NT - 27.08.1985, Side 7
Imfin
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
Heróínmet
í Hollandi
Amsterdam-Kcuter
■ Hollenska lögreglan
skýröi frá því að hún hefði
lagt hald á 45 kíló af
heróíni og handtekið níu
Kínverja sem hugðust
smygla því til Frakklands.
Þetta er mesta magn heró-
íns sem hollenska lögregl-
an hefur lagt hald á í einu
til þessa.
Að sögn talsmanns lög-
reglunnar kom heróínið
frá „Gullna þríhyrningn-
um" íThailandi. Söluverð
þess var metið á um fimm
milljónir dollara (200
milljónir ísl. kr.) í Hol-
landi en í Frakklandi hefði
það tvöfaldast í verði.
Utlönd
Saklaus leyniþjónusta?
Franska leyniþjónustan sögð hugsanlega
saklaus af því að sökkva Rainbow Warrior
París-Reuter
■ Franska stjórnin birti í gær
skýrslu rannsóknarnefndar,
sem skipuð var til að kanna
hvort franska leyniþjónustan
hefði átt aðild að sprengjutil-
ræðinu gegn Rainbow Warrior
skipi grænfriðunga, sem var
sökkt í nýsjálenskri höfn í sein-
asta mánuði. í skýrslunni kemur
fram að nefndin fann ekkert
sem sannaði að franska leyni-
þjónustan hefði átt aðild að
tilræðinu. En á hinn bóginn
kom ekkert fram í rannsókn
nefndarinnar sem afsannaði
slíka aðild.
Bernard Tricot, sem hafði
yfirumsjón með rannsókninni.
segist sjálfur telja að franska
leyniþjónustan hafi ekki sökkt
Rainbow Warrior. En hann
viðurkenndi að hann byggði
þetta álit sitt fyrst og fremst á
persónulegu mati sínu á því að
þeir yfirmenn leyniþjónustunn-
ar. sem hann hefði rætt við.
hefðu sagt satt og rétt frá.
Franska leyniþjónustan hefur
viðurkennt að starfsmenn lienn-
ar fylgdust með skipinu Rain-
bow Warrior og að „hjón" sem
handtekin voru á Nýja Sjálandi
skömmu eftir sprengjutilræðið
séu félagar í leyniþjónustunni.
Ennfremur hefur hún viður-
kennt að þrír aðrir meðlimir
leyniþjónustunnar hafi fylgst
með skipinu.
Einn maður lést þegar Rain-
bow Warrior sökk þann 10. júlí
síðastliðinn.
Iran:
„Hitler“ glæpon
tekinn höndum
Tchvrun-Keutcr
■ Lögreglan í Tcheran höfuð-
borg írans hcfur handtekið þrettán
manna gkcpahóp sem var undir
forystu 6I árs gamals þorpara sem
var kallaður „Mahmoud Hitler".
Að sögn íranskra blaða er talið
aö glæpahópur þessi beri ábyrgð á
að minnsta kosti tíu moröum og
um 40 vopnuðuni ránum. Blöðin
vitnuðu í heimildamcnn innan lög-
reglunnar sem sögðu að glæpa-
mennirnir liefðu oft dulhúist scm
lögreglumenn eða sem byltingar-
vcröir þegar þeir frömdu myrkra-
verk sín.
ffl
s
g
i
i- i ' A
.. *,.> ,.v.
-1* ’ y -
■ Mörg svört börn í Suður-Afríku neita að mæta í skóla í mótmælaskyni við kynþáttastefnuna. Lögreglan hefur nú gripið til þess ráðs
að handtaka þau ef þau sjást á ferli á skólatíma.
Trevor Tutu í fangelsi:
Sonur friðarverðlaunahafa
fangelsaður í Suður-Afríku
Fann að fangelsun átta ára barna
Jóhanncsarborg-Kcuter
■ Lögregluyfirvöld í Suður-
Afríku skýrðu frá því í gær að
Trevor Tutu sonur Desmonds
Tutu biskups og friðarverðlauna-
hafa Nóbels hefði verið hand-
tekinn. Handtaka Trevors Tutu
var gerð í nafni neyðarlaga sem
lögreglan hefur notað til að
handtaka mikinn fjölda stjórn-
arandstæðinga í Suður-Afríku
undanfarnar vikur.
