NT - 18.01.1985, Blaðsíða 20
líl
Föstudagur 18. janúar 1985 20
Utlöncfl
Gary Harl í heimsókn
hjá sovéskum leiðtogum
Moskva-Kcuter:
■ Banduríski öldungardcild-
arþingmaðurinn, Gary Hart,
sem náði mjög langt í prófkjöri
Demokrutaflokksins fyrir síð-
ustu forsctakosningar, er nú í
Sovétríkjunum þ;ir sem hann
hefur m.a. rætt við sovéska
leiðtoga.
Hart ræddi í tvær klukku-
stundir við utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, Andrei Grom-
yko, í gær. Eftir fund sinn með
Gromyko sagði llart frétta-
mönnum að þeir hefðu aðal-
lega rætt um samkomulagið
sem Gromyko og George
Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, gerðu í síð-
ustu viku um að hefja viöræður
um bann við geimvopnum og
takmörkun kjarnorkuvígbún-
aöar.
Hart sagði að Gromyko
heföi lagt sérstaklega mikla
áherslu á andstöðu Sovét-
manna við „stjörnustríðs"-
hugmyndir Bandaríkjaforseta.
Gromyko heföi endurtekið
fyrri fullyrðingár um aö sam-
komulag um takmörkun lang-
drægra kjarnaflauga gæti ekki
náðst nema Bandaríkjamenn
féllust á að hætta við stjörnu-
stríðsáætlanir sínar.
Hart kont til Sovétríkjanna
í boði vísinda- og þingmanna-
samtaka. Hann segir að sov-
éskir leiðtogar hafi tekið mjög
vinsamlega á móti sér.
■ Gary Hart.
Fimm tonna
hassfundur
í Kanada
Montreal-Reuter:
■ Nú síðastliðinn mánudag
fann kanadíska lögreglan fimm
og háíft tonn af hassi falið í
vöruhúsi sem lögreglan hafði
lengi fylgst með.
Talsmaður kanadísku lög-
reglunnar segir að þetta sé mesti
hassfundur hingað til í Kanada.
Hassið sé af þeirri tegund sem
kölluð er „svart pakistanskt"
hass. Söluverðmæti hassins í
Kanada var lauslega áætlað um
70 milljónir dollara.
Súdan:
Dæmdir í
gálgann
Kartoum-Keuter:
■ Leiðtoga Bræðra-
flokks lýðveldissinna í
Súdan, 76ára M.M. Taha.
og fjóra flokksbræður
hans á að hengja í dag.
Þeirn er gert að sök að
vera andvígir íslömskum
lögum.
Forseti Súdan staðfesti
dóminn í gær. Fimm
menningarnir voru dæmd-
ir fyrir að dreifa bækling-
um gegn lögsetningu ís-
lamskra laga og gegn
stjórnvöldum.
Mennirnir voru dæmdir
til dauða í síðustu viku
en áfrýjunardómstóll mild-
aði síðan dóminn. Sam-
kvæmt honum höfðu
f i m m m e n n i ngarn i r mán uð
til að iðrast, að öðrum
kosti verða þeir hengdir.
Forseti Súdan, Jaafar'
Nimeiri. hefur stytt iðr-
unartímann í þrjá daga.
Talta stofnaði tlokk sinn
á fimmta áratugnum en
hann túlkar Kóraninn á
grundvelli einstaklings-
hvggju. Margir Súdanir
telja túlkanir hans vera
villutrú.
Fjöldaframleiðsla hafin
á rafknúnum dvergbílum
| Bret-
I land:
I.ondon-KculLT:
■ Clive Sinclair lávarður, sem
hingað til hcfur aðallcga verið
þekktur fyrir framleiðslu á vasa-
tölvum ogheimilistölvum, heíur
nú hafið fjöldaframleiðslu á raf-
knúnum dvergbílum, sem hann
vonast til aö verði jafnvinsælir
og smátölvurnar hans.
Dvergbíllinn gengur undir
nafninu Sinelair C5. Hann er
þriggja hjóla, opinn og aðeins
fyrir einn farþega en verðið er
heldur ekki nema 400 pund
(tæpl. 20.000 ísl. kr.). Bíllinner
úr mótuöu plasti og liægt er að
aka honum 32 km á einni
hleðslu. Hámarkshraðinn er 24
km/klst.
Sinclair stefnir að því að
framleiða 100.000 rafdvergbíla
á þessu ári. Hann spáir því að
þeir muni gjörbreyta markaðin-
um fyrir hagkvæm einstkalings-
farartæki þar sem þeir séu mjög
hentugir í stuttar innkaupaferð-
ir og þeir séu öruggarj farartæki
fyrir unglinga en mótorhjól.
Samkvæmt nýjum umferðar-
reglum í Bretlandi mega allir
eldri en 14 ára aka dvergbílun-
um sem eru tæplega einn metri
á hæð og tveir metrar á lengd.
Sumir hafa gagnrýnt Sinclair
C5 fyrir að vera hættulegur í
umferðinni en Sinclair lávarður
segir að öryggisbúnaður bílsins
hafi verið kannaður af yfirvöld-
um og hann sé algjörlega full-
nægjandi. Með því að hvetja
fólk til að aka á dvergbílunum
frekar en mótorhjólum ykist
umferðaröryggið í raun og veru
við tilkomu Sinclair C5.
