NT - 09.01.1985, Blaðsíða 22

NT - 09.01.1985, Blaðsíða 22
IU' Miðvikudagur 9. janúar 1985 22 Landsliðið fer til Frakklands Enska bikarkeppnin: ■ íslenska landsliðið í handknattleik heldur utan þann 28. janúar til keppni á rnóti í Mónaco. Leikið verður við Ung- verja, Frakka A og B lið, ísrael og Tékka. Fyrsti leikurinn verður þann 30. janúar gegn Ungverjum. Pessi keppni verður góður undirbúningur fyr- ir A-keppnina sem fram fer í febrúar á næsta ári. Allir okkar bestu leik- menn geta tekið þátt í mótinu í Mónacó. Eftir að komið verður úr þessari keppni verða þrír landsleikir hér heima gegn Júgóslövum dagana 12. 13. og 14. febrúar. Júgóslavar eru mjög sterkir svo það verður jafnvel enn meira álag á leikmönnum íslands en í keppninni við Svía í des- ember. Sem sagt, framundan eru 8 landsleikir á hálfum mánuði og spennandi að sjá hvort Islendingar geti haldið áfram á þeirri beinu braut sem mörkuð var í fyrra. Einn stórleikur Liverpool'Tottenham í 4. umferð? ■ í fyrradag var dregið í ensku bikarkeppninni, fjórðu umferð. Ekki var drátturinn merkilegur og aðeins einn stór- leikur gæti verið í uppsigl- ingu. Það er leikur Liverpool við Tottenham ef Tottenham tekst að sigra Charlton í dag. Þessi leikur Liverpool og Tott- enham, ef af verður, verður leikinn á Anfield Road í Liverpool þar sem Tottenham hefur ekki unnið síðan 1912. Annars leika eftirtöld lið saman í fjórðu umferð: Nott. Forest/Newcastle-Wim- bledon ChelseaAVigan-Millwall/ C.Palace Everton-Doncaster Notts Co/Grimsby-Watford Barnsley-Brighton Man. Utd-Coventry Middlesb./Darlington-Telford West Ham-Birmingh/Norwich Oxford-Portsmouth/Blackburn Luton/Stoke-Wolves/ Huddersf. Orient-Southampton Liverpool-Tottenham/Charl- ton Leicester-Carlisle Ipswich-Gillingham/Cardiff York-Arsenal Sheff.Wed-Oldham Leikirnir í 4.umferð verða 26. janúar. ■ Einar Þorvarðarson, landsliðsmarkvörður. ■ Kenny Dalglish (til vinstri) og Glenn Hoddle. Mætast þeir á Anfíeld Road í bikarkeppninni? ’ll ■ Wolfang Schmidt er kominn í kasthringinn á ný. Wolfang Schmidt aftur í hringinn eftir 2ja ára keppnisbann ■ Nauðsyn brýtur lög segir málshátturinn og það gildir líka í Austur-Þýskalandi. Nú er kringlukastarinn heimsfrægi Wolfang Schmidt kominn í kasthringinn aftur eftir 2ja ára fjarveru. Hann var settur í keppnisbann vegna pólitískra yfirlýsinga sinna þess efnis að hann myndi flýja til Vestur-Þýskalands hvenær sem tækifæri gæfist. Schmidt hefur auk þess að vera settur í keppnisbann þurft að gista í steininum vegna þess- arar yfirlýsingar og pólitískra skoðana sinna. En nú er kappinn sem sagt kominn í hringinn aftur og ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að Austur-Þjóðverjar eiga engan annan frambærilegan Schmidt er fyrrum heims- kringlukastara á alþjóðlegum methafi og Evrópumeistari í mælikvarða. grein sinni. Björn Borg er tennis- leikari áratugarins ■ Samband atvinnutennisleikara hefur útnefnt Svíann fræga Björn Borg, tennisleikara áratugsins. Borg vann á ferli sínum 5 sinnum í Wimbledon-keppninni og 6 sinnum í Opna franska meistaramótinu og hlaut titilinn „tennis- leikari ársins“ 5 sinnum á árunum 1976-1980. John McEnroe hlaut þann titil þetta árið og hann ásamt Peter Fleming voru kjörnir „par ársins“ í 3. sinn. Bandaríkjamaðurinn Robert Green var kjörinn „nýliði“ ársins. Hann fór úr 369. sæti á lista yfir bestu tennisleikara heims og alla leið í 40. sæti á árinu. Knattspyrna: Þrír leikmenn úr 1. deild með KS næsta sumar? - Colin Thacker verður áfram á Siglufirði Frá Gylfa Krisljanssyni, fréttamanni NT á Akureyri: ■ „Við gerum okkur vonir um að fá til liðs