NT - 18.01.1985, Síða 23

NT - 18.01.1985, Síða 23
■ Árni Lárusson leggur hér knöttinn í körfuna án þess að nafni hans Guðmundsson komi vörnum við. NT-mynd: Sierrir 4$KÓLAN$ Hárfínn sigur hjá UMFN - á Stúdentum í gær ■ íslandsmeistarar Njarð- víkur í körfuknattleik máttu liafa sig alla við til að sigra Stúdenta í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi, 82- 74. Stúdentar veittu íslands- meisturunum harða keppni all- an leikinn og voru mjög nálægt sigri. Njarðvíkingar voru hins vegar ekki í sínu besta skapi - og fyrst rnaður nefnir skap þá var leiðinlegt að heyra í og fvlgjast með hegðun þeirra Njaðvíkinga. Sífellt nöldur út í dómarana og andstæðingana jafnt sem samherja. Þannig var Valur Ingimundar stál- heppinn að fá ckki rauða spjaldið er hann viðhafði slík orð um dómarann að ekki tekur að hafa þau eftir. Þá var Tciti Örlygss. hjá UMFN vísað úr húsinu, sanngjárnt. Stig gerðu: ÍS;Gudmundur og Eiríkur 18, Ragnar 19, Árni 7, Helgi og Karl 6. Njarðvik: Valur 20, Jónas 19, Árni 15, Hreiðar 10, ísak 8, Gunnar 6 og Ellert 4. Heimsbikarkeppnin á skíðum: Loksins vann Enn ■ Austurríkismaöurinn Hans Enn sigraði í stórsvigi í Adelbo- den í Sviss í heimsbikarkeppn- inni á skíðum í fyrradag. Þetta er fyrsti sigur Enn í langan tíma. Landi hans, Strolz. varð annar, en Pramotton frá ftalíu þriðji. Marc Girardelli frá Lúxemb- org féll í síðari feröinni í þessu stórsvigi og datt þar með úr leik. IngemarStenmark fráSví- þjóð varð níundi. Girardelli gekk betur í stór- svigi í Kitzbúhl á sunnudag. Bragi í ÍR ■ Knattspyrnumaður- inn efnilegi, Bragi Björnsson, hefur gengið til liðs við 4. deildarlið ÍR, en Bragi hefur sem kunnugt er leikið með Fram í 1. deildinni sl. tvö ár. Bragi er vafalaust góð- ur fengur fyrir ÍR-inga, sem hafa misst aðal- markaskorara sinn, Tryggva Gunnarsson, til KA á Akureyri næsta keppnistímabil. IR vann glæsilega í sín- um riðli í 4. deild i sumar, en tapaði hreinum úr- slitaleik uni 3. deildarsæti gegn Arinanni í haust. mjög óvænt. Þar sigraði hann, en Austurrík- ismaðurinn Tötsch varð annar. Bojan Krizaj frá Júgóslavíu varð þriðji. Þar varð Stenmark áttundi, en Zurbriggen mætti ekki vegna meiðslanna sem hann hlaut í bruninu í Kitzbúhl á laugardag. Leikir—Leikir ■ Italska félagið Juventus sigraði Liverpool í meistarai- keppni meistaranna í knatt- spyrnu „SuperCup" í fyrradag. 2-0. Leikið var á Ítalíu og gerði Boniek bæði mörk Juventus... ...Leicester sigraöi Burton Aibion í ensku bikarkeppninni en þessi leikur var leikinn aftur vegna þess að markvörður Burton varð fyrir hnjaski í fyrri leik liðanna og var því ákveðið að leika leikinn aftur. Leicester sigraði með eina marki leiksins sent Ramsey gerði á fyrstu mínútum hans... ...Norwich komst í undan- úrslit í deildarbikarkeppninni með sigri á Grimsby, 1-0. John Deehan gerði mark'ið eina... Föstudagur 18. janúar 1985 23 Franskar knattspyrnufréttir: Racing Club Paris skiptir um þjálfara - Bordeaux er efst í Frakklandi ásamt Nantes ■ Racing Club Paris, sem sit- ur nú eitt og yfirgefiö á botni frönsku 1. deildarinnar í knatt- spyrnu, hefur ráöið nýjan þjálf- ara. Sá nýi er reyndar ekki nýr hjá félaginu því liann var leikmaöur með liðinu fram að þessu, heitir Victor Zvunka og er 33 ára varnarmaður. Zvunka tekur við af Alain de Martigny, sem hefur verið hækkaður í tign, og kallast nú íþróttaráð- gjafi félagsins. Forseti Racing Club sagði að ekki væri uin það að ræða að þjálfarinn hefði verið rekinn, lieldur verið á- kveðið að gefa liöinu „sálræna innspýtingu“. De Martigni var sjálfur fylli- lega sammála þessari akvörð- un. „Það eru þrír og hálfur mánuður síðan við unnum lcik síðast. Við erunt á hægri cn stöðugri niðurleið. Ég er al- gjörlega sammála þessari lausn, en markmið hennar er að reyna að bjarga félaginu frá algjöru hruni," sagði hann. Racing er annað félagið í Frakklandi sem skiptir um þjálfara á þcssu tímabili; hitt liðið er Marseilles. Racing hefur nú 12 stig eftir 21 leik og er á botninum í frönsku 1. deildinni