Sinclair lávarður segir að
dvergbíllinn sé aðeins upphafiö.
Hann stefni að því að hefja
framleiðslu á stærri rafbílum
fyrir almennan markað á næsta
áratug.
Japönskuin mótmælenduin og lögreglu lýstur saman í nágrenni Naritaflugvallar í gær.
Símamvnd: -POLFOTO.
Japanskir vinstrisinnar
slást við óeirðalögreglu
■ Nú í vikunni kom enn einu
sinni til átaka ntilli japanskra
vinstrisinna og lögreglu við
hinn nýja alþjóðaflugvöll Jap-
amt við Narita skammt fyrir
utan Tokyo.
Þegar bygging flugvallarins
hófst t'yrir mörgum árum neit-
uðu sumir bændur á Itinu fyrir-
hugaða flugvallarsvæði að selja
jarðir sínar þótt þeim væri boðin
ríflcg greiðsla fyrir. Stjórnvöld
vildn samt ekki hætta við flug-
vallarbygginguna og fluttu
bændur í burt með valdi.
Fljótlega komu ýntsir hópar
vinstrisinna bændunum til að-
stoðar og á síðasta áratug ríkti
oft stríðsástand á flugvallarsvæð-
inu þar sent mótmælendur
hlekkjuðu sig saman til að
hindra störf við flugvallarbygg-
inguna.
Þótt Narita-flugvöllur hafi nú
verið starfræktur í nokkur ár
gera hópar vinstrisinna samt allt-
af atlögu að honum öðru hvoru
til að minna á andstöðuna viö
flugvöllinn. í átökunum núna
voru 43 mótmælendur liand-
teknir.
Portúgal:
Verkföll gegn
atvinnuleysi
Lissabon-Kcutcr:
■ Portúgalskir sjóntenn á
kaupskipum og málmiðnaðar-
ntenn boðuðu verkfall í gær og
kröfðust atvinnuöryggis. Tals-
ntenn verkalýðsfélaganna sögðu
verkfallið beinast gegn niður-
skurðarstefnu ríkisstjórnarinn-
ar í atvinnumálum.
Sjómennirnir og hal'nar-
verkamenn starfa hjá skipafé-
lagi sem er í ríkiseign. Stjórn-
völd hafa gert áætlun um að
leggjtt niður fyrirtæki sem ekki
skila hagnaði og er ætlunin að
stofna tvö ný hagkvæmari skipa-
félög og fækka starfsmönnum.
Ttilsmaöur verkalýðsfélagsins
sagði að yfir 60% meðlima fé-
lagsins í störfum hjá fyrirtækj-
unum tveimur, sem leggja á
niður, krefðust þess að starfs-
mönnum yröi ekki fækkað við
breytingarnar á rekstrinum.
A sama tínia og sjómenn
boðuðu verkfall fóru málmiðn-
aðarmenn í helstu borgum Port-
úgal í fimm klukkustunda verk-
V-Þýskaland:
Sýrlenskir diplo-
matar setja
umferðabrotamet
Konn-Kculcr:
■ Sýrlendingar voru cístir á lista
untferðaþrjóta úr hópi sendiráös-
fólks á síðasta ári í V-Þýskalandi.
Pólverjar voru hins vegar neðstir á
listanum með fæst umferðabrot.
Bílstjóri sendifulltrúa páfa fylgdi
fast á hæla Pólverja.
Meðaltal umferðabrota sýr-
lcnskra sendiráðsbíla var 30 á ár-
inu. Meðaltalið hjá Pólverjum var
aðeins 4 umferðabrot. Þrátt fyrir
diplómataréttindi sín er sendi-
ráðunum gert að greiða a.m.k.
hluta sektanna. Tekjur Bonn-
borgar af akstursafglöþum sendi-
ráðsfólks eru óverulegar.
fall-til að mótmæla utvinnuleysi
og efnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar.
Samsteypustjórn sósíalista og
sósíaldemókrata hefur lofaö að
ríkisfyrirtæki, sent rekin eru
með htilla, verði lögð niður
áður en Pórtúgal gengur í Efna-
hagsbandalag Evrópu á næstii
ári.
Svíar efla
kafbátavarnir sínar:
Keyptu tvo
júgó-
slavneska
kafbáta
l.ondon-Kcutcr:
■ Svíar hafa keypt leyni-
lcgii tvo smákafbáta scm
nota á í kafbátavarnar-
kerfi þeirra. Frétt þessi er
í tímaritinu Jane's Def-
ence Weekly í gær.
Svíiir telja ;iö erlendir
kafbátar hafi margsinnis
rofið sænska landhelgi á
undanförrium árum, en
Svíum hefurekki tekist að
ná þeim.
Jane's vitnar í sænskan
embættismann í utanríkis-
þjónustunni, Hans
Dahlberg, sent segir aö
kafbátamir verði notaðir
til að prófa kafbátavarna-
kerfr Svía.
Svíar telja að kafbátar
liafi rofiö landhelgi þeirra
að minnsta kosti 7 sinnum
á síðasta ári. 1981 strand-
aöi sovéskur kafbátur við
herstöðina í Karlskrona.