NT - 21.08.1984, Blaðsíða 19

NT - 21.08.1984, Blaðsíða 19
________________Þriftjudagur 21. ágúrt 1984 19 Útlönd Sankara sparkar ráðherrum sínum Ouagadiugou-Rcuter ■ Thomas Sankara höfuðsmaður, ríkisstjóri Bourkina Fasso, (fyrrum Efri-Voita) leysti upp ríkisstjórn landsins í gær. Ríkisútvarp landsins sagði að utanríkis-, varnarmála-, upplýsinga- og heilbrigðisráðhcrrarnir, sem nú eru erlendis, myndu halda embættum sínum þar til þeir kæmu aftur til landsins. í yfirlýsingu frá Sankara sagði að ráðherrar hefðu verið leystir frá embættuni sínum og ráðuneyt- isstjórar myndu taka við störfum þeirra. Ekki var tilkynnt hvenær ný ríkisstjórn yrði mynduð í land- inu, sem var áður nýlenda Frakka. Nafni Efri-Volta var breytt í Bourkina Fasso (land hinna ó- spilltu manna) fyrr í þessum mán- uði. Nú er ár liðið síðan núverandi herforingjastjórn tók völdin í landinu og var nafninu breytt á ársafmæli stjórnarinar. Sankara hrifsaði völdin af Jean Baptiste Quedraogo en Sankara var for- sætisráðherra í stjórn hans. Aðeins tvær vikur eru síðan reynt var að steypa Sankara af stóli en þá lést ráðherra í stjórninni af skotsárum sem hann fékk þegar óþekktur maður hóf vélbyssu- skothríð á bíl hans á götu í höfuðborg Bourkina Fasso, Ouagadiugou. Talið er að brott- rekstur ráðherranna nú standi í sambandi við valdaránstilraunina. Síðan landið fékk sjálfstæði árið 1960 hafa borgaralegar stjórnir og herforingjastjórnir skipst á völdum. Þrjár stjórnarbyltingar hafa verið gerðar undanfarin fjögur ár og hefur það enn aukið á glundroðann í landinu sem er eitt það fátækasta í heimi. Glæpum fækkar í Kína ■ Kínverjar hófu mikla herferð gegn glæpum á síðasta ári en þá hafði glæpum farið fjölgandi um nokkurt skeið. Samkvæmt opinberum heimildum voru framdir að meðaltali um 7 glæpir á hverja 10.000 íbúa á undanförnum árum. Þetta hefur Kín- verjum þótt jaðra við glæpafaraldur þótt þessi glæpatíðni sé mun minni en þekkist á Vestur- löndum. Alntenningur krafðist strangari löggæslu og harðari dóma. Yfirvöld urðu við þessum kröfum almennings, dómsmálum var hraðað og refsingar hertar. Á nokkrum ntán- uðum voru mörg þúsund manns teknir af lífi fyrir ýmis konar alvarlega of- beldisglæpi eins og morð, vopnuð rán og nauðganir. t’essi herferð gegn glæp- um virðist hafa skilað ár- angri og opinberar tölur sýna að dregið hefur úr tíðni glæpa niður í um þrjá á hverja 10.000 íbúa. Raðaug lýsinqar þjónusta Húseigendur Þarf að ganga frá lóðinni þinni? Við steypum og/eða helluleggjum bílaplön, innkeyrslur og gangstéttar. Útvegum löggilta menn til að leggja snjóbræðslulagnir. Gerum föst verð- tilboð. Látið fagmenn vinna verkin Hjörtur sími 91-77591 atvinna - atvinna Atvinna Laus er til umsóknar staöa forstööumanns á barnaheimilinu á Dalvík. Einnig er laus til um- sóknar staða við barnagæslu. Fóstrumenntun æskileg. Umsóknarfrestur er til 10. september n.k. Upplýsingar veita fyrir hönd félagsmálaráðs Kristín Gestsdóttir sími 96-61323 og Þóra Rósa Geirsdóttir sími 96-61411. Umsóknum skal skila á skrifstofu Dalvíkurbæjar. Félagsmálaráð Dalvíkur Barnagæsla Barngóð kona óskast til að gæta tveggja barna, 2ja ára og 10 mánaða. Þyrfti helst að geta komið heim. Upplýsingar í síma 11684. Barnagæsla Óska eftir unglingsstúlku til að gæta 6 ára telpu nokkur kvöld aðra hvora viku. Er í vesturbænum. Upplýsingar í síma 621042 eftir kl. 5 í dag og á morgun. húsnæði óskast íbúð óskast 3-4 herbergja íbúð óskast til leigu í vesturbænum. Skilvísi og reglusemi heitið. Upplýsingar í síma 91-621365 í dag og sunnudag eftir kl. 7. til leigu TIL LEIGU Borvagn - Sprengingar Belta- og traktorsgrafa Dráttarbílar til þungaflutninga BORGARVERK HF BORGARNESI Símar: 93-7134 og 93-7144 Jörð til leigu Á Suðvesturlandi er jörð til leigu. Bústofn getur fylgt. Túnstærð 50 hektarar. Upplýsingar í síma 620608 eftir kl. 6 Til leigu Afkastamikil traktorsgrafa í stór og smá verk. Vinn einnig um helgar. Logi, sími 46290 SÍMAR: 72977 og 2528(f ÓLAFUR M ÓLAFSSON BLIKAHÓLUM 4 Traktorsgrafa M.F. 50 B traktorsgrafa er til leigu í smærri og stærri verk. Dag, kvöld og helgarsími 91-42855 Sindri Traktorsgrafa Til leigu CASE traktorsgrafa í stór sem smáverk. Einnig með mold til sölu. Sími 77010. o- o: 7:7 ') i S> I Körfubíli til leigu! Lengsti körfubíll landsins til leigu í stór og smá verk. Lyftihæð 20m. Upplýsingar í síma 91-41035. Traktorsgrafa og loftpressur I stór og smá verk Vanir menn Sími: 44757 ^leinberc^/^ ökukennsla Ökukennsia og æfingatímar Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað strax og greiða aðeins tekna tíma. Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi. Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör. Lærið þar sem reynslan er mest. Símar 27716 og 74923. Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar. tilkynningar Auglýsing um rækjuveiðar innanfjarða á hausti komanda Umsóknarfrestur til rækjuveiða á Arnarfirði, fsa- fjarðardjúpi og Húnaflóa á rækjuvertíðinni 1984 til 1985, er til 5. september n.k. í umsókn skal greina nafn skipstjóra og heimilisfang, ennfremur nafn báts, umdæmisnúmer og skipaskrárnúmer. Umsóknir, sem berast eftir 5. september n.k., verða ekki teknar til greina. Sjá varútveg sráðu neyti ð, 17. ágúst 1984 Hugmyndasamkeppni Skútustaðahreppur (Mývatnssveit) efnir til sam- keppni um merki fyrir sveitarfélagið. Samkeppnin er öllum opin. Merkið má höfða til megineinkenna sveitarinnar t.a.m. landslagseinkenna, gróður- fars, dýralífs, eldvirkni, en einnig menningar- og félagslegrar sögu, náttúruverndar og atvinnulífs. Veitt verða þrenn verðlaun: Kr. 20.000,- kr 10.000,-og kr. 5.000,- Hugmyndir skal senda skrifstofu Skútustaða- hrepps, Múlavegi 2 660 Reykjahlíð fyrir 15. október 1984 í lokuðu umslagi ásamt nafni sendanda og heimilisfangi. Dómnefnd mun Ijúka störfum fyrir 1. desember 1984. Skútustaða- hreppur áskilur sér eignarrétt á verðlaunatillög- unum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.