NT - 18.05.1984, Page 13
Fóstudagur 18. maí1984 13
Utvarp - Rás I og II - laugardagur kl. 00.50-03.
A næturvaktinni
- Hafið blað og blýant við hendina!
■ Báðar rásir útvarpsins eru
samtengdar á miðnætti á laug-
ardagskvöldi, svo fólk um allt
land getur hlustað á „Á nætur-
vaktinni", sem stjórnað er af
Kristínu Björgu Þorsteinsdótt-
ur. Hún byrjaði með þáttinn
fyrir áramót og hefur haft hann
um hverja helgi síðan.
Þátturinn er tveggja tíma
langur (þegar veðurfregnir eru
frádregnar) svo margar plötur
þarf að velja til að skemmta
næturhröfnunum. Enda sagð-
ist Kristín vera með þetta verk-
efni í höfðinu meira og minna
alla vikuna.
- Ég vinn á Sjónvarpinu - á
lista- og skemmtideild, sagði
Kristín Björg, þegar við á NT
hringdum til hennar til að spyrja
hana um þáttinn Á næturvakt-
inni. En hún sagðist þurfa að
eyða miklum tíma í að leita að
plötum í plötusafni útvarpsis
og einnig á Rás 2, og svo vinn
ég þetta mikið heima á laugar-
dögum.
- Ég bendi fólki á að hafa
við hendina blað og blýant,
þegar það hlustar á næturút-
varpið, því að ég ætla að prófa
að vera með uppskriftir að
smáréttum, sem gott er að
hressa sig á á næturvaktinni,
en annars er þetta léttur mús-
íkþáttur, eins og þeir vita,
sem hafa hlustað.
- í>ví miður get ég lítið ans-
að í símann þessa tvo tíma, en
það er oft hringt, og sérstak-
lega utan af landi, því að þarna
eru báðar rásir útvarpsins sam-
tengdar, svo að þetta heyrist
um allt land.
- Ertu ekki neitt einmana
svona á nóttunni?
-Nei, nei, það er alltaf
eitthvað af fólki hérna, a.m.k.
einn góður tæknimaður. Ég er
svo kominn í háttinn svona um
kl. 4, en mér gengur vanalega
erfiðlega að sofna. Maður er
svo spenntur að það er ómögu-
legt áð koma sér í ró, ég fer
stundum að prjóna þegar ég
kem heim - svei mér þá, sagði
Kristín og hló dátt. Nú þegar
veðrið fer að vera betra og
bjart er á nóttunni hugsa ég að
ég fari að fá mér næturgöngu
eftir næturvaktina.
■ Kristín Björg Þorsteins-
dóttir
NT-mynd Árni Sæberg
BOTERO
;H"Nlg -ONSTAD KUNSTSENrER HOVIKODÐEN 6. UARS ■ t3. APfHI. 1960
■ Frá heimilislífi Quinn-hjónanna: Sam læknir, tengdamamma hans og eiginkonan Molly.
Sjónvarp laugardag kl. 20.35:
í blíðu og stríðu
Útvarp laugardag kl. 20.40:
Á slóðum Johns Steinbeck
aldri (27 ára), en frægð vann
■ Haustið 1983 voru í ís-
lenska sjónvarsþættir. sem
kallaðir voru „í blíðu og stríðu",
Á ensku heita þættirnir „It
Takes Two“.
Nú fáum við meira að sjá um
heimilislífið hjá Quinn-hjón-
unum og þeirra fólki. Þetta er
bandarískur gamanmynda-
flokkur og á að gerast í Chi-
cago.
Dr. Sam Quinn, sem er
yfirlæknir skurðlækningadeild-
ar á stórum spítala, er leikinn
af Richard Crenna, en Molly
konu hans leikur Patty Duke
Astin.
Lækninum þótti það gott
hjá konu sinni þegar hún
fór að stunda framhaldsnám
við háskóla, er börnin stálpuð-
ust, en allt í einu er hún komin
með lögmannspróf og komin í
embætti sem saksóknari - allt-
af önnum kafin og má ekkert
vera að því að hugsa um heim-
ilis- og hjónalífið. Lækninum
þótti þetta súrt í brotið, en
tengdamamma hans bjargaði
þó hlutunum við á heimilinu,
eldaði mat og leit til með
unglingunum, sem auðvitað
höfðu við sín vandamál að
stríða.
Læknirinn Sam og
lögmaðurinn
MollyQuinn og
heimilislíf þeirra
Tengdamamman er leikin af
frægri grínleikkonu, Billie
Bird, dótturina Lisu leikur
Helen Hunt, Anthony
Edwards leikur soninn Andy
og Richard McKenzie leikur
vin Sams læknis, Walter Chai-
ken, sálfræðing við sama
sjúkrahús og Sam vinnur við.
■ Anna Svorradóttir er
hlustendum að góðu kunn.
Hún hefur farið víða um heim
og segir skemmtilega frá því
sem fyrir augu ber. Nú ætlar
hún að segja frá ferðalagi um
Kaliforníu, og nefnir frásögn-
ina „Á slóðum Johns Stein-
beck."'
John Steinbeck rithöfundur
fékk Nóbelsverðlaun í bók-
menntum 1962. Hann fæddist
í Salinas í Kaliforníu 27. febr.
árið 1902. Fyrstu bækur hans
komu út er hann var á þrítugs-
hann sér fyrst fyrir alvöru með
Tortilla Flat (Kátir voru
karlar) 1935. Bækur hans hafa
komið út margar á íslensku,
svo sem Kátir voru karlar,
Þrúgur reiðinnar. Mýs og
menn o.fl. o.fl.
