NT - 25.01.1985, Blaðsíða 19
tilboð - útboð
Utboð
Tilboö óskast i eftirfarandi málningavinnu fyrir byggingadeild.
1) Málun leiguíbúöa í fjölbýlishúsum
2) Málun leiguíbúöa í stofnunum aldraöra
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3,
Reykjavík gegn kr. 2.500,00 skilatryggingu fyrir hvort verk
fyrir sig.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö miövikudaginn 13. febrúar
n.k. kl. 14 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fr(kirkjuv«9' 3 — Simi 25800
?f! ÚTBOÐ
Tilboö óskast í smíöi og uppsetningu á stálrömmum undir þak
borgarleikhúss fyrir byggingadeild.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavik gegn kr. 500,00 skilatryggingu. Tilboðin veröa
opnuð á sama stað fimmtudaginn 14. febrúar n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvmgi 3 — Sími 25800
ijr útboð
Tilboð óskast í aö selja grjótmulningsstöð Reykjavíkurborgar
bólstraberg til framleiöslu á mulnum ofaníburði.
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, tilboðin veröa opnuð á sama staö miðvikudaginn
6. febrúar n.k. kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvcgi 3 — Simi 25800
tilkynningar
Öryggi íslands og kjarn-
orkuvopnalaust svæði
á Norðurlöndum
Ráðstefna a vegum utanrikismalanefndar Framsoknarflokks-
ins. Haldin aö Hótel Hofi. laugardaginn 26. januar kl.
10.00-17.00.
Fundarstjórar: Asta R. Jóhannesdóttir. utvarpsmaður og
Olafur Þ. Þóröarson. alþingismaöur.
Dagskra
10:00 Setnmg GuðmundurG. Þorarinsson. iorm. utanrikismálanefndar
10:10 Avarp Steingrimur Hermannsson. forsætisráðherra
10:20 Öryggismál Islands Þorarinn Þorarinsson.
asíðariáratugum fv.alþm.
10:40 Þróun hugmynda um kjarn- Þorður Ingvi Guðmundsson.
orkuvopnalaust svæðiá Norðurlöndumogalmennt stjörnsyslufræðingur
gildi hennar
11:00 Kjarnorkuvopnalaus svæði Gunnar Gunnarsson. fram-
áNorðurlondum:S!aöa kvæmdastjóri öryggis-
íslands malanefndar
11:20 Fyrirspurmr og umræður
12:00 Hádegisverður
13:10 Öryggi Islands og GeirHaligrimsson,
kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum utanríkisráðherra
13:30 Kjarnorkuvopnalaus svæði Páll Pétursson, form. þing-
aNorðurlöndum: flokks Framsóknarflokksins
13:45 Thomas J. Hirschfeld. Banda- rikjunum, sérfræðingur í öryggis-og afvopnunarmalum
14:15 AnnemarieLorentzen. sendiherraNoregs
14:30 Gunnar Axél Dahlström, sendiherra Sviþjóðar
14:45 Martinlsaksson, sendiherra Finnlands
15:00 Evgeniy Kosarev, sendiherra Sovétrikjanna
15:15 Síðdegiskaffi
15:35 Fyrirspurnirog almennarumræður
16:55 Ráöstelnuslit GuðmundurG. Þórarinsson. formaður utanrikisnefndar.
Raðstefnan er öllum opin.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdafööur og afa
Gissurar Gissurarsonar
Selkoti Austur-Eyjafjöllum
Gróa Sveinsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Föstudagur 25. janúar 1985 19
Falklandseyjastríðið:
Breskur leynisamningur
við stjórnina í Chile?
Fékk herforingjastjórnin hergögn fyrir aðstoðina?
I.ondon-Keuter
■ Breska tímaritið The New
Statesman segir í nýjasta hefti
sínu aö Bretar hafi gert leyni-
lega samninga við herstjórnina
í Chile um aðstöðu fyrir njósna-
flugvélar á flugvöllum í Chile á
meðan á stríöinu við Argentínu
stóð yfir 1982. í staðinn hafi
Bretar samþykkt aö hætta öllum
takmörkunum á vopnasölu til
herforingjastjórnarinnar.
Samkvæmt frétt blaðsins
leyfðu stjórnvöld í Chile bresk-
um njósnaflugvélum að að nota
herflugvöllinn í Punta Arenas í
Suður-Chile. Þaðan hefðu
njósnaflugvélar Breta síðan
flogið í stríðinu dulbúnar með
einkennismerkjum flughersins í
Chile. Bretar hefðu einnig feng-
ið leyfi til að senda menn frá
Chile yfir til Argentínu til að
njósna og gera skemmdarverk á
argentínskum flugvélum á jörðu
niðri.
Talsmaður breska varnar-
málaráðuneytisins vildi ekki tjá
sig um frétt blaðsins þar sem
það væri regla að ræða ekki um
hernaðaraðgerðir. Hann vildi
því ekki segja neitt um það
hvort Bretar hefðu haft afnot af
flugvöllum í Chile í Falklands-
eyjastríðinu.
í greininni í New Statesman
er því haldið fram að Bretar
hafi lofað að útvega flughernum
í Chile sveit flugvéla af gerðinni
Hawker Hunter. Þeir hafi einn-
ig gefið vilyrði fyrir því að tefja
fyrir rannsókn Sameinuðu þjóð-
anna á mannréttindabrotum í
Chile.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins hefur viðurkennt að
nokkrar herflugvélar hafi verið
seldar til Chile enda hafi tak-
mörkun á vopnasölu þangað
verið hætt árið 1980. Samningar
um sölu þessara flugvéla hafi
verið gerðir áður en stríðið við
Argentínumenn braust út þótt
sumar þeirra hafi ekki verið
afhentar fyrr en eftir stríðið.
