NT - 18.05.1984, Side 2
Grænmetisverslun ríkisins:
Nýju kartöflurnar
seldust upp í gær
- „Vissum ekki að Hagkaup hefðu áhuga á nýjum kartöflum“
■ Nýjar kartöflur frá Egypta-
landi og ísrael komu á markaö-
inn á Reykjavíkursvæðinu í
gær. Ekki fengu þó allar versl-
anir nýjar kartöflur. Meðal
þeirra sem ekki urðu aðnjótandi
nýju kartaflanna í gær, voru
verslanir Hagkaupa. Gísli
Blöndal hjá Hagkaupum sagði í
spjalli við NT í gær, að það hefði
yfírleitt alltaf tíðkast, bæði hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna og
Grænmetisverlsun ríkisins, að
þegar takmarkað magn væri til
af einhverri vörutegund væri
skammtað í búðirnar. „En nú er
greinilega komin ný úthlutunar-
regla“, sagði Gísli. „Og það er
sennilega enn eitt dæmið um
það, hversu erfítt og vitlaust
þetta einokunarsölukerfí er.“
„Við gerðum ekki ráð fyrir að
Gísli hefði áhuga“, sagði Gunn-
laugur Björnsson hjá Grænmet-
isversluninni, þegar við inntum
hann eftir ástæðunni fyrir því að
Hagkaup fengu engar kartöflur
úrþessari sendingu.
Gunnlaugur sagði ennfremur
að Gísli hefði átt að vita af þess-
um kartöflum eins og aðrir.
Hins vegar kæmu nýjar kar-
töflur í næstu viku aftur og þá
ættu Hagkaup að geta fengið
eins og aðrir.
Nýju kartöflurnarseldust upp
hjá Grænmetisversluninni í dag
en von er á nýrri sendingu á
markaðinn næsta fimmtudag.
Verður sú sending mun stærri,
eða um 65 tonn. Þær kartöflur
koma frá Ítalíu og Spáni en eru
eins og ísraelsku og egypsku
kartöflurnar sem voru á boð-
stólum í dag af uppskeru þessa
árs.
Beðið
eftir
útsæði
■ Útsæðiskartöflur voru loks fáanlegar aftur í Grænmetisverslun landbúnaðarins í gær eftir alllangt hlé.
Snemma í gærmorgun stóð fólk í langri röð og beið eftir útsæðinu sínu.Ekki reyndist þó vera til nóg handa
öllum og urðu sumir að hverfa tómhentir heim aftur. Að sögn Gunnlaugs Björnssonar hjá Grænmetisversl-
uninni, er þó von á nýrri sendingu af útsæðiskartöflum í næstu viku og verða þær trúlega seldar á fimmtudag.
Gunnlaugur sagði að erfítt væri að áætla eftirspurnina eftir útsæði, nú þegar væri lausasalan orðin um þriðj-
ungi meiri en á allri vertíðinni í fyrra. NT-mynd: Sverrir
Hver verður
skákforseti?
■ Það hefur löngum staðið
nokkur styr um forseta Skák-
sambands íslands, sem best
sést á því hve tíð mannaskipti
eru á forsetastólnum. Gunnar
Gunnarsson hefur nú gegnt
forsetastarfinu um tveggja ára
skeið og á aðalfundi, sem hald-
inn verður í lok þessa mánað-
ar, mun hann ef að líkum lætur
sækjast eftir endurkjöri til að
sitja þriðja árið. Um hann
mun hins vegar ekki ríkja ein-
ing meðal skákmanna og nú
leita nokkrir úr þeirra hópi
logandi ljósi að boðalegum
mótframbjóðanda. Tveir hafa
verið nefndir til sögunnar,
Logi Kristjánsson, sem í ára-
tug eða meira hefur verið
bæjarstjóri á Neskaupstað en
er nú í þann mund að flytjast
búferlum til Reykjavíkur, og
Þorsteinn Þorsteinsson, vara-
formaður Skáksambandsins,
en hann þykir hafa gegnt vara-
formennskunni með sóma. Hvor-
ugur mun hafa gefið endanlegt
svar, en sýnt þykir að annar
þeirra að minnsta kosti fari
fram
Friðrik
sagði
Nei, takk
■ Friðrik Ólafsson skákmað-
ur hefur nú eins og alþjóð er
kunnugt sótt um starf skrif-
stofustjóra Alþingis og telja
margir það til marks um að
hann vilji þar með hætta að
mestu afskiptum af skákinni,
að minnsta kosti á alþjóðavett-
vangi. Hann mun þó ekki alveg
gleymdur úti í hinum stóra
heimi þó að hann hafi ekki haft
sig mikið í framrni síðan Cam-
pomanes frá Filippseyjum
felldi hann í forsetakjöri hjá
FIDE. Nýlega sendi Compo-
manes þeim Karpov og Kaspar-
ov, sem heyja munu einvígi
um heimsmeistaratitilinn í
skák í Sovétríkjunum í haust
lista með nöfnum þeirra sem
til greina koma við val á
yfirdómara einvígisins. Á list-
anum var nafn Friðriks Ólafs-
sonar, sem þó mun aldrei hafa
boðist til að taka dómarastarf-
ið að sér. Löngu eftir að listinn
var sendur til keppendanna
hafði Campomanes samband
við Friðrik og spurði hvort
hann væri ekki til í að taka
starfið að sér ef hann yrði
útnefndur. Friðrik mun hafa
tekið arftaka sínum í embætti
fálega og sagt nei.