Sjónarvottar segja að Tutu
hafi veriö handtekinn fyrir að
segja í heyrenda hljóði
„skammarlegt" þegar nafn á
átta ára gömlum dreng var lesið
upp í réttarsal í svertingjaborg-
inni Soweto. Drengurinn var í
hópi 92 barna sem voru leidd
fyrir réttinn vegna ákæru um aö
þau mættu ekki í skólann.
Tutu, sem er 29 ára, fékk
aðvörun frá lögreglunni um að
hafasighægan. Enhannmanaði
lögreglumennina að handtaka
sig sem þeir og gerðu.
Margir svartir skólanemend-
ur hafa mánuðum saman neitað
að mæta í skólann í mótmæla-
skyni við kynþáttamisréttið sem
m.a. kemur fram í því að skólar
blökkumanna fá miklu lægri
fjárveitingar frá ríkinu til að
kaupa kennslugögn en skólar
hvítra. í seinustu viku voru
mörg hundruð skólabörn hand-
tekin fyrir skróp.
Nemendurnir 92, sem mættu
fyrir réttinn í Soweto fengu aö
fara frjálsir ferða sinna eftir að
foreldrar þeirra greiddu trygg-
ingarfé eða lofuöu að tryggja að
þeir mættu i skólann eða yröu
heima á skólatímanum ella.
Lögfræðingar Trevors Tutu
segja að hann verði líklega hafð-
ur í haldi í fjórtán daga en
lögreglan hcfur ekki viljað stað-
festa að svo verði.
Bretland:
Ónæmistæring
banamein
fyrrverandi
ráðherra?
I.ondon-Kcutcr.
■ Breskt sunnudagsblað hcldur
því fram að fyrrverandi ráðhcrra í
íhaldsstjórninni, Avon lávarður.
sem lést fyrir rúmri viku, hafi
verið með ónæmistæringu.
Læknar, sem önnuðust Avon
lávarð, hafa hvorki viljað ncita né
staðfcsta frétt blaðsins.
Avon lávarður var 54 ára
gamall. Hann hafði umsjón með
umhvcrfismálum í ríkisstjórn
Thatcher þar til í mars síðastliðn-
um að hann fékk lausn frá cmbætti
vcgna sjúkleika. Opinberdánaror-
sök var heilabólgur scm útilokar
ekki að hann hafi verið meö
ónæmistæringu þar sem ónæmis-
tæring brýtur niður varnarkerfi
líkamans við sjúkdómum.
Avon lávarður var sonur fyrr-
verandi forsætisráðhcrra
Brctlands, Anthonys Edens
lávarðs.
EBE-atvinnuleysi
I.uxembourg-Reutcr
■ Atvinnuleysi í ríkjum Efna-
hagsbandalags Evrópu var 11 %
í júlímánuði að sögn reikni-
stofnunar bandalagsins. Þetta
er nokkur aukning frá því í júní
og einnig nokkuð meira at-
vinnuleysi en í júlí í fyrra þegar
það var 10,6%.
Atvinnuleysingjar í ríkjum
EBE teljast nú vera 12,4 millj-
ónir. Atvinnuleysingjum fjölg-
aði því sem næst um 400.000 frá
því í júní. Fjölgun atvinnu-
lausra kvenna var sérstaklega
áberandi.
Tölur EBE um atvinnuleysi
ná ekki yfir Grikkland þar sem
aðrar aðferðir eru notaðar þar
við skráningu atvinnuleysingja
en í öðrum EBE-löndum.
Fjöldi atvinnuleysingja í EBE-löndum:
írland JÚIÍ1985 Júní 1985 JÚIÍ1984
17,8 17,6 16,4
Holland 13,6 13,2 14,6
Belgía 13,5 12,3 14,7
Ítalía 12,9 13,1 11,7
Bretland 12,3 12,1 11,8
Frakkland 9,8 9,6 9,5 8,2
V-Þýskaland 8,2 8,0
Danmörk 7,9 7,9 8,9
Luxembourg 1,5 1,5 1,6
EBE 11,0 10,8 10,6
Aftökulistarnir lengjast
stöðugt í Bandaríkjunum
Washington-Rcutcr.
■ Samkvæmt upplýsing-
um, sem bandaríska dóms-
málaráðuneytið birti um
helgina, biðu 1.405 dauða-
dæmdir fangar aftöku sinnar
í 32 ríkisfangelsum um sein-
ustu áramót.
