NT - 18.05.1984, Blaðsíða 12
í ?»-m »'iV l’llt'^ Föstudagur 18. mai 1984* '• 12
I [lL Útvarp — — Sjónvarp
Útvarpið föstudag kl.14.45:
Nýtt undir
nálinni
- Sonur Bobs Marleys farinn að syngja inn á plötur
■ Nýtt undir nálinni heitir
þáttur Hildar Eiríksdóttur,
en þá kynnir hún nýútkomnar
hljómplötur, sem útvarpinu
hefur borist.
Hildur sagði að yfirgnæf-
andi væru popp-plöturnar, en
hún léki líka úrval af annarri
léttri músík, en klassískar
plötur eru ekki í þessum
þætti.
- Þjóðlög og létt klassísk
músík er það sem ég kemst
næst klassíkinni, sagði
Hildur, en ég kynni allar
íslenskar plötursem komaút.
Pátturinn er 45 mínútur, og
ég kem svona um það bil 12
lögum fyrir í honum með
smákynningum inn á milli.
- Það sem mér þykir einna
skemmtilegast að kynna í
þættinum á föstudaginn, er
lag sem sungið er af syni
Bobs Marley, reggae-söng-
varans fræga sem lést fyrir
nokkru. Drengurinn er lík-
lega ekki nema 12 ára þegar
hann syngur inn á plötuna.
hann heitir David, og lista-
mannsnafnið hans er David
„Ziggy" Marley. David þykir
mjög efnilegur og er hann
farinn að semja lög sjálfur,
og flytur mjög skemmtilega.
Annars fáið þið að heyra í
honum á föstudaginn og
dæma sjálf sagði Hildur, en
mér finnst hann ægilega
skemmtilegur.
■ Hildur Eiríksdóttir.
(NT-mynd Arni Sæberg.)
James Robertson Justice hressir upp á sjúkling.
rx
Sjónvarp föstudag kl. 22.
Viskíflóð
■ Föstudagsmyndin Viskí- enzie.ogleikstjórier Alexand- Sagan gerist á einni af
flóð (Whisky Galore) er bresk er MacKendrick. Suðureyjum vestur af Skot-
gamanmynd frá 1948. Hún er Myndin var gerð 1948 og er landi. Þegar heimsstyrjöldin
gerðeftirsöguComtonsMack- svart/hvít. síðari skellur á, sjá eyjar-
skeggjar fram á það, að verða
að sitja uppi þurrbrjósta. Það
verður léttara yfir rnönnum
þegar skip strandar þar með
viskífarm!
1 aðalhlutverkum eru: Basil
Radford, Joan Greenwood,
Jean Cadell, Gordon Jackson
(Hudson-í Húsb. og hjú) og
James Robertson Justice. Þýð-
andi er Jón O. Edwald.
Utvarpið föstudag kl. 9.05:
| Sjónvarp föstudag kl. 20.50:
„Jakob“
Þröstur J. Karlsson flytur
seinni hluta sögunnar
ADOFINNI
- einu sinni í viku
allan ársins hring
■ Á fimmtudags- og föstu-
dagsmorgun les Þröstur J.
Karlsson frumsamda sögu sem
hann kallar „Jakob“. Höf-
undur segir aðsagan af Jakobi
sé sjálfstætt framhald af
„Snata-bókunum“en þærværu
12 talsins.
- Um söguna Jakob get ég
sagt það, sagði Þröstur, að hún
fjallar um gamlan mann. Per-
sónur í Snatabókunum voru
eigöngu dýr, en nú er það
gamall maður, sem „Snati
gamli" segir frá. Gamli maður-
inn er orðinn ellimóður og
getur ekki hugsað um sig
sjálfur, en svo skeður það - að
gamli maðurinn fer að taka
tennur, og kemur ýmislegt
broslegt fyrir í sambandi við
það, sagði höfundur.
Þröstur J. Karlsson ætlar að
gefa seinnaút bókina Jakob,og
verður hún 19. bók hans. Aðal-
lega hafa þær verið barnabæk-
ur, en þó er þarna líka ein
Ijóðabók, sem heitir Frálands-
vindar. Þröstur sagðist nú vera
með skáldsögu fyrir fullorðna
í smíðum, - og það frekar tvær
en eina.
■ Þröstur J. Karlsson.
(NT-mynd Róbert)
■ I tvö eða þrjú ár hafa verið
á föstudögum í Sjónvarpinu
þættir, sem nefndir hafa verið
„Á döfinni". Umsjónarmaður
þáttanna er Karl Sigtryggsson
og lesari Birna Hrólfsdóttir.
- Meginefni þáttarins Á
döfinni, segir Karl Sigtryggs-
son, er unnið úr fréttatilkynn-
ingum, sem berast hingað á
Sjónvarpið. Aðallega í sam-
bandi við listir og menningu. í
þættinum eru kynntar list-
sýningar ýmiss konar og tón-
leikar, en ekki hefur verið
pláss fyrir allt efni sem sent
hefur verið hingað. Við verð-
um því að sleppa mörgu, svo
sem tilkvnningum um basara
og dansleiki o.fl. Svolítið
höfum við líka veriðmeðbóka-
fregnir, aðallega fyrir jólin.