við okkur þrjá leikmenn úr 1. deild, en það er ekki tímabært að segja hverjir það verða“ sagði Karl Pálsson formaður Knattspyrnufélags Siglufjarðar er tíðindamaður NT á Akureyri ræddi við hann, en Siglfirðingar ætla sér stóran hlut í 2. deildinni í knattspyrnu næsta sumar eins og sjálfsagt fleiri lið. „Ég segi ekkert um það“, sagði Karl þegar hann var spurður hvort einhverjir eða einhver þessara þriggja hefði leikið áður með KS, og er því enn ósvarað þeim sögusögnum að Hafþór Kolbeinsson ætli að leika með KS. „Það kemur ekki í Ijós fyrr en í mars hverjir þetta eru “ sagði Karl. Siglfirðingar hafa samið við Skotann Billy Hodgson um að þjálfa næsta sumar og verður þetta fjórða ár Skotans með liðið. Þá hefur enski leikmaðurinn Colin Thacker ákveðið að leika áfram með KS en hann var besti maður liðsins síðastliðið sumar. Fyrsti sigur Biirglers ■ Thomas Biirgler frá Sviss vann sinn fyrsta sig- ur í móti í heimsbikar- keppninni á skíöum er hann sigraði í stórsvigi í Schladming í Austurríki í gær, stórsvigi sem frétta- menn Reuters lýstu sem „því erfíðasta á þessu keppnistímabili“ Marc Girardelli, Lúxemborg, varð annar í stórsviginu og jók forskot sitt á annan mann, Pirmin Zurbrigg- en frá Sviss í stigakeppni heimsbikarsins í 36 stig, þar sem Zurbriggen, heimsbikarmeistari í fyrra, keyrði á hlið snemma í síðari ferðinni í gær, og féll þar með úr leik. Búrgler fékk tímann 2:36,65 mín. samanlagt, en það var aðeins 0,11 sekúndum betri tími en Girardelii náði. Martin Hangl frá Sviss varð þriðji á 2:38,33 og Aúst- urríkismaðurinn Gúnther Mader varð fjórði á 2:38,57 mín. Mader var hvattur til dáða af öflug- um áhorfendahópi heimamanna, sem gerði sig ánægðan með að hafa þrjá Austurrfldsmenn á meðal tíu fyrstu, Frjálsar íþróttir: Mary Decker Carl Lewis og Brisco-Hooks ekki með á heimsleikum innanhúss ■ Bandaríkjamenn hafa nú tilnefnt lið sitt sem taka mun þátt í heimsleikunum innan- húss í frjálsum íþróttum. Mótið verður í París dagana 18. og 19. janúar næstkomandi. Það sem vekur hvað mesta athygli er að Carl Lewis mun ekki vera með á þessu móti og ekki heldur Mary Decker né Valerie Brisco-Hooks. Þessi þrenning ásamt fleirum hefur ákveðið að taka heldur þátt í miklu boðsmóti sem fram fer í Los Angeles þann 18. janúar. í stað þessa frjálsíþróttafólks þá munu spretthlaupararnir Sam Graddy og Mel Lattany verða helsta von Bandaríkja- manna. ÞámunuKanarnirekki geta tekið þátt í neinum milli- vegalengdarhlaupum á mótinu né í þremur greinum sem venjulega hafa verið mjög sterkar af þeirra hálfu þ.e. langstökk, hástökk og kúlu- varp. Þrátt fyrir að margar stjörn- ur verði fjarstaddar þá eru Bandaríkjamenn ekki hræddir. „Þetta lið mun standa sig,“ segir Pete Cava, fréttafulltrúi bandaríska frjálsíþróttasam- bandsins. Innanhúsknattspyma ■ {slandsmótið í knattspyrnu innanhúss verður í tvennu lagi þetta árið. Fyrri hlutinn verður helgina 19. og 20. janúar, en sá síðari seinnihluta febrúar. { fyrri lotunni verður keppt í 2. og 4. deild en í þeirri síðari í 1. og 3. deild. Nú er búið að draga í riðla í 2. og 3. deild og líta þeir þannig út: 2. deíld: A-riðill: Léttir, Njarðvík, Grótta og Austri. B-ridill: Leiftur, Týr, Selfoss og Bolungarvík. C-riöill: Grindavík, Haukar, ÍR og Aftur- elding. D-ridill: Þróttur N, KS, Ánnann og Árroö- inn. 4. deild: A-riðill: KDR (gestir), Eyfellingur, Stokkseyri og Vorboðinn. B-riðill: Hafnir, Sindri, Efling og Mýr- dælingur. C-riðill: Hvöt, Víkverji, Hveragerði og Ösp. D-riðill: HSS, Þór Þ. Leiknir R, og Vaskur. Eitt lið færist á milli deilda.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.