NT - 18.01.1985, Side 10

NT - 18.01.1985, Side 10
Föstudagur 18. janúar 1985 ■ Stanely Adams hefur verið brugðið um heimsku. En um kjarkleysi verður seint hægt að bregða þeim manni. Æfi hans síðustu 10 ár hefur líkst sögunni af Davíð og Golíat. Nema hvað Adams í hlutverki Davíðs virðist þurfa að fórna mun meiru en fyrirtækið Hoffmann-La Roche í líki Golíats. Adams hefur misst mikið. ÖII sín auðæfi. Það er þó ekkert hjá því að hann missti líka konuna sína. Hún framdi sjálfsmorð þegar sigur Golíats virtist augljós. ■ Stanley Adams á drungaleguni enskum vordegi. En liyrjum ;í hyrjuninni. Stanley. Adams er fæddur á eynni Möltu fyirr 57 árum. Hann cr hreskur ríkisborgari. Fyrir 20 árum réðist hann til lyfjafyrirtækisins Hoffmann- La Roclie í Sviss. Hann giftist um svipað leyti svissneskri stúlku og þau eignuðust þrjár dætur með stuttu millibili,- Velgengni Adams hjá fyrir- tækinu var mikil. Hann var vel menntaður, bráðgreindur og ekki síst hörkuduglegur. Hann varkominn í metorðeftirstutt- an tíma. Launin voru góð og framtíðin virtist brosa við hjónunum. bað var hins vcgar þá sem Stanley Adams fór að fram- kvæma það sem mörgum finnst heimskulegt af honum. Hann fór að skoða nánar pappírana hjá Roche. Og sá ýmislegt sem honum geðjaðist ekki að. Svik, lygar, hæpinn gróða og svo mætti lengi telja. „Rétt cr rétt og rangt er rangt,“ sagði Stanl- ey síðar um hugsanir sínar a þessum stundum. Og án urn- hugsunar gerði hann það sem honum fannst rétt. Hann ákærði fyrirtækið Hoffmann- La Roche fyrir samkeppnis- nefnd Efnahagsbandalagsins. Síðan eru liðin 10 ár. Nefnd- in hafði veriö stofnuð til þess að koma í veg fyrirað fyrirtæki í löndum Efnahagsbandalags- ins beittu óheiðarlegum að- ferðum í samkeppninni hvert viö annaö. í reglum nefndar- innar segir að þeir sem kæra fyrirtæki fyrir brot á þcssum reglum geti veriö óttalausir. nafns þeirra verði gætt og þeir þurfi því ekki að óttast hefnd frá fyrirtækjunum. Um þetta sagði danskur leiöarahöfund- ur. „Það er barnalegt aö trúa því að þessar reglur séu hafðar í heiðri. Efnahagsbandalagið var stofnað fyrir fyrirtæki, ekki einstaklinga. Það hikar því ekki við að skaða einstakling- ana í þágu fyrirtækjanna. Hallar undan fæti Það var þetta sem gerðist. Hoffmann-La Roche frétti mjög fljótlega um lekann úr fyrirtækinu. Hið sama gerðu svissnesk stjórnvöld. Sa m keppn isnefn d i n hafði farið þess á leit viö Stanley Adams að hann héldi áfram að vinna hjá Roche til að afla frckari sannana. „Þegaréggeri eitthvað geri ég það vcl. Fyrst ég var búinn að ákæra fyrirtæk- iö og aðeins nærvera mín gerði það mögulegt að sanna nokkuð á það hélt ég auðvitað áfram að vinna. Þegar stjórnin frétti um kæru Adams lét hún hins vegar ekki á sér staijda að gera honum skiljanlegt að nærveru hans væri ekki óskað lengur. Hann gæti leitaö sér að vinnu annars staðar. Stanley tók þessu vel. Taldi málinu lokið með þessu og sá fram á að fá vinnu annars staðar. En svissnesk stjórnvöld áttu nú eftir að leika sinn leik. Um áramótin 1974-1975 þegar Stanley, kona hans og börn og tengdaforeldrar komu til Sviss úr jólafríi á Italíu beið handtökuskipun á landamær- unum. Þá fyrst frétti Stanley af svissneskum lögum sem banna það sem kallað er iönaöar- njósnir. „Ég vissi af slíkum lögum í Rússlandi og hefsíðan frétt að þau séu líka til í Suður-Afríku og Suður-Kór- eu. En að þau væru til í Sviss hafði ég ekki minnsta grun um". Stanley var umsvifalaust varpað í fangelsi. Og