NT - 09.01.1985, Page 11

NT - 09.01.1985, Page 11
Miðvikudagur 9. janúar 1985 11 ■ Uppboðshaldararnir kunna sitt fag - eru ekki nema um hálfan til einn tíma að bjóða upp hcilan skipsfarm, um 3-4.000 kassa af fiski. sama bili slokknaði á öllum vél- um skipsins. í Ijós kom að rafall við vél hafði brunnið yfir og allt komst í gang á ný eftir stutta stund. Leyndur draumur rættist Þessi bilun varð hins. vegar til þess að leyndur draumur okkar kvennanna - sem við höfðum ekki þorað að játa fyrir nokkrum manni - rættist heldur betur. Sá leyndi draum- ur var um það, að eitthvað tefði fyrir þannig að við fengj- um svona 3ja daga stopp í Bremerhafen í stað tveggja. Vegna viðgerðar varð stoppið ytra hins vegar 7 dagar. sem að sjálfsögðu voru vel notaðir. Mikil spenna lá í loftinu - hvað fengist nú fyrir þau tæp 150 tonn sem Vestmannaey var með, þar sem algerir dag- prísar eru á svona fiskuppboð- um. Niðurstaðan varð 332.403 þýsk mörk, eða um 28,50 kr. á kíló, sem menn töldu nokkuð gott. Búðirnar ofsalega freistandi Dagarnir í Bremerhafen fóru auðvitað að mestu í búð- arráp hjá okkur konunum. Búðirnar voru rosalega freist- andi.sérstaklega fötin. Að vísu voru þau kannski ekkert ódýr- ari en í Reykjavík, en úrvalið hins vegar margfalt og margt nýtt. Karlarnirokkar urðuhins vegar því óþolinmóðari að komast heim eftir því sem búðarferðunum fjölgaði, því andvirði innkaupanna var auð- vitað allt sótt í budduna þeirra. Enn sannaðist að ástin er blind Eftir lokun verslana var far- ið út að borða, dansa og líta svolítið á hið fræga „ljúfa líf“ hafnarborgarinnar, þeir ógiftu í áhöfninni þar auðvitað fremst- ir í flokki. Einn þeirra varð m.a.s. svo ástfanginn af ungri snót frá Thailandi, að hann hélt því statt og stöðugt fram - og trúði því - að hún væri hrein mey, þrátt fyrir starf í einum ..kassanum" í ein tvö ár. ■ „Ég er alveg bálreiður - taldi víst að ég yrði kosinn „maður ársins“ en enginn fjöl- miðlanna het'ur útnefnt mig. Er þeim eitthvað illa við mig, eða hvað?“ ■ Þótt eggjamaskinn eigi að vera góður fyrir húðina verður ekki það sama sagt um útlitið meðan á fegrunaraðgerðum stcndur. ■ Tollur var tekinn á „tollinum" - vissara að vita hvort ekki var allt í lagi með hann, eða hvað? ■ Eyjólfur skipstjóri og Birgir stýrimaður gera að gamni sínu við cinn starfsmanninn á fiskmarkaðinum. Símaævintýri Af þessum og öðrum ævin- týrum höfðu allir góða skemmtan. T.d. vandræðun- um hjá Birgi stýrimanni, sem tvær nætur í röð reyndi að hringja í konuna sína heima í Eyjum. Línunum sló hins veg- ar svo einkennilega saman, að í bæði skiptin lenti hann á sama númeri í Dýrafirði. Seinni nóttina komst hann að því að konan sem svaraði er gift skólabróður hans úr Stýri- mannaskólanum, sem einmitt var þá á leið til Cuxhaven. Annar skipsfélagi saknaði svo konunnar sinnar heima, að hann mátti ekki sjá símaklefa án þess að þurfa aðeins að slá á þráðinn. Að lokum vorum við farin að kalla alla símaklefa Þorsteinu. Þymirós svaf alla leiðina heim Þótt aukadagarnir væru vel þegnir voru flestir hvíldinni fegnir þegar lagt var á stað heimleiðis 3. desember. Svava vinkona var m.a.s. orðin svo uppgefin að segja mátti að hún svæfi í einni lotu alla leiðina heim - sama hvað eiginmaður- inn reyndi að láta vel að henni, ekkert dugði til að vekja hana. Varð mikið grín úr þessu - enda hefur hún gengið undir nafninu Þyrnirós síðan. Eftir að vinna upp tapið af „góðu kaupunum" Þótt siglingin væri í alla staði frábær var líka yndislegt að stíga aftur á land heima í Eyjum þann 8. september. Karlarnir okkar lifa nú í von- inni um gjöfula vertíð til að vinna upp tapið af „góðu kaupunum" sem við gerðum í Bremerhafen. Og ætli við verðum ekki að vona að sú ósk rætist - til að eiga möguleika á annarri slíkri ævintýraferð á nýja árinu. - Inga Gísla.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.