NT - 12.06.1984, Qupperneq 28
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólartiringinn.
Greiddar verða 1000 krónur ffyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur ffyrir ábendingu sem leiðir
til bitastseðustu fróttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
Er sukk í
Lækurinn
jjSv.. .. .-«.'S
lokaður!
- borgarbúar nota ekki nógu mikið vatn
■ Heiti lækurinn í Reykjavík
er lokaður um þessar mundir
vegna vatnsleysis. í fyrri viku
gaf lögreglan út þá yfírlýsingu
aö mikill ólifnaður heföi ríkt við
lækinn en lokunin núna mun
ekki standa í neinu sambandi
við það. Vatnsleysi vegna lítillar
heitavatnsnotkunar borgarbúa
hamlar rennsli í Lækinn en í
hann kemur eingöngu frárennsl-
isvatn og engin stefna er til um
opnunarmál Læksins. Fólk sem
NT ræddi við niður við Lækinn
á föstudagsnótt var mjög
óánægt með lokunina.
„höllinni"
á þjóð-
hátíðinni
■ Það verður kátt í höll-
inni á 17. júní, þjóðhátíð-
ardegi íslendinga. Eftir
dansieik á Lækjartorgi
verður fólk með „sér-
stökum hætti“ inni í Laug-
ardalshöU og þar verður
dansi haidið áfram til kl. 3
um nóttina.
17. júní hátíðahöldin í
Reykjavík verða með
hefðbundnu sniði fyrir
hádegi að því er ómar
Einarsson framkvæmda-
stjóri 17. júní nefndarinn-
ar tjáði NT í stuttu samtali
í gær. Síðdegis verður svo
fjölskylduskemmtun á
Ámarhóli í umsjá Leikfél-
ags Reykjavíkur auk þess
sem ýmsar uppákomur
verða vítt og breitt um
miðbæinn.
Um kvöldið munu
hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar og HLH-
flokkurinn leika fyrir
dansi á Lækjartorgi fram
til hálftólf: en kl. 11 hefst
dansleikur í Laugardals-
höll sem standa mun fram
til kl 3 um nóttina. Þar
munu Stuðmenn og Pax
vobis sjá um fjörið. Þessi
dansleikur er haldinn í
samvinnu við Listahátíð.
Leikflokkurinn Svart og
sykurlaust ætlar að bjóða
fólki í ferðalag af torginu
inn í höll með „sérstökum
hætti“. Hvaða „sérstaka
hátt“ átt er við verður
ekki upplýst fyrr en að því
kemur.
Þess má geta að
skemmtun þeirri er Leik-
félag Reykjavíkur gengst,
fyrir á Arnarhóli síðdegis
á þjóðhátíðardaginn,
verður sjónvarpað um
kvöldið.
í fyrri viku gaf lögreglan út
þá yfirlýsingu að mikill ólifnað-
ur hefði ríkt við Lækinn aðfara1 -
nótt fimmtudags. Þar hefði ver-
ið stóðlifnaður og fólk hvað
utan í öðru. Mikið fjölmenni
var í Læknum umrædda nótt og
sat þar maður við mann. Hjá
Davíð Oddsyni borgarstjóra
fengust þær upplýsingar að ekki
væri til nein heildarstefna í
opnunarmálum Læksins en þar
hefði til þessa fyrst og fremst
komið fólk í góðum tilgangi. Þó
sagði Davíð að kunnugt væri
um að einstöku maður kæmi
þar að því er virtist til ódáða og
því orðið tímabært að skoða
þau mál að setja reglur um
opnunartímann.
Árni Gunnarsson yfirverk-
fræðingur hjá Hitaveitu Reykja-
víkur tjáði blaðinu að lokunin
kæmi einvörðungu til af vatns-
leysi. Þegar vatnsnotkun borg-‘
arbúa er lítil dettur niður það
afrennsli sem annars rennur í
lækinn. Sé það vilji borgaryfir-
valda að loka Læknum er mögu-
leiki að hleypa afrennslinu um
aðra pípu til sjávar en tili' þess
hefur ekki komið til emni. Ekk-
ert er gert til þess að halda
rennsli í Læknum þegar af-
rennsli þverr.
