NT

Ulloq

NT - 18.01.1985, Qupperneq 19

NT - 18.01.1985, Qupperneq 19
 Föstudagur 18. janúar 1985 19 ILlLI Raðauglýsingar Útlönd Vesturland Alexander Stefánsson félagsmálaráöherra, og Davíð Aöal- steinsson alþigismaöur veröa til viðtals og ræöa þjóömálin á eftirtöldum stööum: Grundarfjörður: Kaffistofa frystihússins, sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00. Ólafsvík: í Mettubúð sunnudaginn 20. janúar kl. 21.00 Hellissandur: í Röst mánudaginn 21. janúar kl. 21.00 Biskupstungur Jón Helgason ráðherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingis- maöur veröa til viötals og ræða þjóðmálin í félagsheimilinu Aratungu kl. 21.00 mánudaginn 21. janúar. Allir velkomnir. Ef þú ætlar að selja eða kaupa fasteign, þá auglýsir þú auðvitað í Fasteignamarkaði NT. Auglýsingasími fasteigna er 62-16-15 Laugardaginn 19. janúar n.k. verður Sigríður Björnsdóttir fyrrverandi hótelstýra á Hótel Hveragerði sjötug. Sigríður tekur á móti gestum að félagsheimil- inu Bergþóru frá kl. 16.00 þann dag. Raufarhöfn - nærsveitir Alþingismennimir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og Guðmundur Bjarnason halda almennan stjórnmálafund í félagsheimilinu Raufarhöfn, föstudagmn 18. janúar kl. 21.00. Húsavík og nágrenni Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og Guðmundur Bjarnason halda almennan stjórnmálafund í félagsheimilinu Húsavík, laugardaginn 19. janúar kl. 16.00. Igerist Iáskrifendur Ihjá næstá lUMBOÐSMANNI UPPELDI OG NÁM í BREYTTU ÞJÓÐFÉLAGI í tilefni af ári æskunnar 1985 heldur Landssamband fram- sóknarkvenna ráöstefnu um uppeldis- og fræðslumál, laugar- daginn 19.janúar 1985 aö Hótel Hofi, Rauðarárstíg 18. Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir: 10.00-10.10 10.10-12.00 12,00-13.00 13.00-15.00 15.00-15.30 15.30-16.00 16.00-17.00 17.00 Setning og skipun starfsmanna, Sigrún Sturludóttir formaöur Landssambands framsóknarkvenna. Framsöguerindi: a) frumbernska.forskólaaldur: Heiödís Gunnarsdóttir, fulltrúi. b) Grunnskóli: Stella Guðmundsdóttir, skólastjóri. c) Framhaldsskóli: GeröurSteinþórsdóttir, kennari. d) Tengsl heimila og skóla: Sigrún Magnús- dóttir, kaupmaður. e) Tækninýjungar í námi: Áslaug Brynj- ólfsdóttir, fræöslustjóri. Hádegisverðarhlé. Hópstarf. Síðdegiskaffi. Niöurstööurhópvinnu. Almennarumræöur. Fundarslit. •'Ráðstefnan er öllum opin og vill landssamband framsóknar- kvenna hvetja alla þá sem áhuga hafa á þessum málum aö sitja ráðstefnuna. flokksstarf Indiand: Æðsti prestur sikha særður Chandigarh-Kcutcr: ■ Æösti prestur í fjölmenn- asta trúarhóp sikha á indlandi særöist alvarlega í fyrrakvöld þegar þrjú ungmenni skutu á hann. Jathedar Giani Kirpal Singh, æösti prestur í Gullna hofinu í Amritsar, var sagður úr lífs- hættu í gær og forsætisráðherra •Indverja, Rajiv Gandhi, óskaði honum skjóts bata. Kirpal Singh er tiltölulega hófsamur og er talið að ung- mennin, sem skutu á hann, tilheyri öfgahöþum sikha sem berjast fyrir sjálfstæöi þeirra svæöa sem sikhareru fjölmenn astir á. Ungmennin cltu bíl lians á mótorhjólum og skutu á æösta prestinn þegar bíiiinn stoppaði. Lífverðir svöruðu skothríðinni en árásarmönnum tókst að komast undan. í fyrrasumar settist hópur öfgasinnaðra sikha að í Gullna hofinu og safnaði þar að sér vopnurn í andstööu viö Kirpal Singh, æðstaprest, sem var á móti hryðjuverkum. í júní á síðasta ári lagði indverski her- inn svo til atlögu við öfgasinn- ana við hofið og létust þá að minnsta kosti átta hundruð manns. Rajiv Gandhi leggur nú mikla áhcrslu á að bæta samskiptin viö hófsamari leiötoga sikha cn öfgasinnaðir sikhar, sem störf- uöu í lífveröi móður lians, myrtu hana í október á síðasta ári. ■ Róttxkir sikhur við Gullna hofíð í Amritsar síðastliðið sumar. Þá vöruðu hófsamari leiðtogar sikha við afleiðingum ofbeldisins. En öfgasinnarnir létu sér ekki segjast og mörg hundruð manns féllu í valinn í bardögum milli þeirra og stjórnarhersins. Ollieldishylgjan leiddi að lokum til morðsins á Indiru Gandhi og nú hafa öfgasinnarnir í hópi sikha líka beint byssum sínum að hófsamari leiðtogum sínum. Brasilía: 38 létust í aurskriðu Sao Paulo-Reuter: ■ 38 létust í aurflóði í borginni Victoria í gær. Embættismenn sögðu að fleiri lík myndu vafa- laust koma í Ijós. Slökkviliðsmenn sögðu að 26 lík væru fundin en milli 12 og 15 væru enn grafin undir aurléðju, sem rann niður úr hlíðinni ofan við borgina. Miklar rigningar hafa verið á þessum slóðum að undanförnu en aurskriðan reið yfir í dag-' renningu þegar flestir voru enn í fasta svéfni. Lögreglan taldi líklegt að um 50 hefðu látist. Mikil rigning hefur tafið leitarstarfið og er enn hætta á nýju aurflóði. Bretland: íhaldsmenn hækka vexti London-Reuter: ■ Stjórn íhaldsmanna á Bret- landi hefur ákveðið að hækka vexti upp í 12 prósent til að sporna við gengislækkun punds- ins sem fór niður í 1.102 dollara á mánudag sem er lægsta gengi pundsins gagnvart dollaranum frá upphafi. Almennt er talið að þessi vaxtahækkun leiði til aukinnar verðbólgu. Verðbólga á síðasta ári var sex prósent og hefur stjórn Thatchers hingað til litið á minnkun verðbólgunnar sem eitt helsta verkefni sitt. Kókaínpeningar Miami-Reuter: ■ Bandarískur lyfjafræðingur segir að kókaín sé orðið svo algengt í Miami í Bandaríkjun- um að það megi nú finna á peningaseðlum í öllum bönkum þar. Lyfjafræðingur, sem heitir Lee Hearn, skýrði frá þessu við yfirheyrslur í eiturlyfjamáli í Miami í gær. Hann segir að hann hafi rannsakað seðlabúnt með hundrað og fimmtíu doll- ara seðlum, sem valin voru af handahófi í sjö bönkum. í ljós hafi komið að í hverju 1.500 dollara búnti hafi verið allt frá einum milljónasta uppí einn þúsundasta úr grammi af kók- aíni.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.