NT


NT - 21.08.1984, Síða 1

NT - 21.08.1984, Síða 1
Verðbréfamarkaðir bjóða enn hærri vexti: Brýtur starfsemi eins í bága við bankalögin? athugasemdir bankaeftirlitsins í meira en mánuð hjá viðskiptaráðuneytinu ■ í framhaldi af vaxta- ákvörðunum bankanna hafa þrír verðbréfamarkaðir, Fjár- festingafélagið, Kaupþing og Ávöxtun, auglýst hækkun á vöxtum hjá sér, en þessir vextir eru mun hærri en bankavextir. Einn þessara markaða, Ávöxtun sf., sem hefur veru- lega sérstöðu, býður almenn- ingi að ávaxta sparifé sitt fyrir fasta vexti, nær tvöfalt hærri en vexti af sparisjóðsbókum, og vexti umfram verðtrygg- ingu, um þriðjungi hærri en sambærilega vexti hjá bönkum. En Ávöxtun sf, e'r undir smásjá bankaeftirlitsins, sem gerði athugasemdir við starf- semi fyrirtækisins til viðskipta- ráðuneytisins fyrir einum og hálfum mánuði. „Ef þarna er um að ræða móttöku innlánsfjár frá al- menningi og boðin ákveðin vaxtakjör, þá er það sam- kvæmt mínum skilningi brot á bankalögum,“ sagði Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlitsins, í samtali við NT í gær. Ármann Reynisson, fram- kvæmdastjóri Ávöxtunar, sagði að sér þætti bankaeftirlit- ið hafa verið ansi lengi að átta sig ef það hefði Iátið fyrirtækið starfa ólöglega í eitt og hálft ár.“ - sjá viðtöl á bls 3. Kartöflu- viðskipti Hagkaups líklega lögleg ■ Að líkindum munu op- inberir aðilar ekki aðhafast neitt vegna kartöflusölu Hagkaups, en það ætti að koma í Ijós í dag. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar skrifstofustjóra í landbún- aðarráðuneytinu var fjallað um málið í gær og töldu lögfræðingar að vera kynni að það varðaði ekki við lög að framleiðandi seldi afurðir sínar beint til kaupmanna. Hitt væri svo annað hverjum augum samtök framleið- enda litu á það að einn framleiðandi tæki sig út úr á )ann hátt. Það er margt í >essu, sagði Guðmundur og >enti á að Grænmetisversl- unin byði framleiðendum ákveðin kjör t.d. varðandi kaup á útsæði, þannig að það væri ekki augljós hagn- aður fyrir framleiðanda að selja framhjá samtökum sínum. Að sögn Gísla Blöndal hjá Hagkaupi voru við- tokur neytencla mjög góöar og seldist farmurinn, 1 tonn, upp í gærdag, en verslunin vcrður komin með nýja sendingu í dag. Mesta hlaup í Skaftá síðan 1972 ■ Hlaupið í Skaftá vex enn en þetta er mesta hlaup í ánni síðan 1972. Búist var við að draga færi úr hlaupinu í dag en í gær var Skaftá sem stöðuvatn á að líta. Þessi mynd var tekin sunnan við Fögrufjöll þar sem áin á upptök sín, en þar rennur hún venjulega fram í nokkrum litlum kvíslum. NT-mynd: Ámi Bjama Greiðir Vinnu- málasamband- ið 3% þrátt fyrir uppsögn launaliða? ■ Ýmislegt bendir til þess að Vinnumálasam- band samvinnufélaga hyggist greiða 3% launa- hækkun til viðsemjenda sinna 1. september þrátt fyrir að launalið samning- anna hafi verið sagt upp. Formleg ákvörðun um þetta hefur ekki verið tek- in innan Vinnumála- sambandsins, en eitt af því sem þykir benda til þess að svo verði er kaup- gjaldsskrá Vinnumála- sambandsins sem gefin hefur verið út nýverið. í þessari skrá er reiknað með 3% kauphækkun 1. september. Ekki náðist í forystumenn Vinnumála- sambandsins í gær, en kaupfélagsstjórar sem blaðið ræddi við í gær sögðu að það kæmi ekki á óvart þó umrædd 3% kauphækkun kæmi til framkvæmda. Vinnuveit- endasamband íslands hef- ur hins vegar samþykkt að greiða ekki 3% til þeirra félaga sem hafa sagt upp launaliðum. Verkamannasambandið leggur fram kröfur sínar: Myndu sliga fiskvinnsluna ■ „Ég veit ekki hvernig þeir fá út 100% verðbólgu þó kaupið hækki um 40-50% sem er nú ansi vel smurt á okkar kröfur . Kannski ætla þeir að taka 50% fyrir sig sjálfa" sagði Guðmund- ur J. Guðmundsson aðspurður um þau viðbrögð Magnúsar Gunnarssonar framkvæmda- stjóra Vinnuveitenda- sambandsins að kröfur Verka- mannasambandsins væru upp á 40-50% hækkun launa fisk- vinnslufólks og verðbólgan færi upp fyrir 100% ef að þeim yrði gengið. Verkamannasambandið lagði formlega fram kröfur sínar á fundi með vinnuveitendum í gær. NT hefur áður skýrt frá kröfunum en þær eru um 14.000 króna lágmarkslaun og síðan ■ „Við ætlum ekki að láta okkar fólk deyja þó að útgerð og fiskvinnsla séu illa rekin“ gæti Guðmundur J. Guðmundsson verið að segja við framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands- ins í upphafi fundar í gær. NT-mynd Róbert -seg/rfraui. kvæmdastjóri Wnnoveítenda. sambandsins 4-5% hækkun milli flokka. Lægsti taxti er nú 10.522, en lægstu lögleyfðu laun yrðu 13.300 krónur 1. sept. „Við höfnuðum þessum kröfum“, sagði Magnús Gunn- arsson. „Það er Ijóst mál að ef þessar kröfur næðu fram að ganga þá myndu þær t.d. sliga fiskvinnsluna sem nú horfir fram á verðfall og birgða- söfnun." „Fiskvinnslufólkið er í lægsta taxta sem til er og það er ægilegt að horfa upp á það að allir sem geta flýja þaðan og ungt fólk fæst ekki í þessi störf. Og launin verða með hverju árinu sem líður lægra hlutfall af rekstrin- um“, sagði Guðmundur J. eftir fundinn í gær. Aðilar hittast aftur á miðvikudaginn. Illindi í fjölbýlishúsi: Aldraður maður á gjörgæslu - gæsluvarðhalds krafist vegna málsins ■ Maður á áttræðisaldri ligg- ur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild eftir að til ill- inda kom í fjölbýlishúsi við Lönguhlíð í gærmorgun. Ekki liggur ljóst fyrir hvort kom til handalögmála, en gæsluvarð- halds, hefur verið krafist yfir einum íbúa hússins sem hafði veist að gamla manninum. Forsaga málsins er sú að aðfararnótt mánudagsins var slökkvilið kvatt að umræddu húsi við Lönguhlíð en þar logaði í potti á eldavél, og var umráðamaður fbúðarinnar þá í fastasvefni. í gærmorgun veittist hann mjög harkalega að fullorðnum hjónum vegna þessa máls og lyktaði deilun- um með því að gamli maður- inn hné niður meðvitundarlaus og hefur hann ekki enn komist til meðvitundar. Er ekki ljóst hvort um líkamsárás var að ræða eða hvort áfallið stafaði af öðrum orsökum. Ekki hafði verið kveðinn upp gæsluvarð- haldsúrskurður í gærkvöldi.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.