NT - 07.05.1984, Page 28
LÚRIR ÞÚ
HRINGDU
Við tökum víð ádbendlingum um ffréttir allan sölartiringinn.
Greiddar verða 1000 krönur ffyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krönur ffyrtr ábendingu sem leiðir
til bitastaaðustu ffaöttar mánaðarins. Fullrar naffnleyndar er gætt
f SÍMA 8-
Harka hjá ÍBK og FH í Litlu Bikarkeppninni:
Rotaði dómarann!
- „Ég gerði þetta í bræði“, sagði Björgvin Björgvinsson leikmaður ÍBK
■ Frá Þórði Pálssyni, íþrótta-
fréttamanni NT í Keflavík:
Björgvin Björgvinsson, leik-
maður IBK í knattspyrnu, rot-
aði Baldvin Gunnarsson, dóm-
ara í leik ÍBK og FH í Litlu
bikarkeppninni um helgina.
Forsaga þessa leiðindamáls er
sú, að cinutn leikmanna Kefla-
víkur var brugðið illilega innan
vítateigs FH-inga, án þess að
Baldvin dómari sæi ástæðu til
að dæma á brotið. Björgvin fór
þá að rífast við hann og hætti
ekki, þannig að Baldvin sýndi
honum rauða spjaldið. Björgvin
brást ókvæða við og gerði sér
lítið fyrir og sló Baldvin í rot og
lá Baldvin í rotinu í 7-8 mínút-
ur.
Leikur þessi einkenndist af
mikilli hörku og skapvonsku
leikmanna beggja liða og voru
stympingar og pústrar áberandi
allan leikinn í gegn.
Þegar íþróttafréttamður NT
í Keflavík leit inn til Baldvins,
þar sem hann lá á sjúkrahúsinu
í Keflavík í gær, mundi hann
ekkert eftir þessu og mundi
reyndar sama sem ekkert úr
leiknum, enda fékk hann heila-
hristing af völdum höggsins.
„Það kemur mér mjög á óvart
að Björgvin skyldi gera þetta,
þar sem við þekkjumst,“ sagði
Baldvin og taldi ekki líklegt að
hann myndi kæra þetta, þar sem
engar skýrslur eru gerðar í Litlu
bikarkeppninni og mótið ekki
opinbert. „Mér hefur verið tjáð
að það þýði ekkert," sagði
Baldvin ennfremur.
Björgvin Björgvinsson var
mjög leiður yfir þessu atviki og
sagðist bitur út í sjálfan sig.
„Ég var illa upplagður í þess-
um leik og þetta var gert í
algjörri bræði. Ég hef aldrei
gert neitt þessu líkt áður. Vissu-
lega hef ég rifið kjaft við dómara
eins og gengur og gerist, en
aldrei neitt þessu líkt,“ sagði
Björgvin.
Það verður fróðlegt að vita
hvað gerist í þessu máli, þar
sem öruggt er að Knattspyrifu-
ráð Keflavíkur og Dómarafélag
Suðurnesja hyggjast taka málið
fyrir.
Baldvin dómari Gunnarsson
dæmdi þarna sinn fyrsta leik í
sumar, en sagði að hann myndi
halda ótrauður áfram að dæm;
þrátt fyrir þetta leiðindamál.
Loks má geta þess að leiknun
lauk með jafntefli, 1-1.
Wilkins fer
til AC Mílanó
ffyrir eina og hálfa milljón punda
Ray Wilkins á förum til Ítalíu.
Naumt hjá júdómanni á EM:
Lífgaður úr dái
■ Rúmcnskur júdómaöur, Ilie
Serban, missti meðvitund í
glímu sinni við Bretann Stephen
Gasthorpe, á Evrópumótinu í
júdó, sem haldið var í Liege í
Belgíu um helgina.
Bretinn náði Serban í gólfið
og í gólfglímunni fékk Rúmen-
inn högg á hálsinn af völdum
Bretans. Var þar um algjört slys
að ræða. Þegar Rúmeninn hafði
ekki hreyft sig í nokkurn tíma,
eftir að Bretinn náði á honum
fastataki, tóku menn að ókyrr-
ast í salnum og þegar glíman var
loks stöðvuð, hafði Serban leg-
ið í dái í 25 sekúndur.
Eftir að Erban var fluttur á
börum út úr íþróttahöllinni í
Liege og kominn undir læknis-
hendur tókst loks að lífga hann
við.Haf ði þá verið beitt súrefnis-
gjöf, blástursaðferðinniogjap -
anskri lítgunartækni. Sökum
þess hve lengi hann var án
meðvitundar var farið með hann
á sjúkrahús til að kanna hvort
hann hefði orðið fyrir heila-
skemmdum.
■ Ray Wilkins mun leika með
ítalska félaginu AC MOanó á
næsta keppnistímabili. Hinn 28
ára miðvallarspilari Manchester
United hitti forseta félagsins,
Guiseppe Farina í Manchester
um helgina og skrífaði upp á
þriggja ára samning við Mðanó.
Kaupverðið er hvorki meira né
minna en ein og hálf milljón
sterlingspunda. WUkins flýgur
tjl Ítalíu á miðvikudag til að
ganga frá smáatriðum.
