NT - 12.06.1984, Blaðsíða 8

NT - 12.06.1984, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 12. júní 1984 w að Ingibjörgu ■ Vegna yfirlýsingar nokk- urra íliúa á Oldugranda 3, sem NT birti nýlega, þess efnis aö Ingibjörg Hafberg, sem lögregl- an braust inn hjá á dögunum, stæöi fyrir hávaðaframleiöslu, vil ég biðja blaðið að koma eftirfarandi á framfæri: Ég bjó um alllangt skeið í santa stigagangi og Ingibjörg og varð aldrei íyrir neinu ónæði af hennar völdum. Ég hef rætt þetta mál við flesta íbúa stiga- gangsins, þar á meðal fólkið sem bjó í íbúðunum fyrir ofan Ingibjörgu og neðan og voru allir mér sammála um þetta. Með bestu kveðju og þökk fyrir birtinguna. Gunnar Jakobsson Bráðhress andi grín Guðrún Árnadóttir hringdi: ■ „Mig langar til að þakka bréfaskiptin þeirra Gylfa og húsmóður, svona grín er bráð- hressandi fyrir sálina. Bréf stúlknanna 5 virtist vera í örlítið meiri alvörutón, en greinilega hefur engin þeirra hugmynd um hvað alvöruheimilishald er. Það er sko ekki neitt sumarfrí aö vera húsmóðir, og konur geta ekki hætt að taka þátt í lífsbar- áttunni, þótt þær hætti að vinna fyrir lágu laununum sínum. Því þegar við yfirgefum vinnumarkaðinn og fylkjum liði til eldhúsanna tökum við vinn- una með okkur heim, en hrædd er ég um að launin verði eftir. Og þá getur koniið að því að við söknum lágu launanna, og finn- ist að þau hafi verið skárri cn engin. Þá má líka búast við að stofnanir og fyrirtæki, sent nú vcita önnum köfnu nútímafólki þjónustu, dragi santan seglin, því þjónusta og vinnsla og alis konar störf ntunu aftur flytjast inn á heimilin. Og það er þjóð- hagslega hagkvæmt, því hús- mæður eru mjög ódýr vinnu- kraftur - og þurfa aldrei frí. En fyrst karlmenn eru betur fallnir til vinnu en konur, hvers vegna ættu þeir þá ekki að vinna heimilisverkin, sem hljóta þó að teljast í erfiðari kantinum í okkar læknivædda samfélagi". Hið dæmda fjölskyldulíf Þjóðlcikhúsið: MILLl SKINNS OG HÖRUNDS eft- ir Ólaf Hauk Símonarson. Leikmynd: Grétar Reynisson. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðs- son. Forsýning á listhátíð. ■ Aldrei fór það svo að ckki kæmi íslenskt leikrit á svið á leikárinu sem eitthvert bragð er að. Milli skinns og hörunds er kannski ekki frumlegt verk, og brotalamir eru í því, en það er frá hendi höfundar býsna lifandi leiktexti scnt tókst með köflum að gæða ágengu lífi í meðförum Þjóðleikhússins á föstudagskvöld. Ólafur Haukur hefur hér samið verk um fjölskylduhel- víti. Þetta er tískuviðfangsefni og gengur aftur í Itverju leikriti af öðru sem maður sér þessi misseri, í misjöfnum búningi eins og vænta ntá. Síðast var það Fjöregg Svcins Einarsson- ar, smekklega skrifað en nokk- uð dauflegt leikrit úr lífi betri borgara þar sem fjölskyldan hefur gliðnað í sundur án þess nokkur bót verði á ráðin eða nokkrir áþreifanlegir valkostir settir. Ólafur Haukur leiðir fram fólk sem stendur einu þrepi neðar í þjóðfélagsstigan- um: það er allt grófara, hömlu- lausara, en niðurstaðan hin sama, - rofin tilfinningatengsl, hafi þau nokkurn tíma nokkur verið. I báðum leikritunum verður eldri sonur hússins geð- veikur. Og niðurstaðan sú sama: rústir, niðurdrepandi samfélag sem skilar af sér sál- arlausum mönnum, ófærum til mannlegs samneytis sem það nafn má gefa. Annars er ekki ætlunin að fara út í samanburð á þessum leikritum, þá mætti raunar leiða fram fleiri verk. En allt ber þetta að sama brunni, sem sé þeim