Til hamingju Haukur!
■ Haukur Morthenshélt vel heppnaða afmælistónleika á
sextugsafmælinu í gær. Hér sést hann fyrir framan afmælistert-
una ásamt eiginkonu sinni. Það vantar raunar alveg 60
afmæliskerti á tertuna en ætli kappinn hafí ekki bara blásið þeim
af.
NT-mynd Róbert
Gnúpverjar:
Fá hitaveit-
una ókeypis
- því heygæði aukast svo
mikið með upphitun á lofti
til súgþurrkunar
■ Á vegum hinnar nýstofnuðu
hitaveitu Gnúpverja hefur verið
reiknað út af sérfræðingum að
upphitun á lofti til súgþurrkunar
muni skila um 10% auknum hey-
gæðum, sem jafngildir um 50
þús. króna verðmæti fyrir hvert
meðalbú á ári.
Eins og áður hefur komið
fram í NT, er áætlað að greiðsla
fyrir heita vatnið frá veitunni
verði um 50 þús. kr. á ári, að
meðaltali. Samkvæmt því líta
Gnúpverjar svo á, að þessi
hagnaður þeirra af bættum heyj-
um (sem m.a. fæst með minni
kjarnfóðurkostnaði) komi til
með að greiða fyrir þá allan
kyndingarkostnaðinn í framtíð-
inni, að sögn Guðmars Guð-
jónssonar á Stóra-Hofi.
í frétt NT um stofnun hita-
veitufélags Gnúpverja nýlega,
urðu þau mistök að rangt var
farið með tölu um stofngjald.
Hið rétta er, að komið hafa fram
tillögur frá hönnuði veitunnar
um að stofngjöld til fjármögnunar
hitaveituframkvæmdanna verði
50 þús. krónur á hvert býli (ekki
25 þús. eins og misprentaðist í
NT), en þetta hefur enn ekki
verið að fullu ákveðið, að sögn
Guðmars.
Öfrískar konur gætið ykkar:
Rauðir hundar ber-
ast frá Þýskalandi
■ Rauðir hundar hafa stungið
sér niður á einu barnaheimila í
Reykjavík, og er talið að veikin
hafí borist hingað frá Þýska-
landi. Ef þessi faraldur nær að
breiðast út gæti hann orðið í
landinu í eitt til eitt og hálft ár.
I frétt frá landlækni segir að
á undanförnum árum hafí mót-
efni gegn rauðum hundum verið
mælt í blóði u.þ.b. 80% ís-
lenskra kvenna og stúlkna á
aldrinum 12 til 40 ára á landinu.
Allflestum konum sem ekki
hafa mótefni hefur verið boðin
bólusetning en sumar hafa ekki
þegið hana. Fóstri sem verður
fyrir smiti vegna rauðra hunda
á fyrstu þrem mánuðum með-
göngu er veruleg hætta búin.
Ollum ófrískum konum sem
eru á fyrstu þrem mánuðum
meðgöngu og ekki hafa verið
mældar með tilliti til mótefna
gegn veikinni er eindregið bent
á að hafa samband við næstu
heilsugæslustöð, heimilislækni
eða Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur og gangast undir mótefna-
mælingu.
Leiðrétting
■ Vegna ummæla sem bruna-
vörður hafði í samtali við NT á
miðvikudag, hafði Baldur Bald-
ursson 1. fulltrúi brunavarða sam-
band við blaðið og sagði það ekki
rétt að yfirmenn Borgarspítala
hefðu ekki áhuga á að halda
námskeið'fyrir brunaverði. Hins-
vegar hefði staðið á viðurkenningu
borgaryfir\'alda um að námskeið
af þessu tagi yrðu metin til aukinna
réttinda og starfsrevnslu.