konunni hans líka, þó ekki væri lögð fram ákæra á hana. Hún fékk ekki að kalla á lögfræðing og foreldrar hennar fengu ekki að vera hjá henni. Henni var fyrst sleppt eftir nokkra daga. Henni var sagt aö maðurinn hennar rnyndi líklega fá um það bil 20 ára fangelsi fyrir afbrot sitt. í fyrstu trúði hún þessu ekki. En þegar dagarnir liðu einn af öðrum og hún fékk ckki að heimsækja mann sinn og eng- inn annar heldur fór að fara um hana. Og eftir níu daga fékk hún fréttir frá háttsett- um aðilum í Sviss sem stað- festu sögusagnirnar um árin tuttugu í fangelsi. Komtn brotnaði alveg saman. Hún sá fram á líf án síns heittelskaða eiginmanns í fátækt og volæði með börin þrjú, hið yngsta ekki orðið þriggja ára. Hún gekk upp á baðherbergið og hengdi sig. Einangrun Stanlcy frétti af þessu í fang- elsið.' En það var ekki látið breyta neinu fyrir hann. Hann var í einangrun og fékk ekki einu sinna að fara út til að vera við jarðarför konu sinnar. „Ég vissi að það breytti engu þó ég léti hugfallast. Máliðyrði bara verra. Ég reyndi að einbeita mér að því að hugsa um börnin mín. Þau varð ég að sjá um." Fangelsisvistinni lauk eftir 3 mánuði. En þegar komið var út biðu ekki björgulegar að- stæður. Fjölskyldan hafði lagt alla sparipeningana sína í að kaupa sér lítið býli á Ítalíu. Þar ætluðu þau að rækta svín. Til að fjármagna kaupin höfðu þau líka orðið að taka stórt lán í ítölskum banka. Það varlátið falla á nteðan Stanley sat í fangelsinu. Aleigan var horfin. Viðbrigðin voru óskapleg. Ríkur yfirmaður hjá einu stærsta fyrirtæki Evrópu var skyndilega orðin bláfátækur. Ekkjumaöur með þrjú börn, atvinnulaus og heimilislaus. Stanley og börnin fluttu til Englands. Börnin fengu inni á heimavistarskóla sem er rek- inn af almannafé. Sjálfur fékk hann fátækrahjálp, svo nauma að hún nægði honum rétt fyrir daglegu viðurværi. Stanley var liins vegar ekki á því að gefast upp. Hann fór að safna meira efni um Hoff- mann-La Roche og önnur lyfjafyrirtæki. Á tíu árum hef- ur vinnan mjakast hægt og rólega og nú er að koma út í 18 Evrópulöndum bók um þessa baráttu hans. Það er ekki allt fallegt sem stendur í þeirri bók. Jafnframt hefur hann ákært samkeppnisnefnd Efnahags- bandalagsins og svissnesk stjórnvöld fyrir framkomuna við sig. Samkeppnisnefndin dæmdi að vísu Hoffmann-La Roche til þess að greiða háa Texti: Dóra Stefánsdóttir sekt 240.000 cnsk pund eða tæpar tíu milljónir. Én úr vös- um þcss ríka fyrirtækis voru þetta aðeins smápeningar. Tap Stanleys hefur verið miklu meira. Gróði aðaltakmarkið Stanley Adams var á ferð í Kaupmannahöfn í sumar. Til- efnið var að kynna bók sína með fyrirlestri. Ferðina notaði liann líka til að bætaeinkalífið. Hann giftist konu þeirri sem var ritari hans við bókarskrifin. Það var danska Sambands- hreyfingin, FDB. sem bauð Stanley til Danmerkur. Og stóð jafnframt fyrir fjársöfnun handa honum. Dönsk blöð, útvarp og sjón- varp birtu viðtöl við Stanely og hann virtist vinna santúð hinn- ar dönsku þjóðar án átaka. Sérlega tala menn um að það hafi verið áhrifamikið þegar hann var spurður að því í sjónvarpi hvað hann myndi ráðleggja mönnum sem lentu í sömu aðstæðum og hann sjálfur. „Að gera nákvæmlega það sama og ég hef gert," sagði hann rólega og brosti meira að segja. Á fyrirlestrinum var hins vegar lítiö urn bros. Hann var ein samfælld ákæra á alþjóð- legu lyfjafyrirtækin sem hika ekki við að eyðileggja mannslíf

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.