að fjölskyldulíf sé á hörmulegri braut, og að baki hillir undir þjóðfélag sem tætir manneskjuna sundur, gerir hana þæga leikbrúðu í því samspili þar sem einn kúgar annan, en kerfisófreskjan alla. Það kentur ekki á óvart að lcikrit Ólafs Hauks er næsta bölsýnt vcrk. Hér er ekki einu sinni látin sjást tlöktandi von- artýra eins og í Fjöreggi Sveins Einarssonar.Nýjasta skáldsaga Ólafs, Vík milli vina, er þrúg- uð af sömu bölsýni. Og aðferð höfundar er keimlík í sögu og leikriti: hrjúft raunsæi í orð- ræðum og atvikum. Írónía höf- undar nær sér að vísu aldrei á nógu mikið flug til að rista sundur tómleikann og leiða í Ijós þjáninguna að baki, en hún er þó nógu hvöss til aö spretta á og hefur nægilegt jarðsamband við kunnuglegan veruleik til að áhorfandinn kippist við. Leikritið er í tveim þáttum sem heita hvor sínu nafni: Milli skinns og hörunds og Skakki turninn i Písa. Hvor um sig gæti staðið sjálfstæður, að minnsta kosti sá fyrri, enda hefur hann verið fluttur sér. Seinni þátturinn gerist tvcim árum síðar og fjallar um sömu fjölskyldu. Húsbóndinn Sig- urður er rustamenni, kann ekki að sýna tilfinningar nema þá með löðrungi, kúgar konu og börn en er sjálfur þrúgaður af söntu óhamingjunni. Konan Ásta reynir í lengstu lög að brciða yfir allt eins og eigin- kvenna er siður en brotnar að lokum undir farginu. Svo eru synirnir: Böðvar hefur verið í Kaupmannahöfn, er skilinn við konu og barn og kemur heim dæmdur fyrir fíkniefna- smygl. í seinni þættinum hefur höfundur losað sig við hann inn á geðveikrahæli. Hinn bróðirinn, Haddi loftpressu- maður, býr með Gógó og er á leið inn í sama helvíti og faðir hans, þótt um stund horfi svo í seinni hluta að listin geti bjargað honum. - Sem skop- lcga hliðstæðu dregur höfund- ur inn systur Ástu, Höllu og Guðmund mann hennar, svo og hina alvitandi nágranna- konu Jónu. Þetta eru skrípa- fígúrur en fullvel þekkjanleg- ar: Halla lifir á umhugsun um sjúkdóma og ógæfu annarra. Guðntundur rífst við svila sinn um bílategundir, það atriði var bráðfyndið. í seinni þættinum er teflt til úrslita um Hadda úr því að Böðvar er glataður. Hann er nú tekinn að búa nteð Gógó og á með henni eitt barn. Þá er það að listakonan Gunnur, á næstu hæð fyrir ofan, keniur inn í líf hans og virðist um sinn ætla að leysa hann úr Iæðingi, koma honum í myndlistar- skóla, svo að einhverja hæfi- leika hefur drengurinn þótt þess hafi lítt gætt. En æ, - Gógó er þá ólétt t annað sinn; faðirinn kallar Hadda til sín, þeir tveir eiga að verða veiði- menn og kúga kerlingar sínar, frelsi þeirra kostar kúgun ann- arra. Á brúðkaupsdaginn gerir Haddi vanmáttuga uppreisn, að vísu í veiðimannsbúningi, - en skakki turninn í Písa sent Gunnur fræddi hann um verð- ur auðvitað aldrei nema draumsýn. I þessunt heimi er ekkert rúm fyrir skakka turna. Leikstjóri og leikendur hafa lagt augljósa alúð við þetta verk eins og oft gerist unt íslensk leikrit. Sviðið er stíl- ■ Það voru mistök að eyðileggja stríðsminjarnar í Öskjuhlíðinni Mistök að eyðileggja stríðsminjarnar Fallegar stúlkur Kæru ritstjórar ■ Ég les alltaf síðuna með fræga fólkinu. Hún er ansi góð. Þegar ég fór til Englands í fyrra sá ég blað (ég man ekki hvað það heitir) og framarlega í blaðinu er alltaf mynd af fallegri stúlku. Oftast eru þær í litlum sem engum fötum. Getur NT ekki tekið þetta upp? Ég er viss um að margir karlmenn hefðu gaman af að sjá fallega stúlku í blaðinu sínu. Þ.H. Jóhann