NT - 18.01.1985, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. janúar 1985 5
LlL Fréttir
Nýtt mötuneyti, íþróttahús og sundlaug
Frá fréttaritura NT í ilor^urfirói M.M.:
■ Óvenjulega miklar bygg-
ingaframkvæmdir standa nú
yfir í Reykholtsdal í Borgar-
firði.
Bygging á íþróttahúsi við
Barnaskólann á' Kleppjárns-
reykjum var hafin í haust.
Mikil þörf er á íþróttahúsi þar
sem allar innanhúsíþróttir hafa
til þessa verið kenndar á einum
gangi skólans. Stutt er síðan
lokið var við byggingu sund-
laugar á Kleppjárnsreykjum
og er það myndarlegt mann-
virki. Áætlað er að byggja
síðar sameiginlegar sturtur og
búningsaðstöðu fyrir sundlaug
og íþróttahús. En til bráða-
birgða er notast við björgunar-
sveitarskýli. sem flutt var að
lauginni.
í Reykholti var í haust hafist
handa við byggingu hinnar
svokölluðu A-álmu við Her-
aðsskólann. I Itenni á m.a. að
vcra mötuneyti, kcnnslustof-
ur. þvottahús, heimavist og
íbúðir. Mötuneytið kentur til
með að leysa af hendi það
gamla, sem í haust var lýst
ónothæft af heilbrigðisyfir-
völdum, sem jafnframt hótuöu
að loka skólanum yrði ekki
hafist handa viö byggingu nýs
mötuneytis.
Lægsta tilboð í I. áfanga
byggingarinnar - kjallara og
plötu - átti Trésmiðjan Jaðar
sf. á Akranesi. Framkvæmdir
ganga vel og er búist viö að
áfanganum Ijúki á tilsettum
tíma, þ.e. í júní 1985.
Hitaveita hefur verið lögð á
3 bæi í nágrenni Reykholts.
Vatnið kemur úr Skrifluhver.
Framkvæmdir gengu vel, enda
einmuna góð tíö hcr í Borgar-
firði í haust og fram eftir vetri.
■ Grunnur íþróttahússins á Kleppjárnsreykjum við hlið sundlaugarinnar. Björgunarsveitarskýli þjónar nú sem búningsaðstaða við
laugina. NT-myndlr: Magnús
Sjávarútvegurinn
1984 gerður upp
Mikil loðnuveiði gerir árið að 3. mesta aflaári sögunnar
■ Þorskaflinn á s.l. ári varð
rúmar 274 þús. lestir samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskifélags
íslands og er það tæpum 20 þús.
lestum minni þorskafli en árið
1983. Togararnir hafa fengið
nær H) þús. tonnum meira af
þorski en I983 en bátaflotinn
um 30 þús. tonnum minna.
Heildar botnfiskafli varð nú
um 551 þús. lest. sem er rúmum
53 þús. Icstum (um 9‘X.) minna
en árið áður. Mest helur þessi
ntinnkun komið fram hjá báta-
flotanum. Tekið skal fram að
Fiskifélagiö spájr því að um
Kl-ll þús. lestiraf botnfiski eigi
enn eftir að bætast við í endan-
legum tölum ársins 1984. þar af
6-7 þús. lestir af þorski.
Það er fyrst og fremst mjög
mikil loönuveiöi sem gerir 1984
3. besta aflaár i sögunni; 1978
og 1979 voru betri. Loðnuaflinn
var 865 þús. lestir á síðasta ári,
sem er mesta loðnuveiðiár að
undanskildum 1978 og 1979
þegar veiðin náði milli 960-970
þús. lestum. Af síld veiddust nú
rúmlega 50 þús. lestir, saman-
boriö viö tæpar 59 þús. lestir
1983.
Miðað viö verðmæti aflans í
lok októbers.l. áætlaðar Fiskifé-
lagið að brúttó verðmæti afla
upp úr sjó ntuni aukast um
a.m.k. 37% frá árinu 1983, sem
þýðir þá um 8.480 milljóna
króna aflaverðmæti.