Allir voru þessir fangar
dæmdir til dauða vegna
morðs. Aðeins 17konurvoru
í hópnum og aðeins um
helmingur var af hvítum
litarhætti þótt mikill meiri-
hluti Bandaríkjamanna sé
hvítur á hörund. Um helm-
ingur var á aldrinum 25-34
ára.
Samkvæmt skýrslu dóms-
málaráðuneytisins voru 280
fangar dæmdir til dauða á
seinasta ári en aðeins 21
tekinn af lífi. Algengustu
aftökuaðferðirnar cru raf-
magnsstóll eða bænvæn eit-
urgjöf í æð. Gasaftökur eru
notaðar í átta fylkjum, heng-
ingar tíðkast í fjórum og í
þremur fylkjum eru dauða-
dæmdir fangar skotnir.
Dómsmálaráðuneytið gaf
ekki upp tölur yfir þetta ár.
En samkvæmt upplýsingum
samtaka, sem berjast fyrir
jafnrétti fólks af dökkum lit-
arhætti, hafa 16 verið teknir
af lífi það sem af er árinu og
dauðadæmdum föngum hef-
ur fjölgað uppí 1.540.
Dauðarefsing var aftur
tekin upp í Bandaríkjunum
árið 1976 eftir að hæstiréttur
kvað upp þann úrskurð að
hún bryti ekki í bága við
stjórnarskrána. Síðan hefur
dauðadómum fjölgað stöð-
ugt og hafa aldrei verið fleiri
dauðadæmdir fangar í
bandarískum fangelsum en
einmitt nú.
S
i
NEWSIN BRIEF~\
August 26 Reuter.
BONN - Chancellor Hel-
mut Kohl will decide on
possible dismissals in West
Germany‘s gravest spy
scandal after getting a det-
ailed report this week, the
government said. The
scandal surrounding the
defection of top spy-catc-
her Hans Joachim Tiedge
to East Germany last
week escalated with the
arrest of a suspect in Pres-
ident Richard Von Weiz-
aecker‘s office.
•
NAIROBY - Uganda's
new military rulers began
peace talks in Nairoby
witli the rebel National
Resistance Army (NRA),
most important of the gu-
errilla groups opposed to
ousted President Milton
Obote.
•
PARIS - An official rep-
ort gave a highly qualified
„not guilty“ verdict on
allegations that the French
secret service sank the
Greenpeace environmen-
talist group‘s ship Rain-
bow Warrior in New Zea-
land last inonth.
•
UNITED NATIONS -
The Prcsident of the U.N.
General Assembly, Amb-
assador Paul Lusaka of
Zambia, called for mand-
atory sanctions against So-
uth Africa to force it to
grant indcpcndence to
Namibia (South West Afr-
ica).
MIAMI - Prosecutors in
the trial of two men accus-
ed of conspiring to kill the
s Honduran President filed
Of a motion seeking to bar
CQ testimony that the U.S.
^ central intelligence agency
(CIA) authorized the al-
lcged plot.
•
BRASILIA - Brazilian
Financc Minister Fra-
ncisco Dorncllcs submitt-
ed his resignation and it
was accepted by Presidcnt
Jose Sarney. The move
followed the sacking of a
scnior finance ministry
ollicial who publidy critic-
ised Sarney‘s handling of
the cconomy.
COLOMBO - Security
forces killed 10 Tamil sep-
aratist guerrillas in a
jungle battle in Eastcrn
Sri Lanka while in the
north rcbels held up a
train, the Defence Minis-
try said.
«/>
&
s
BEIRUT - Scattercd
shclling punctured a fra-
^ gile four-day-old ceasefire
t/> in Beirut and State Radio
§£ said a bomb was found last
Uj night at a mosque where
^ Lebanon's Sunni Moslem
leader was due to preach.
Experts dcfused the
bomb.
•
MANAGUA - Vice-Pres-
I ident Sergio Ramirez al-
, leged the Unitcd States
1 had drawn up contingcncy
plans for the assassination
of Nicaragua‘s entire le-
' adership in the event of a
I U.S. invasion.
•
I STOCKHOLM
Sweden’s opposition Con-
' servative Party demandcd
i an investigation into a
I Swedish-aided paper mill
. project in Vietnam which
it said was using some
117.000 women as forced
, labourers.
NEWSIN BRIEF.l