Þórhallsson hringdi: H Ég er mjög óánægður með þær framkyæmdir sem nú er unnið að í Öskjuhlíðinni. Þarna er verið að eyðileggja stríðs- minjar sem hafa sögu að geyma. Þetta er friðað svæði og að mínu viti á það að vera þáttur í sögu þjóðarinnar að varðveita þessar ntinjar. Öskjuhlíðin er útivistar- svæði borgarbúa og gömlu sprengjubyrgin gera það fjöl- breyttara og því er missir að þeim, til dæmis fyrir krakka sem hafa gaman af því að skríða inn í þessi byrgi og skoða þau. Fyrst og fremst eru þetta stríðs- minjar sem greina frá því sem gerðist í stríðinu og einnig það, er hluti af íslandssögunni. Því er það hörmulegt að nú er verið að sprengja byrgin. fært að nútíðarhætti, hvítur geimur, mikill á dýptina, og á að undirstrika ófrjósemi fjöl- skyldulífsins. Stílhrein mynd, en ég get ekki séð hvers vegna svo realísku verki erekki feng- in samsvarandi leikmynd. En „hljóðmynd" Gunnars Reynis Sveinssonar var vel og örugg- lega „teiknuð", átti góðan þátt í að magna áhrif sýningarinn- ar. Gantan er að sjá miðaldra leikara bæta stöðugt við sig eins og Gunnar Eyjólfsson ger- ir í seinni tíð. Leikur hans í hlutverki Sigurðar var í sann- leika útsmoginn, hann lék á alla strengi hlutverksins af ntiklu öryggi. Slíkt hið sama má segja um aðra leikara af eldri kynslóð: Þóra Friðriks- dóttir sem Ásta, skilaði lilut- verki móðurinnar ákjósanlega, en hún er látin taka nokkrum hamskiptum í seinna atriði, til að losna undan karli sínum. Kristbjörg Kjeld og Árni Tryggvason, systir hennar og mágur, hjónin að austan, féllu prýðilega að heildarmyndinni, Árna hef ég ekki lengi séð eins góðan og hér. Þá er ógetið Jónu, Bryndís Pétursdóttir. Erfiðara var um vik fyrir yngri leikendurna enda voru þau hlutverk ekki eins heil- steypt frá hendi höfundar. Helst þó Gógó, hin unga ein- falda kona sem hefur ekkert haldreipi nema karlmanninn og er fús að skríða á gólfinu fyrir fótum hans. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir skilaði hlut- verkinu eins og til stóð. Mál- pípur tvær hefur höfundur sett í leikritið: Soninn Böðvar, Sig-' urð Skúlason, og listakonuna Gunni, Helgu Jónsdóttur. Böðvar er hinn „neikvæði" predikari, málarsterkum litum fyrir Hadda dauða og djöful fjölskyldunnar, sjálfur dæmd- urmaður og glataður. Úrtragi- díu hans verður raunar minna en skyldi í verkinu, en út- skúfun föðurins á honum virð- ist ráða þar úrslitum. - Gunnur er hinn „jákvæði" predikari. Þáttur hennar verður dálítið utangátta, og er ekki við Helgu Jónsdóttur að sakast sent léði hlutverkinu allan ákjósanlegan þokka. Persónugerðin er að- eins of einföld. Líkt má segja um Böðvar, meðferð Sigurðar Skúlasonar á honum var lýta- laust. Einna mest mæðir á Sigurði Sigurjónssyni í hlutverki Hadda. 1 þeirri persónugerð er líka sumt óljóst, en víst er að hann býr yfir meiri sálargáfum en uppeldið hefur leyft að njóta sín: vísvitandi eyðileggur hann sjálfan sig. Sigurður leiddi persónuna að ýmsu leyti vel í ljós, stundum var Itann að vísu ekkert nema kjafturinn og ruddaskapurinn. Milli skinns og hörunds er sýning sem Þjóðleikhúsið hef- ur fullan sóma af, og er gaman að geta sagt það í lok þessa heldur rislága leikárs, - hvað sem líður aðsókn að einstökum verkefnum. Hin eiginlega frumsýning verður víst ekki fyrr en í haust, og af viðtökum á forsýningu virðist mega ráða að verkið eigi gott gengi fyrir höndum. Gunnar Stefánsson

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.