NT - 18.05.1984, Page 11
Minningarhljómleikar um Dorriét Kavanna:
Tveir af fremstu söngvur
um landsins saman á sviði
■ Tveir af fremstu söngvur-
um íslendinga, þeir Kristinn
Sigmundsson og Kristján Jó-
hannsson, munu syngja saman
í fyrsta skipti á minningartón-
leikum um Dorriét Kavanna,
eiginkonu Kristjáns, sem lést í
vetur, í Háskólabíói á morgun,
laugardag, og í Skemmunni á
Akureyri á sunnudaginn. Jafn-
framt mun syngja á hljómleik-
unum sópransöngkonan Ant-
onella Pianezzola við undirleik
eiginmanns síns Maurizio Bar-
bacini, sem líka leikur undir
hjá Kristjáni, en Jónas Ingi-
mundarson leikur undir söng
Kristins. Állir fyrrgreindir að-
ilar koma fram án endurgjalds
og mun ágóðinn af hljómleik-
unum renna óskiptur í minn-
ingarsjóð um Dorriét Kav-
anna, óperusöngkonu, sem
lést í vetur.
„Það er tvennt sem vakir
fyrir okkur með stofnun þessa
sjóðs. í fyrsta lagi viljum við
heiðra þessa frábæru söng-
konu, sem unni fslandi kannski
meira en Islendingar yfirleitt,
og svo viljum við styrkja unga
íslenska söngvara til náms er-
lendis - nógu myndarlega til
þess að þeir komist í læri hjá
bestu kennurum úti í heimi en
það kostar peninga," sagði
Valur Arnþórsson, einn þeirra
félaga Dorriét, sem gekkst fyr-
ir stofnun sjóðsins, á blaða-
mannafundi í vikunni.
„Þetta verður myndarlegasti
sjóður af þessu tagi á íslandi“,
sagði Kristján Jóhannsson,
sem einnig var á blaðamanna-
fundinum. „Það vita allir sem
numið hafa söng erlendis, að
það er mjög dýrt. Og við vitum
líka að hér hafa verið mikil
efni sem ekki hafa komist til
náms erlendis eða hafa neyðst
til að hrökklast frá námi áður
en þeir hafa fengið það út úr
því sem hægt er að fá. Sá sem
þennan styrk hlýtur mun ekki
þurfa að óttast slíkt,“ sagði
Kristján.
Hann sagði jafnframt að á-
kveðið væri að gera miklar
kröfur til styrkþeganna. Hald-
in yrði sérstök keppni með
dómnefnd, sem skipuð yrði
valinkunnum tónlistar-
mönnum. „í>að verður tekið
tillit til alls, sönghæfileika,
útlits og sviðsframkomu. Þctta
verða að vera söngvarar sem
eiga möguleika á að ná heims-
klassa," sagði Kristján.
Um efnisskrá hljómleikanna
var ekki búið að ákveða annað
en það, að Kristján og Anton-
iella myndu syngja saman dú-
etta úr Tosca og Madam Butt-
erfly.
Flugleiðir, Sambandið,
KEA og Bókaklúbburinn Ver-
öld hafa styrkt stofnun Minn-
ingarsjóðs Dorriét Kavanna.
■ Kristján, Kristinn og Antonella ásamt Barbacini, sem verður
undirleikari á hljómleikunum ásamt Jónasi Ingimundarsyni.
NT-mynd Ari.
Mótettukórinn í Kristskirkiu
■ „Þegar ég byrjaði með
þennan kór voru menn mjög
svartsýnir á bjartsýnina í mér,
töldu útilokað að finna fólk
sem stæðist þær miklu kröfur
sem ég gerði,“ sagði Hörður
Áskelsson stjórnandi Mótettu-
kórs Hallgrímskirkju í stuttu
spjalli við NT, en vortónleikar
kórsins verða í Kristskirkju í
Landakoti á sunnudaginn kl.
17.00. Þar með lýkur öðru
starfsári kórsins. Kröfurnar
, eru m.a. að fólk skal vera
undir fertugu og kunna nótna-
lestur og undirstöðuatriði
raddbeitingar.
Efnisskráin er viðamikil og
forvitnileg. Fyrst skal nefna
mótettuna Jesu meina Freude
eftir Johan Sebastian Bach, Te
deum eftir Benjamin Britten,
sem líklega hefur ekki verið
flutt hérlendis áður. Einnig
verða fluttar mótettur eftir
Hassler, Kuhnau og Poulec og
sálmalög í útsetningum Jóns
Nordál, Þorkels Sigurbjörns-
sonar og Jóns Hlöðvers
Áskelssonar og fluttir verða
kaflar úr Biblíuljóðum
Dvoráks. „Ég hef oft verið
spurður þessarar spurni ngar og
ég veit ekki enn hvernig á að
svara henni þannig að allir séu
með á nótunum,“ sagði
Hörður, þegar hann var spurð-
ur hvað væri mótetta og hvers
vegna kórinn héti Mótettukór.