George Foulkes, þingmaður
breska Verkamannaflokksins
segist munu taka ásakanir tíma-
ritsins til umræðu á breska þing-
inu. Það sé með ólíkindum að
breska stjórnin skuli hafa sam-
vinnu við einræðis- og kúgunar-
stjórnina í Chile á sama tíma og
öllum viðræðum við lýðræðis-
stjórnina í Argentínu sé hafnað.
■ Bresk orustuflugvél hefur
sig til lofts af flugvélamóöurskipi
í Falklandseyjastríðinu. Breskt
tímarit heldur því fram að við
árásina á lið Argentínumanna á
Falklandseyjum hafi breski her-
inn notað upplýsingar frá njósna-
flugvélum sem voru dulbúnar
með einkennismerkjum Chile
og flugu frá flugvöllum í Suður-
Chile.
PLO:
Arafat boðar aukinn
hernað gegn israel
Kairó-Reuter
■ Formaður samtaka Palest-
ínuaraba (PLO), Yasser
Arafat, hefur sagt í viðtali að
PLO væri staðráðið í að auka
skæruhernað gegn ísrael.
I dagblaðinu A-Gonhouria,
segir í morgun:
,.í morgun er haft eftir Arafat
í kaíróska dagblaðinu Al-Gon-
houria, að „aukning vopnaðrar
baráttu hafi algeran forgang,
sérstaklega í ljósi góðs árangurs
okkar og líbanskra banda-
manna okkar í þráteflisstríðinu
í Suður-Líbanon“.
Arafat ásakar Sýrlendinga
um að ætla sér að gera að engu
áætlanir Palestínumanna.
„Leiðtogar Sýrlendinga segjast
leiða baráttu Palestínumanna
en mín skilaboð til þeirra eru að
þeir ættu að snúa sér að því að
frelsa Gólan-hæðirnar.“ (Gól-
an-hæðirnar voru hernumdar af
ísraelsmönnum 1967).
Sýrlendingar féllust á vopna-
hlé við ísraelsmenn 11. júní
1982 eftir mikla bardaga í kjöl-
far innrásar ísraelsmanna í
Líbanon 6. júní. Sýrlendingar
hafa ekki viljað fallast á friðar-
viðræður fyrr en ísraelsmenn
■ Yasser Arafat herskárígarð
Israelsmanna.
yfirgefa Líbanon og Gólan-
hæðirnar.
1983 studdu Sýrlendingar öfl
innan PLO sem börðust gegn
hersveitum Arafats og hröktu
þær frá Trípólí.
Erfða-
uerktræði'-
Plöntur framleiða
sjálfar skordýraeitur
Brussel-Reultr
■ Belgískt fyrirtæki hefur gert
merka uppgötvun á sviði erfða-
verkfræði. Talsmenn fyrirtækis-
ins segja að uppgötvunin leiði
til þess að plöntur geti framleitt
sjálfar efni sem eyða ýmsum
plágum sem herja á þær.
Marc Zabeau, forstjóri verk-
smiðjunnar „Erfðakerfi" sagði
að rannsóknarfólk fvrirtækisins
hefði komið genasamstæðum úr
gerlum, fyrir í tóbaksplöntu-
frumum.
Eftir aðgerðina tók plantan
að framleiða bacillus-thuringi
ensis-eggjahvítuefni, en þau eru
sýrur sem lengi hafa verið not-
aðar í skordýraeitur.
Zabeau sagði að með þessum
efnum gæti plantan varið sig
gegn skordýrum. Enn frekari
rannsókna er þörf áöur en af
markaðsfærslu getur orðið.
„Við höfum árum saman ver-
ið sannfærðir um að erfðaverk-
fræði geti komið til hjálpar í
baráttunni við plágur sem eyðil-
eggja uppskeru", sagði Charles
Tatum, forstjóri „Rohm og
Haas efnaframleiðendur" en
það fyrirtæki fjármagnaði rann-
sóknirnar ásamt „Erfðakerfi“.
Perú:
Rannsókn
heitið
á manns-
hvörfum
Lima-Reuter
■ Luis Percovich, for-
sætisráðherra Perúmanna,
lofaði því í fyrrakvöld að
láta rannsaka ásakanir
alþjóðamannréttindasam-
takanna, Amnesty lnter-
national, þess efnis að
meira en þúsund menn
hefðu horfið sporlaust eft-
ir að þeir voru handteknir
af öryggissveitum lands-
ins.
Forsetinn sagði að þess-
ar ásakanir yrðu rannsak-
aðar eins vel og kostur
væri á og niðurstöðurnar
yrðu síðan birtar opinber-
lega. Hann viðurkenndi
að í einstökum tilvikum
kynnu mannréttindi að
hafa verið brotin en sagði
að stjórnin hefði sent slík
mál til dómsyfirvalda til
umfjöllunar.
Á undanförnum árum
hafa skæruliðasamtökin
„Stígurinn skínandi“ hald-
ið uppi skæruhernaði gegn
stjórnvöldum í Perú og í
desember 1982 lýsti
stjórnin yfir hernaðará-
standi í Suðaustur-Perú
þar sem skæruliðarnir eru
öflugastir. Margir þeirra,
sem hafa horfið í vörslu
öryggissveitanna, voru
handteknir vegna gruns
um tengsl við skæruliða.