Sjóstangveiðimót í Vestmannaeyjum:
Hafnfirðingurinn dró
213.7 kg og sigraði
■ Konráð Jónsson frá Hafn-
arfirði var aflahæstur einstakl-
inga á fyrsta sjóstangveiðimóti
ársins. Hvítasunnumóti Sjó-
Ve sem fram fór í Vest-
mannaeyjum um helgina.
Konráð dró alls 213.7 kg af
físki. Aflahæst kvenna var
Aðalbjörg Bemódusdóttir frá
Vestmannaeyjum með 182.5
kg-
Þátttakendur í þessu 15.
Hvítasunnumóti voru 75 og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
Róið var á 15 bátum á laugar-
dag og sunnudag og var heild-
araflinn 7442 kg. Stærsta fisk-
inn dró Konráð Árnason frá
Akureyri, lúðu upp á 23.8 kg.
Aflahæsta sveitin var sveit
Sveins Jónssonar frá Vest-
- NT ræðir við
Lækjargesti
■ „Afhverju má fólkið ekki
njóta þess að baða sig í Læknum
eins og það hefur gert undan-
farna daga. Það er ansi hart ef
einn vitleysingur sem leggst til
sunds hérna í sjónum skuli
verða þess valdandi að Lækur-
inn er lokaður fyrir alla,“ sagði
viðmælandi NT sem staddur var
við heita Lækinn í Nauthólsvík
aðfaranótt laugardags. „Ef fólk
er á móti þessu þá þarf það ekki
að koma hingað og þyki lögregl-
unni voðalegt að stelpur séu
allsberar þá getur hún bara litið
undan. Áuðvitað er eitthvað
drukkið hérna en það er yfirleitt
ekki til ama“.
Mikill straumur af fólki var
að Læknum um helgina. Sumir
fóru í þeim tilgangi að taka
hressilegt bað en aðrir hugðust
bara kíkja á mannlífið í
Læknum. Hjá öllum þessum
var um fýluferð að ræða þar eð
Lækurinn var lokaður eins og
fram kemur annarsstaðar á síð-
unni. Hvergi lágu fyrir upplýs-
ingar um lokunina.
Almennt var það fólk sem
blaðið ræddi við í Nauthólsvík
mjög svekkt yfir lokuninni og
töldu margir að með þessu væri
verið að ræna frá borgarbúum
afskaplega heilsusamlegri laug
sem nota mætti hvort sem er á
nóttu eða degi.
'Minna var um glerbrot og
annað smárusl við Lækinn en
ætla mætti samkvæmt heimild-
um fjölmiðla af ástandinu.
■ Konráð Jónsson frá Hafnarfirði fær hér rembingskoss frá
Aðalbjörgu Rerndódusdóttur frá Vestmannaeyjum, en þau urðu
fengsælust í karla- og kvennailokki á fyrsta sjóstangveiðimóti
ársins, sem var haldið í Vestmannaeyjum um helgina.
NT-rajnd in^veidur Gbiadóttir
■ Sjóstangveiði er greinilega skemmtileg íþrótt, ef marka má svip þessa þátttakenda í fyrsta móti
ársins undan Vestmaunaeyjum. , N-r-mvnd Jóhann iiaiidorsson
mannaeyjum með 543 kg.
Aflahæsti báturinn var svo Sig-
urbjörn með 183.7 kg. á stöng.
Afli sjóstangveiðimanna var
mest þorskur. Óvenju lítið
veiddist af ýsu í þetta sinn, en
þeim mun meira af milliufsa.
Aflinn fór allur til Hraðfrysti-
stöðvar Vestmannaeyja, þar
sem hann var verkaður.