„En mismunurinn á mótettu
annars vegar og kantötu hins
vegar er nokkuð augljós, þar
sem mótetta er fyrst og fremst
kórverk, en í kantötum leika
einsöngvarar stór hlutverk.
Sálmalag er hins vegar ekki
mótetta, mótettan er viðameiri
og flóknari í sniðum."
■ Það er 14 ára stúlka, Stein-
unn Þorsteinsdóttir sem fer
með einsöngshluverk í Te
Deum Brittens, en trúr breskri
hefð samdi hann verkið fyrir
drengjarödd. Steinunn er ekki
alveg ókunn söng og sviði því
hún hefur áður komið fram í
Litla sótaranum eftir Britten
hjá íslensku óperunni. „Ég
hefði auðvitað getað fengið
þjálfaðan sópran til að syngja
einsöngshlutverkið," sagði
Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandinn, Hörður Áskelsson er lengst til vinstri.
NT-mynd Ari
Hörður, „en ég valdi þennan
kostinn enda finnst mér hann
standa verkinu nær.“
í Biblíuljóðum Dvoráks
syngur einsöng 28 ára gamall
Þjóðverji, Andreas Schmidt
barýtón. Þrátt fyrir ungan
aldur hefir Schmidt nú verið
ráðinn við óperuna í Berlín og
hann hefur unnið til margra
verðlauna. Schmidt er nem-
andi Dietrich Fischer Diskau,
eins fjölhæfasta söngvara sam-
tímans og Diskau hefur látið
falla mörg og stór orð um
þennan nemanda sinn og sumir
eru farnir að tala um hann sem
væntanlegan arftaka Diskaus,"
sagði Hörður Áskelsson.
Auk þeirra einsöngvara sem
nú hafa verið nefndir kemur
frain í einsöngshlutverki söng-
konan Ásdís Kristmundsdótt-
ir. Aðgöngumiðar verða seldir
í ístóni, í Hallgrímskirkju og
við innganginn og kosta 200
krónur. Félagsskírteini List-
vinafélags Hallgrímskirkju
gilda sem aðgöngumiðar og
verða tekin frá sæti fy rir félags-
menn þar til 10 mínútum fyrir
tónleika.
Sinfóní-
aná
Akur-
eyri
-ogheldursíðan
áframítónleikför
um Mið-Norður-
land
■ Sinfóníuhljómsveit
íslands heldur tónleika
á Akureyri í kvöld kl.
21.00 í íþróttaskemm-
unni. Á efnisskránni
eru „klassíska" sinfóní-
an eftir Sergei Proko-
fév, Píanókonsert nr.
26 í D-dúr, K.537,
„Krýningarkonsertinn"
eftir W.A.Mozart, og
Fantasía fyrir píanó,
kór og hljómsveit op.80
eftir L.v. Beethoven.
Einleikari á píanó
verður hinn hcimsfrægi
Austurríkismaður, Jörg
Demus, en einsöngvar-
ar Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir, Guðrún Krist-
jánsdóttir, Þuríður
Baldursdóttir, Michael
Clarke, Sigurður
Björnsson, og Knútur
Ottestedt. Fram koma
Passíukórinn á Akur-
eyri, kirkjukór Akur-
eyrar og félagar úr
karlakórnum Geysi.
Kórstjóri er Roar
Kvam en stjórnandi á
tónleikunum verður
Páll P. Pálsson. Að
Ólöfu Kolbrúnu og Sig-
urði Björnssyni undan
skildum, eru allir ein-
söngvararnir frá Akur-
eyri. Annað kvöld kl.
21.00 leikur svo hljóm-
sveitin á Ólafsfirði, á
sunnudag kl. 15.00 .á
Laugum í S-Þingeyjar-
sýslu, og kl 21.00 á
Húsavík. Á mánudag-
inn kl. 21.00 verða tón-
leikar á Siglufirði og á
þriðjudag kl. 21.00 á
Sauðárkróki.
Á öllum þessum tón-
leikum verður sama
efnisskráin; Forleikur
að óperuni Brottnámið
úr kvennabúrinu, og
aría úr sömu óperu, All-
eluja úr Exultate jubi-
late, ítalska sinfónían
eftir Mendelsohn,- I.
þáttur úr sellókonsert
eftir Boccerini, Fuglinn
í fjörunni eftir Jón Þ.ór-
arinsson, Lindin eftir
Eyþór Stefánsson.
Gígjan eftir Sigfús Ein-
arsson og Klassíska sin-
fónían eftir Prókofév.
Einsöngvari verður
Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og einleikari á
selló Pétur Þorvalds-
son. Stjórnandi á tón-
leikunum verður Páll P.
Pálsson.