Tekjur af útflutningi sjávar-
afuröa frá áramótum til nóv-
emberloka námu 14.820 mill-
jónum króna. og voru tæplcga
71% af útflutningstekjum þjóð-
arinnar á þessu tímabili.
■ Hugmyndir heimamanna um vegabætur í Kauðasandshreppi.
Óhrotna línan sýnir núverandi vegi og bæi viö þá, brotalínumar
sýna hvar heimamenn vilja fá nýja vegi. Til frekari skýringar má
nefna að Patreksfjörður (byggðin) er skáhallt á inóti Orlygshöfn
hiiiiim megin við fjöröinn.
íbúar í Rauðasandshreppi:
Vilja nýja vegi
og brú á Vaðal
■ Heimamenn á 23 af alls 27
heimilum í Rauöasandshreppi
hafa undirritað kröfubréf um
brú á Örlygshafnarvaöal og
vcgalagningu um Tungurif hið
allra fyrsta. Bréfið hafa þeir
sent þingmönnunt Vestfjarða-
kjördæmis, Vegagerð ríkisins,
vegamálastjóra ásamt dag-
blöðunum. Tilgangur undir-
skrifasöfnunarinnar er m.a.
sagður sá. að sýna fram á aö vilji
hcimamanna standi ekki á móti
þessu verkefni. þó því hafi verið
boriö við. Þvert á móti sé jafn-
alrncnn samstaöa og þar komi
fram eflaust fátíð i slíkum
málum.
Nauösyn þessara frarn-
kvæmda er m.a. rökstudd með
því að lciö fólks er býr innan
Vaöals og sækja þarf þjónsutu í
byggðakjarna hreppsins
barnaskóla, félagsheimili.
kaupfélag, sparisjóð, vcrkstæði
og fleira - styttist um 7 kíló-
metra, auk þess sem öryggi í
umferð mundi stóraukast þar
sem fjöldi af blindbeygjum og
blindhæðum sé á núverandi vegi
umhvcrfis Örlygshöfn. Vegur
um Tungurif yrði Itins vegar um
1.7 km., undirbygging hans yrðf
ódýr og brú ekki ntjög stór.
Fyrir íbúa utan Vaðals rnundi
vegurinn og brúin hins vegar
stytta leiðina til Patreksfjarðar
samsvarandi.
Þá er bent á. að eigi áfram að
treysta á gamla veginn þurfi
nánast að byggja hann allan
upp. þar sern víöa séu engar
vatnsrásir auk þeirrar umferðar-
hættu sem áður er nefnd.
Saga 1984:
Ritdeila um
■ í nýjasta hefti Sögu grufla
tveir fræðimenn í þeirri gömlu
sögn hvort í alvöru hafi nú
staðið til hjá yfirvöldum að
flytja íslendinga á jósku heið-
arnar í lok 18. aldar. Birt er
lærð ritgerð Sigfúsar Hauks
Andréssonar þar sem hann
heldur fram þeirri kenningu að
sögn þessi sé af misskilningi
sprottin og aðeins hafi staðið til
að flytja bjargþrota fólk og
Jótlandsflutninga
lausingja. Sigurður Líndal mót-
mælir þessari kenningu í at-
hugasemd aftan við greinina
sem Sigfús gerir svo enn sína
athugasemd við.
Snýst deilan meðal annars
um þaö hvort samtímaheimildir
íslenskar af hugmyndum
danskra stjórnvalda hafi átt við
rök að styðjast.
Af öðru efni Sögu má nefna
uppgötvun Jóns Hnefils á nýrri
stétt Þjóðveldisaldarinnar,
önnungum. Páll í Sandvík skrif-
ar um herflugvöllinn í Kaldað-
arnesi og ráðuneytisstjóri í
danska utanríkisráðuneytinu skrif-
ar um aðskilnað ísl. og Dana.