með eldinn eru
barnabörn gömlu Ólympíu sigurveg-
aranna hér á árum áður, þeirra Jim
Thorpe og Jesse Owens. Thorpe var
sigursæll á leikunum 1912, en Jesse
Owens vann fjögur gull í Berlín 1936.
Þá mun hin 91 árs gamla Abel Kiviat,
sem vann silfurverðlaun í Stokkhólmi
1912, einnig ætla að skokka með
eldinn svo sem eins og einn kílómetra
í New York.
Yngsti hlauparinn með eldinn verð-
ur 8 ára gömul stúlka, en reynt er að
hafa hlauparana úr sem flestum
stigum þjóðfélagsins og á sem ólíkust-
um aldri. Meðal þeirra sem flytja
eldinn þegar nær dregur Los Angeles,
verður félagi úr mótorhjólaklíkunni
illskeyttu, Hell’s Angles. Alls verða
hlaupararnir 4000. Hlaupið verður í
gegn um 33 ríki Bandaríkjanna og 41
af stærstu borgum landsins. Eins og
áður segir lýkur þessu ferðalagi Ól-
ympíuleldsins 28. júlí í Los Angeles,
á setningardegi leikanna, eftir 15000
kílómetra ferðalag um Bandaríkin.
Prost sigraði
Ghent
belgískur
bikarmeistari
■ Mútumálið margfræga, sem
upp kom í Belgíu í vor, sagði
heldur betur til sín í leik Stand-
ard Liege og Ghent, í úrslitum
belgísku bikarkeppninnar á
laugardag. Fimm landsliðs-
menn, sem eru fastamenn í liði
Standard, gátu ekki leikið með
í leiknum þar sem þeir eru í leik-
banni, vegna mútumálsins.
Eftir venjulegan leiktíma var
staðan 0-0 og þurfti því að fram-
lengja leikinn. Á 93. mínútu
skoraði Cees Schapendonck fyr-
ir Ghent og þremur mínútum
fyrir lok framlengingarinnar
skoraði Ghent annað mark til að
tryggja sér 2-0 sigur í leiknum,
og belgíska bikarmeistara-
titilinn í knattspyrnu 1984.
KAbikar-
meistari
■ KA varð meistari í Bikar-
keppni Knattspyrnuráðs Akur-
eyrar á laugardag, er liði sigraði
Þór 1-0 í úrslitaleik. Steingrímur
Birgisson skoraði sigurmark
KA 10 mínútum fyrir leikslok.
Mikil harka var í leiknum, og
kom það niður á knattspyrnunni
sem sýnd var.
Ormond látinn
■ Willie Ormond, sem var
framkvæmdastjóri skoska
landsliðsins í knattspyrnu í
Heimsmeistarakeppninni í V-
Þýskalandi árið 1974 lést aðfar-
arnótt laugardags, 59 ára að
aldri.
KRvann
■ KR sigraði Ármann í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu á laugardaginn, 2-1
■ Frakkinn Alain Prost, sigraði í
Grand Prix kappakstrinum í San
Marínó í gær. Prost hafði forystu frá
upphafi til enda og kom í mark á
tímanum 1:36:54.
Annar varð Rene Arnoux frá
Frakklandi og þriðji ítalinn Elio De
Angelis.
Michael Alobreto, sem sigraði í
Belgíu fyrir viku, byrjaði vel en
vélarbilun kom í veg fyrir að hann
Mánudagur 7. maí 1984 26
■ Alfreð Gíslasyni og fé-
lögum í Tusem Essen tókst
ekki að ná þýska meistaratitl-
inum í handbolta, það munaði
litlu.
I hálfleik þar var einnig eins marks
munur fyrir heimaliðið. Grosswall-
stadt leiddi með 8-7. En í fyrri hluta
síðari hálfleiks náði Grosswallstadt
að sýna algjöran klassaleik og komst
yfir 13-7. Þar með töldu flestir að
meistaratitillinn væri í höfn en þá datt
liðið niður á slakan leikkafla og þegar
2mínúturvoru til leiksloka varstaðan
17-16 fyrir Grosswallstadt og allt gat
gerst. En á síðustu mínútuni náði þeir
með harðfylgi að verjast sóknar-
lotum Gummersbach og skora síðasta
mark leiksins, 18-16 urðu því loka-
tölur og Grosswallstadt Þýskalands-
meistari. Essen situr eftir með sárt
ennið en gengi liðsins að undanförnu
á keppnistímabilinu hefur samt verið
með því móti að óska má Alfreð
Gíslasyni og félögum hans til haming-
ju með frábæran árangur. Alfreð
hefur sjálfur staðið sig mjög vel í
vetur og sömu sögu er reyndar að
segja að Sigurði Sveinssyni, hinum
íslendingnum hér í Bundesligunni.
Lið hans Lemgo er nú nær öruggt
með fall í aðra deild.
gerði einhverjar rósir. Keke Rosberg
'frá Finnlandi þurfti að hætta eftir
aðeins 3 hringi.
Staða efstu manna í heimsmeistara-
keppninni er nú þessi:
stig
1. Alain Prost Frakklandi 24
2. Derek Warwick Bretlandi 13
3. -4. Rene Arnoux Frakklandi 10
3.-4. Elio De Angelis Ítalíu 10