Það má segja að þátturinn
gegni svipuðu hlutverki og
„dagbók“ í blöðunum.
- Þetta var inni í fréttum á
sínum tíma, sagði Karl, en
varð svo víðamikið að við
réðum ekki við þetta í frétta-
tímanum, svo þannig varð
þátturinn til.
Þátturinn er einu sinni í viku
allan ársins hring.
■ Karl Sigtryggsson dag-
skrárgerðarmaöur.
(Mynd GE)
Föstudagur
18. maí
7.00 Veðurfregnír. Fréttir. Bsn Á
virkum degi. 7.25 Leiktimi.
Endurt. þáttur Marðar Ámasonar
frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð- Gyða Jónsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Jakob", smásaga eftir Þröst
Karlsson, seinni hluti. Hötundur
les.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. for-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 Mér eru fornu minnin kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um þáttinn (RÚVAK).
11.15 Tónleikar
11.35 Heimaslóð. Ábendingar um
ferðaleiðir. Umsjón: Ari Trausti
Guðmundsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar, seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (27).
14.30 Miðdegistónleikar Adelaide-
sinfóniuhljómsveitin - og kórinn
flytja atriði úr þriðja þætti óperett-
unnar „Káta ekkjan“ eftir Franz
Lehar, John Lanchbery stj.
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur
Eiríksdóttir kynnir nýútkomnar
hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar.16.20 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Heinz
Holliger og Concertgebouw-hljóm-
sveitin í Amsterdam leika Obó-
konsert í C-dúreftir Joseph Haydn,
David Zinman stj. TThomas Blees
og Kammersveitin í Pforzheim
leika Sellókonsert í G-dúr eftir
Nicolo Porpora, Paul Angerer stj.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjómendur:
Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig-
urðardóttir.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Það var hann
Eggert Ólafsson Björn Dúason
tekur saman frásöguþátt og flytur.
b. Kammerkórinn syngur Stjórn-
andi: Rut L. Magnússon. c. Lffið í
Reykjavík Eggert Þór Bemharðs-
son les hluta úr grein eftir Jökul
Jakobsson, er birtist í tímaritinu
„Llfoglist" 1953.
21.10 Frá samsöng Karlakórsins
Fóstbræðra í Háskólabíói 26.
apríl s.l.
21.35 Framhaldsleikrit: „Hinn
mannlegi þóttur“ eftir Graham
Greene Endurtekinn II. þáttur:
„Percival læknir telur sig hafa
fest í fisk“ Leikgerð: Bernd Lau.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Traðir Umsjón: Gunnlaugur
Yngvi Sigfússon.
23.15 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar
Jónassonar
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 hefst með
veðurfregnum kl. 01.00 og lýkur kl.
03.00.
Föstudagur
■VT 18. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir.
16.00-17.00 Bylgjur Stjórnandi: Ás-
mundur Jónsson.
17.00-18.001 föstudagsskaþi
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2
Stjórnandi: Ólafur Þóröarson. Rás-
ir 1 og 2 samtengdar með veður-
fréttum kl. 01.00 og heyrist þá í
Rás 2 um allt land.
Föstudagur
18. maí
19.35 Umhverfis jörðina á 80
dögum 2. þáttur. Þýskur
brúðumyndaflokkur. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir. Sögumaður
Tinna Gunnlaugsdóttir.
19.45 Fréttir á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Böm í bíl Fræðslumynd frá
Umferðarráði um notkun bilbelta
og örvggisstóla.
20.50 Á döfinni Umsjónarmaður
Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna
■ Hrólfsdóttir.
21.05 í kjölfar Sindbaðs Fyrsti hluti.
Bresk kvikmynd í þremur hlutm
um óvenjulega sjóferð frá Óman
við Arabíuflóa til Indíalanda og
Kína. Farkosturinn var arabískt
seglskip og tilgangur leiðangursins
að kanna sagnirnar um ferðir Sind-
baðs sæfar sem segir frá í Þúsund
og einni nótt. Leiðangursstjóri var
Tim Severin. Þýðandi Gylfi
Pálsson.
22.00 Viskiflóð (Whisky Galore)
Bresk gámanmynd frá 1948 gerð
eftir sögu eftir Comton Mackenzie.
Leikstjóri Alexander MacKendrick.
Aðalhlutverk: Basil Radford, Joan
Greenood, Jean Cadell, Gordon
Jackson og James Robertson
Justice. Þegar heimsstyrjöldin síð-
ari skellur á sjá eyjarskeggjar á
einni Suðureyja vestur af Skotlandi
fram á aö verða að sitja uppi
þurrbrjósta. Það léttist þvi á þeim
brúnin þegar skip strandar með
viskífarm. Þýðandi JónO. Edwald.
Fréttir í dagskrárlok