Ron Atkinson framkvæmda-
stjóri Man. Utd. sagði í gær að
brottför Wilkins gerði það að
verkum að fyrirliði Manchester
United og enska landsliðsins,
Bryan Robson, færi hvergi, en
nafn hans hefur verið bendlað
við ýmis ítölsk félög.
Wilkins hefur verið einn al-
besti leikmaður United í vetur
en þó er varla ástæða fyrir
aðdáendur liðsins að óttast að
það verði ekki jafn sterkt, eftir
sem áður.
Búist er við að í þessum
mánuði muni Gordon Strachan,
leikmaður Aberdeen, ganga til
liðs við United og Jasper Olsen,
Daninn hjá Ajax, fer til United
strax og keppnistímabilinu í
Hollandi lýkur.
Fyrir hjá AC Mílanó er einn
Englendingur, Luther Blissett
áður í Watford. Spurningin er
þessi: Verður hann látinn fara í
stað Wilkins eða verður þeim
báðum teflt fram?
FærThompso
ekki að keppa
í Los Angeles?
■ Svo gæti farið að Olym-
píumeistarinn, heimsmeist-
arinn og Evrópumeistarinn í
tugþraut karla, Daley
Thompson frá Bretlandi,
verði útilokaður frá keppni
á Olympíuleikunum í Los
Angeles í sumar.
í gær sló breskt dagblað
því upp, að Thompson væri
flæktur í leynilegan auglýs-
ingasamning við risafyrir-
tæki, sem hljóðaði upp á
105.000 sterlingspund og það
hlyti að brjóta í bága við
stöðu hans sem áhugamanns
í íþróttum.
Nigel Cooper, ritari
íþróttanefndar breskra
áhugamanna, sagði í viðtali
m.a. „Við höfum fengið
þessar fréttir frá einkaspæj-
ara, en áður en við aðhöf-
umst eitthvað, þá verðum
við að heyra hina hliðina á
þessu leiðindamáli."
.Við verðum að rannsaka
þetta og tala við lögfræðinga
og umboðsmenn
Thompsons, áður en við get-
um verið fullvissir um að
þetta sé satt,“ sagði hann
ennfremur.
Alfreð og
félagar
misstu af
titlinum
- sjá bls 26
Bandaríski körfubolfinn
Lakers töpuðu í Dallas
■ Átta liða úrslit körfuboltans
í Bandarísku NBA deildinni eru
nú komin vél á veg. Los Angeles
Lakers unnuDallas Mavericks í
öðrum leik liðanna 117-101, en
töpuðu síðan í Dallas, 125-115.
Staðan hjá þeim er nú 2-1 fyrir
Lakers. Boston er 2-1 yfir gegn
New York eftir 116-102 sigur og
tap núna í síðasta leik, 92-100.
Phoenix er yfir 2-1 gegn Utah
eftir tvo sigra í röð, 102-97 og
106-94. Jafnt er í viðureign
Milwaukee og New Jersey Nets,
2-2. Milw. unnu í öðrum leik
iiðanna 98-94 og í fjórða
leiknum 100-93. Nets unnu í
þríðja leiknum 106-99.
Einvígi Stuttgart
og HSV - bls 25
íþróttir á bls 23,
24,25,26,27 og 28
Mikil lætir á úrslitaleik spönsku bikarkeppninnar:
Slátrarinn er enn að
- 60 þurftu á læknishjálp að halda eftir leikinn
■ Eftir að Bilbao náði að
skora gegn Barcelona í úrslita-
leik spönsku bikarkeppninnar
í knattspyrnu á laugardag,
lögðust leikmcnn Bilbao allir í
vöm og vörðust án afláts. Það
var Endika Guarrochena sem
skoraði sigurmarkið, og þrátt
fyrir að Barcelona-liðið væri í
sókn út leikinn tókst þeim ekki
að skora. Besta tækifæríð fékk
V-Þjóðverjinn Bernd
Schuster, þegar hann átti
hörkuskalla að marki Bilbao,
en markvörðurínn varði.
Þegar dómarinn flautaði til
leiksloka brutust út miklar
óeirðir meðal leikmanna jafnt
og áhorfenda. Flöskum og
öðru lauslegu var einnig grýtt
inn á völlinn. Lauk þeim með
því að um sextíu manns þurftu
að leita læknis eftir leikinn.
„Slátrarinn frá Bilbao" Ant-
onio Goicoechea, sem fyrr á
keppnistímabilinu fótbraut
Argentínumanninn Diego
Maradona, var ekki alveg að-
gerðalaus að þessu sinni.
Sauma þurfti tvo spor í fót
Maradona, eftir að „slátrar-
inn“ sparkaði í hann. Mar-
adona var æfur eftir leikinn og
sló þá einn leikmanna Bilbao
niður með olnboganum.
Um 100 þúsund áhorfendur
voru á vellinum og urðu vitni
að leiðinlegum leik og hríka-
legum ólátum eftir hann.
Sjö áhangendur Barcelona
fórust í bflslysi á ieið sinni á
leikinn og af þeim sökum var
einnar mínútu þögn í upphafi
léiksins, hinum látnu til virð-
ingar.