NT - 29.06.1984, Page 1
Föstudagur 29, pi 1984 -158. tb). 68. áig,
Fasteignaviðskipti:
Ríkisvíxlar
koma í veg
ffyrir lækkun
á útborgun
- sjá nánar á blaðsíðu 3
Er VSI á móti
Blönduvirkjun ?
- sjá frétt af samninga-
viðræðum bls. 2
■ Þessir föngulegu sveinar, á pungbindunum einum fata, eru
félagar í 4. deildar knattspyrnuliöinu Hildibröndum í Vestmanna-
eyjum. Þeir sigruöu Hrekkjalómafélagið úr sama stað í
æsispennandi kappleik í fyrrakvöld. Ekki furða, þar sem
Hrekkjalómarnir voru á buxum, eins og myndin af Arna Johnsen
alþingismanni ber með sér. Þingmaðurinn er þó með boxhanska.
- Sjá nánar á bls. 3. NT-myndir Ingveldur Gísladóttir
Berir bossar
og boxhanskar
DV hrætt
við samkeppnina!
- sjá fréttir af óvæntum samkeppnishömlum á baksíðu
Borgardómur:
Vextir leggist við höf uðstól
í fyrsta sinn svo vitað sé
■ í Borgardómi Reykjavíkur
hefur verið kveðinn upp dóm-
ur þar sem samþykkt er sú
krafa stefnanda að vextir af
tildæmdri fjárhæð legðust við
höfuðstól á tólf mánaða fresti.
Þrátt fyrir að í vaxtakjörum
almennra sparisjóðsreikninga
felist að vextir séu lagðir við
höfuðstól á tólf mánaða fresti,
hefur tíðkast við uppgjör
dómsskuida og innheimtu
lögmanna að notaðir væru
svokallaðir flatir vextir.
Þetta er í fyrsta skipti, svo
vitað sé, sem dómstóll dæmir
að rétt sé að fylgja vaxta-
kjörum banka. Hæstiréttur
hefur þrisvar fengið svipuð mál
til meðferðar. Fyrst 1981 um
almenna dráttarvexti og svo
tvisvar 1983 um dómsvexti.
Niðurstaða Hæstaréttar var að
leysa ekki úr álitamáli sem
þessu til þrautar fyrr en fjallað
hefði verið um málið í héraðs-
dómi.
Málið fjallaði um vinnuslys.
Felst í dómnum að stefnandi,
sá er fyrir slysinu varð, fái
skaðabætur er vextir leggist á,
frá slysdegi. Að tólf mánuð-
um liðnum, frá slysdegi, leggj-
ast vextirnir við höfuðstól
skaðabóta og reiknast þá vextir
á þá upphæð og síðan koll af
kolli. Jafngildir þetta því að
viðkomandi hefði fengið
skaðabætur sínar á slysdegin-
um og lagt þær inn á almenna
sparisjóðsbók. Frá því að mál-
ið er höfðað reiknast svo hæstu
innlánsvextir.
Dómur þessi var kveðinn
upp í máli sem Jónas Hreins-
son, línumaður hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, höfðaði á
hendur Borgarsjóði Reykja-
víkur vegna slyss er hann lenti
í við vinnu við háspennulínu í
Helgadal í Mosfellssveit.
í dómnum er fallist á vara-
kröfu stefnda, Borgarsjóðs
Reykjavíkur, um sakarskipt-
ingu og er Borgarsjóði gert að
greiða Jónasi helming fjártjóns
hans, eins og dómurinn
ákvarðar það.
Slysið varð þann 3!. mars og
fær því Jónas vexti á skaðabæt-
urnar og síðan vaxtavexti.
Borgarsjóður var dæmdur til
að greiða Jónasi 70.000 krónur
í skaða- og miskabætur. Einnig
var Borgarsjóði gert að greiða
málskostnað Jónasar, 40.000
krónur.
Dóminn kváðu upp Stein-
grímur Gautur Kristjánsson
borgardómari, Jóhann
Indriðason verkfræðingur og
Albert Kristinsson deildar-
stjóri.
Slysið varð með þeim hætti
að starfsmenn Rafmagnsveit-
unnar voru að vinna við 6000
volta háspennulínu og hafði
straumur verið tekinn af lín-
unni á meðan. En til frekara
öryggis var hluti línunnar, sem
tengdur var spenni jarðtengd-
ur. Jónas vann síðan við að
aftengja jarðbindinguna þegar
samstarfsmaður hans setti inn
öryggi fyrir þann hluta línunn-
ar og hleypti straum á.
Dómurinn er m.a. byggður
á almennum reglum um ábyrgð
hins opinbera á starfsmönnum
sínum og því sé Borgarsjóður
skaðabótaskyldur. Einnig seg-
ir í dómnum að stefnandi eigi
einnig hlut að máli, vegna
hirðuleysis hans, og er því
fallist á varakröfu Borgar-
sjóðs.
Jónas hryggbrotnaði við
slysið og hefur haft óþægindi í
baki síðan og einnig óþægindi
í meltingarvegi. Stefán Boga-
son læknir mat varanlega ör-
orku Jónasar 12 prósent.
Allsherjarat-
kvæðagreiðsla
um hvort segja
eigi upp
ingum 1
■ Stjórn Verkalýðsfélags
Borgarness samþykkti á fundi
sínum í fyrrakvöld að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu um
uppsögn kjarasamninga 1. sept-
ember n.k. Tillaga stjórnarinn-
ar um að trúnaðarmannaráði
félagsins verði veitt heimild til
verkfallsboðunar kemur þá
einnig til atkvæða.
Jón Eggertsson, formaður
félagsins, sagði í stuttu spjalli
við NT í gær að fullkomin eining
hefði ríkt um þennan fram-
gangsmáta innan stjórnarinnar.
Vilji félagsmanna i þessa veru
hefði reyndar komið fram á
almennum fundi í félaginu fyrr
í vor, sagði Jón og hefði stjórn-
inni þótt sjálfsagt að verða við
þeim óskum.
Jón sagði ennfremur að sér
væri ekki kunnugt um að alls-
samn-
. sept.
herjaratkvæðagreiðslu hefði
áður verið beitt í þessu sam-
bandi þótt einstaka sinnum
hefði komið fyrir að kjarasamn-
ingar væru bornir undir vilja
félagsmanna á þcnnan hátt.
Hins vegar kvað hann óvenju-
legt að kjarasamningum væri
sagt upp fyrr en þeir rynnu út,
þannig að umsamin launahækk-
un kæmi ekki til framkvæmda,
eins og nú stæði ti I. Það væri því
tæplega hægt að ætlast til að
fámennur félagsfundur tæki
slíka ákvörðun.
Því má bæta við að samkvæmt
gildandi kjarasamningum eiga
laun að hækka um 3% l'. sept-
ember. Heimilt er hins vegar að
segja launaliðum samninganna
upp frá santa tíma og verði það
gert, kemur launahækkunin að
sjálfsögðu ekki til framkvæmda.