NT - 18.01.1985, Page 21

NT - 18.01.1985, Page 21
Vestur-Hollywood: Kynhverfum ekki mismunað skv. nýjum lögum Hollywood-Reuter ■ Skilti sem á stóð „Hommar fá ekki aðgang" var fjarlægt í vikunni í bar einum í borginni en þar hafði það hangið í 50 ár. Ný lög tóku gildi í vikunni í Vestur-Hollywood seni' banna mismunun sem byggir á kyn- hneigð viðkomandj eða löngun- um. Vestur-Hollywood er fyrsta borgin í Bandaríkjunum sem stjórnað er af kynhverfum. Eigandi barsins sagðist óttast að dregið gæti úr viðskiptum á barnurn ef hann hefði skiltið uppi. Hann hefði því kosið að fylgja lögum og tekið skiltið niður. Eigandinn hefði þurft að borga 2000 króna sekt á dag hefði hann streist við. Taiwan: Slóttuair loftkæ sölumenn ■ Taiwaneyja hefur oft verið rómuð fyrir milt og þægilegt loftslag þótt íbú- ar þar kvarti stundum yfir því hvað sumrin geti vcrið heit. Fimm óprúttnir svindl- arar notfærðu sér sumar- hitana í fyrra til að selja sveitafólki svikin lofkæli- tæki. En svcitafólkiö lét ekki gabbast og kallaði til lögregluna sem handtók fimmmenningana. Viö at- hugun á „lofkælitækjun- um" kom nefnilega í ljós að þau voru í rauninni aðeins kassar með stórum ísmolum og rafmagns- viftu. Föstudagur 18. janúar 1985 21 heróín- smyglara BiT}>aino ílalíu-KeutcT ■ ítalska lögreglan handsam-, aði nú í byrjun vikunnar 32 menn, þar af 14 Egypta fyrir áætlanir um umfangsmikla dreifingu eiturlyfja. Lögreglan gerði um leið upp- tækt hálft kíló af heróíni, sama magn af marijúana og 200 grömm at' þéttu hassi ásamt skartgripum og fölsuðum skjölum. Eiturlyfjunum var smyglað á bát frá egypskum höfnum til .......................... _ . Norður-Evrópu og síðan flutt á ■ Mitterrand, forseti Frakklands, fer i skyndiheimsokn til Nyju-Kaledomu i dag til stuðnmgs við |ant)i suður til Italíu gegnurn áætlun um takmarkað sjálfstæði eyjanna. Mitterrand sendi um helgina 1000 manna sveit sérþjálfaðra Sviss. lögreglumanna til að halda uppi röð og reglu. Stjórnarandstæðingar segja ferð hans vera lýðskrum til að leiða huga almennings frá efnahagsvanda Frakka. ------------------------- ítalir handtaka Paris-Reufer ■ Francois Mitterrand, forseti Frakklands, reynir að auka stuöning almennings við áætlun um takmarkað sjálfstæði eyj- anna með því að fara í óvænta ferð til Nýju-Kaledóníu. Mikill órói hefur verið á eyj- unum og hafa 19 látist í átökum á síðustu tveini mánuðum. Mittcrrand tilkynnti ferð sína í sjónvarpsviðtali á miðvikudag- inn. Hann sagðist fara ferðina til að auka stuðning við hina umdeildu áætlun um sjálfstæði Nýju-Kaledóníu. Eyjaklasinn li_ggur um 1500 km austur af Astralíu. Nýja- Kaledónía hefur verið undir stjórn Frakka síðan 1853. Margir telja að Mittcrrand fari ferðina til að rcyna að auka vinsældir sínar, sem ckki eru miklar um þessar mundir, og hann ætli sér einnig að beina athygli almcnningS frá efna- hagsvandamálum Frakka. Vinsældir stjórnar sósíalista ídag hafa minnkað hröðum skrcfum cftir að gripið var til sérstakra cfnahagsráðstafana í mars 1983. Efnahagsráðstafani rnar bci nd- ust gegn vcröbólgu cn margir tclja að stcfna sósíalista hafi leitt til harðra stéttaátaka og atvinnulcysis í atvinnugreinum og fyrirtækjum sem ríkisstjórn- in tclur óhagkvæm. ■ Samband námumanna á Bretlandi sakar lögregluna uni að valda oflieldinu í verki'allsaögeröum. Evrópuþingiö rannsakar málið. Bretland: Lögregluofbeldi í kolaverkfall- inu rannsakað - á vegum Evrópuþingsins l.ondon-Reutc'r ■ Rannsókn er hafin á vegum Evrópuþingsins á afskiptum bresku lögreglunnar af verkfalli námuverkamanna. Rannsókn þcssi var gagnrýnd í gær af reiðum breskum stjórnmála- mönnum. „Það er út í hött að Efnahags- bandalagið, sem ekki er einu sinni fært um að stjórna eigin málum, skuli vera svo ósvífið að hafa afskipti af innanríkismál- um Breta." Þetta sagði Anthony Beaumont-Dark, einn af þing- mönnum íhaldsmanna, eld- rauður af vonsku. Samband námuverkamanna hefur ásakað lögregluna um að magna ofbeldi í verkfallinu sem nú hefur staðið í 44 vikur. Stjórn námufélagsins ásakar verkfallsnienn um ofbeldið. Thatcher, forsætisráðherra, mun sitja fyrir svörum í þinginu í dag, en íhaldsþingmenn hafa lagt hart að henni að skipa lögreglumönnum að hunsa rannsóknina. Sovétríkin: Spilltir sveitaem- bættismenn dæmdir Moskva-Reuter ■ Sovéska blá'ðið „Sveitalíf" hefur skýrt frá því að þrír hátt- settir embættismenn á ríkisbúi hafi veriö dæmdir til nauðungar- vinnu vegna spillingar. Embættismennirnir drógu sér fé frá ríkisbúinu með því m.a. að falsa reikninga vfir fóðurkaup. Þeir kcyptu fóður frá smábændum á verði sem var mun lægra en reikningar til ríkisbúsins sýndu. Síðan stungu þeir mismuninum í eigin vasa. Finnski forsætis- ráðherrann í Guinness ■ Finnar státa sig af því að vera mikil bókmennta- þjóð ekki síður en við Islendingar. Sérstaklega virðast sumir Finnar hafa gaman af Ijóðalestri. Aö minnsta kosti á þetta við um forsætisráðherrann þeirra. Kalevi Sorsa. sem komst nýlega í heims- metabók Guinness fyrir kvæðalestur. Sorsa tók þátt í mara- þonljóðalestri sem stóð í hvorki meira né minna en tólf klukkustundir. Geri aðrir forsætisráðherrar betur! rransrapid 6, austur-þýskur einteinungur. Lest þessi náði 302 km hraöa á klukku- d sem er nýtt heimsmet. Austur-Þýskaland: Þýskt heimsmet í hraðakstri lesta ■ I a-þýska tímaritinu Kultur Clironik, sem ný- lega kom út, er sagt að nýtt heimsmet í hraðakstri lesta hafi verið sett í A-Þýska- landi. Lestin, sem metið var slegið á , er rafmagns ein- teinungur og náði hann 302 km hraða á klukkustund. Einteinungurinn, Trans- rapid 6, er í tveim hlutum og tekur hvor um sig 100 farþega. Þegar hraöametið var slegið var 10 manna áhöfn í lestinni og mælinga- tæki.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.