eins og áður sagði. Unt næstu helgi hefst keppni aftur eftir vetrarfrí í deildinni og er Bordeaux í efsta sæti með jafn mörg stig og Nantes en hagstæðari markatölu. Punktar Portúgal ■ Portó nádi i fyrradag tveggja stiga forskoti i portúgölsku 1. deildinni í knattspyrnu með sigri á Portimonense, 4-1. Þad var markakóngurinn mikli, Gomes, sem gerdi 2 markanna. Hann er nú markahæstur i Portú- gal med 20 mörk í 15 leikjum. Hann er einnig markahæstur i Evrópu og þykir liklegastur sig- urvegari i keppninni um „Gull- skóinn". Pacheco og Futre gerðu hin. Sporting Lisbon er í öðru sæti i Portúgal. Fatlaðir ■ Stjórn íþróttasambands fatl- aðra heldur útbreiðslufund fyrir Austfirðx til kynningar á íþrótt- um fatlaðra og annarri starfsemi Í.F. á Egilsstöðum laugardaginn 19. janúar. Útbreiðslufundur þessi er haldinn i samráði við U.Í.A., sem annast hefur kynn- ingu og undirbúning fundar þessa á Austfjörðum. Á fundinum verður farið yfir flestar þær íþróttagreinar sem fötluðum stendur til boða að stunda. ásamt fyrirlestrum um gildi iþrótta fyrir fatlað fólk. Vonast stjórn t.F. til þess að fundurinn verði til að efla skiln- ing fólks á nauðsyn iþrótta fyrir fatlaða og verði e.t.v. til þess að aðildarfélögum þess fjölgi. Fólk er áhuga hefur á málefni þessu er þvi hvatt til að koma á fundinn. Benoit ætlar að hvíla sig í bili. Meiðsl og fjölskylduáætlanir: Benoit hættir ■ Ólympíumeistarinn í mara- þonhlaupi kvenna sl. suinar, Joan Benoit frá Bandaríkjun- um, inun ekki hlaupa mara- þonhlaup á þessu ári, sökum meiösla og áætlana um að koma sér upp fjölskyldu. Bcnoit, sem gifti sig í scpt- ember sl., sagði á blaðamanna- fundi á laugardag að hún liti ekki á sig sem maraþon- hlaupara. Hún sagðisl hafa keppt í þremur stórmótum í maraþonhlaupi á síðasta ári, og í þremur stórmótum í 10 km | hlaupi. „Ég hef áhuga á að bæta tíma niinn í 10 km hlanpi, og ég hcf líka áhuga á að eignast börn." sagði Bcnoit. Benoit sagðist ekki hafa get- áð æft að undanförnu vegna | hnémeiðsla. „Ef ég fer af stað á ; árinu í hlaupunum verður það í 10 km hlaupi, og ef ég kemst i á Ólympíuleikana 1988 verður það að líkindum í 10 km hlaupi. Ég cr ckki að segja aö ég niuni ekki hlaupa maraþónhlaup í Sepul, en önnur gullverðlaun í maraþon frcista mín ekki eins og gull í 10 km. En væntanlega gct ég ekki heldur unnið rnarti- þonhlaupið þá hvort scm er," sagði Benoit. V-Þýskaland Frá Gudmundi Karlssyni frétta- Gummersbach inanni NT i Þýskalandi: Dússeldorf Húttenberg ■ Staðan í v-þýsku 1. deildinni i Dankersen handbolta: Schwabing (leikir — töpud stig - markatala - stig) Reinfuchse Essen 12 7 224-190 17 Bergkamen Kiel 11 6 253-219 16 Lemgo Grosswalistadt 12 8 244-225 16 Machenheim Hofweier 11 8 240-227 14 Handewitt 11 9 10 8 10 8 11 12 11 12 12 14 10 13 11 15 11 16 11 16 236-221 13 199- 185 12 227-238 12 200- 200 10 196-206 10 251-244 10 199-213 9 187-219 7 183-202 6 204-247 6 Punktar ■ ...Saudi-arahíska knattspyrnufélagiö Al Ahli hefur ncitað að láta Tele Santana lausan und- an samningi við félagiö í tæka tíð þannig að hann geti undirbúiö brasilíska landsliöið fyrir leikina gegn Bolivíu og Paraguay í undankeppni heinis- mcistarakcppninnar. Santana er á saniningi við arabana til loka mars. Nú er taliö líklegt að Brassar rcyni að fá einhvern ann- an til að taka viö liöinu... ...Udo Lattek, þjálfari Bayern Munchen í v- þýsku Búndeslígunni, ákvað á 50 ára afmælis- degi sínum, sem var um daginn, að hann myndi ekki bragða bjór þar til Baycrn væri orðið v- þýskur meistari. „Þetta er alveg hrikalcg fórn fyr- ir mig,“ sagði Lattek. Bayern er nú tveimur stigum á undan Bremen í baráttunni uin titilinn... ...Ivan Lendl, tennis- kappi, hefur ákveðið að laka ekki þátt í banda- rísku mcistarakcppninni í tcnnis innanhúss vcgan ineiðsla. Hann tognuði nokkuð illa í „Masters“ keppninni fyrir nokkru... ■ Hér má sjá ánægða leikmenn Juventus með „Super-Cup“ skjöldinn eftir sigurinn á Liverpool. símam.vnd-POLFOTO.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.