í Salinas og Monterey og
annars staðar á heimáslóðum
Steinbecks í Kaliforníu er
margt sem minnir á hann og
hans er enn minnst þar. Um
það fáum við að heyra í frásögn
Önnu Snorradóttur.
■ Anna Snorradóttir
-seinni bíómyndin
á laugardagskvöldið
■ Seinni myndin á laugar-
dagskvöldið segir frá konum í
Kína. Petta er saga tveggja
leikkvenna, sem bindast ungar
vináttuböndum og þola lengi
saman súrt og sætt. Þarna segir
frá ungri konu, sem hrekst
undan tengdafólki sínu og leit-
ar hælis hjá leikflokki, sem
ferðast um. Þar eignast hún
vinkonu sem reynist henni vel.
Síðar verða þær viðskila, en
eftir byltinguna 1949 liggja
leiðir þeirra saman á ný.
Aðalhlutverk eru í höndum
Xie Fang, Cao Yindi og Li
Wei. Þýðandi er Ragnar Bald-
ursson.
Sjónvarp laugardag kl. 22.40:
Tvær leikkonur
■ Xie Fang og Cao Yindi í hlutverkum sínum.
Laugardagur
19. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnlr.
7.25 Leikfiml. Tónleikar.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Jón Isleifsson talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleik-
ar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög
sjúklinga frh.
11.20 Hrímgrund. Útvarp barnanna.
Stjórnandi: Sigríður Eyþórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.
14.00 Listalíf Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.10 Listapopp -Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurlekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: „Hinn
mannlegi máttur“ eftir Graham
Greene III. þáttur: „Brúðkaup og
dauði“ Leikgerð: Bernd Lau. Þýð-
andi: Ingibjörg Þ. Stephensen.
Leikstjóri: Arni Ibsen. Leikendur:
Helgi Skúlason, Arnar Jónsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Er-
lingur Gíslason, Helgi Björnsson,
Róbert Arnfinnsson, Rúrik Har-
aldsson, Steindór Hjörleifsson,
Sólveig Pálsdóttir, Karl Guö-
mundsson, Sigurjóna Sverrisdótt-
ir, Jóhanna Norðfjörð, Randver
Þorláksson, Jón S. Gunnarsson,
Gísli Guðmundsson, Þorsteinn
Gunnarsson og Jóhann Sigurðar-
son. (III. þátturveröurendurtekinn,
föstudaginn 25. þ.m. kl. 21.35).
17.00 Fréttlr á ensku.
17.10 Sfðdeglstónleikar.
18.00 Miðaftann f garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Guðs reiði". Útvarpsþættir
eftir Matthías Johannessen. III.
hluti: „Vax, kopar og hold". Stjórn-
andi: Sveinn Einarsson. Flytjendur
auk hans: Þorsteinn Gunnarsson,
Borgar Garðarsson, Kristín Anna
Þórarinsdóttir, Pétur Einarsson og
Guðmundur Magnússon, sem er
sögumaður.
20.00 Unglr pennar
20.10 Góð barnabók Umsjónarmað-
ur. Guðbjörg Þórisdóttir.
20.40 „Á slóðum John Steinbecks"
Anna Snorradóttir segir frá.
21.15 Á sveitalinunni Þáttur Hildu
Torfadóttur, Laugum i Reykjadal
(RÚVAK).
22.00 Þrár stuttar smásögur eftir
Garðar Baldvinsson „I gini
Ijónsins", „Orð" og „Spor í
snjónum". Höfundur les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Harmonikuþáttur. Umsjón:
Bjarni Marleinsson.
23.05 Létt sígild tónlist.
23.50 Fréttir. DagSkrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til
kl.03.00.
Laugardagur
19. maí
24.00-00.50 Listapopp (endurtek-
inn þáttur frá Rás 1) Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni Stjórn-
andi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Rás 2 um allt land.
sjonvarp
Laugardagur
19. maí
13.15 Enska bikarkeppnin Úrslita-
leikur Everton og Watford. Bein
útsending frá Wembleyleikvangi í
Lundúnum.
16.00 Hlé
íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
16.30 Enska knattspyrnan
18.10 Húsið á sléttunni Vegir ást-
arinnar I Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ing-
imarsson.
18.5 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.55 í bliðu og stríðu 1: þáttur.
Bandarískur gamanmyndaflokkur,
framhald fyrri þátta um lækninn
Sam (Richard Crenna) og lög-
manninn Molly Ouinn (Patty Duke
Astin) i Chicago og fjölskyldulif
þeirra. Þýðandi Þrándur Thor-
oddsen.
21.05 Þegar ritsiminn var lagður
vestur (Western Union) Banda-
rískur vestri frá 1941 gerður eftir
sögu Zane Greys. Leikstjóri Fritz
Lang. Aðalhlutverk: Randolph
Scott, Robert Young, Dean Jagger
og Virginina Gilmore. Flokkur
símamanna, sem er að leggja
ritsimalínu fráOmaha í Nesbraska
til Salt Lake City i Utah, lendir i
ýmsum ævintýrum og útistöðum
við bófa og indíána. Þýðandi Bogi
Arnar Finnbogason.
22.40 Tvær leikkonur Kínversk
biómynd. Leikstjóri Xie Jin. Aðal-
hlutverk: Xie Fang, Cao Yindi og Li
Wei. Saga tveggja leikkvenna sem
bindast ungar vináttuböndurn og
þola lengi saman súrt og sæt.
Síðar skilur leiðir í tvennum skiln-
ingi en eftir byltinguna ber fundum
þeirra saman á ný. Þýðandi Ragn-
ar Baldursson.
00.30 Dagskrárlok