NT - 27.08.1985, Page 10
varahlutir ■ varahlutir
Hedd hf.
Skemmuvegi M-20 Kópavogi
Varahlutir - ábyrgi-r viðskipti
Höfum 'fyrirliggjandi varahluti í flestar
tegundir bifreiöa, m.a.
Galant 1600 arg '7$ wolvo 343 árg 79
Subaru 1600 árg 79
Honda Civic árg 79
Datsun 120 A árg 79
Mazda 929 árg 77
Mazda 323 árg 79
Mazda 626 árg 79
Mazda 616 árg 75
Mazda818árg 76
Toyota M II árg 77
Toyota Cressida 79.
Toyota Corolla árg 79
Toyota Carina árg 74’
Toyota Celica árg 74
Datsun Diesel árg 79
DatSun 120 árg 77
Datsun 180 B árg 76
Datsun 200 árg 75
Datsun 140 J. árg 75
Datsun 100 A árg 75
Daihatsu
Carmant árg 79
Audi 100 LS árg 76
Passat árg 75
(^pelfleesfd árg 74
VW 1303 árg 75
C Vega árg 75 •
Mjniarg 78
Ránge Rover árg 75
Bronco árg 74
Wagoner árg 75
Scout II árg 74
Cherokee árg 75
Land Rover árg 74
Villis árg '66
Ford Fiesta árg '80
Wartburg árg '80
Laaa Safir árg '82
Landa Combi árg '82
Lada'Sporl árg'80
Lada 1600 árg '81
Volvo 142 árg '74
Saaþ99 árg 76
Saáb 96 árg 75
Cortina 2000 árg 79
Sc&Jt árg 75
V-díhevelle árg 79
A-$egro árg '80
Tráhsit árg '75
Skpdi 120 árg'82
Fiat 132 árg 79
Fiat 125 P árg'82
F-Fprmont árg '79
f-i5ranada árg 78
Ábyrgð á öllu, allt inni þjöppumælt'
og gufuþvegið. Vélar yfirfarnareða
uppteknar með allt að 6 mánaða
ábyrgð. ísetning ef óskað er.
Kaupum nýlega bíla til niðurrifs og
jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka
daga frá kl. 9-19 laugardaga kl.
10-16. Sendum um land allt.
Hedd h.f. síma 77551 og 78030
Reynið viðskiptin
ökukennsla
Kenni á Audi ‘82. Nýir nemendur
geta byrjað strax og greiða aðeins
tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst
réttindi. Æfing í borgarakstri. Læriði
þar sem reynslan er mest. Greiðslu-
kjör, ennfremur Visa og Eurocard.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
húsnæði óskast
Húsnæði óskast
Barnlaust par í námi óskar eftir
2ja-3ja herbergja íbúð til vors. Reglu-
semi og skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 94-3348 eftir kl.
19.00.
Aðalpartasalan
Sími 23560
Autobianci 77 Buick Appalo 74
AMCHornet'75 HondaCivic’76
AustinAllegro'78 Datsun100A’76
AustinMini'74 Simca1306'77
!ChevyVan’77 ' Simca1100'77
ChevroletMalibu’74 Saab99 '73
Chevrolet Nova'74 Skoda120L'78
DodgeDart'72 Subaru4WD'77
DodgeCoronet'72 Trabant’79
Ford Mustang 72 Wartburg 79
FordPinto’76 ToyotaCarina'75
Ford Cortina 74 ToyotaCorolla'74
FordEscort'74 Renault4’77
Fiat 131 77
Fiat 132 76
Fiat 125 P 78
Ladai 600 '82
Lada 1500 '78
Lada 1200 '80
Mazda323’77
Mazda929'74
Volvo145 74
VW1300-1303 '74
Renault5'75
Renault12’74
Peugout 504 74
Jeppar
Wagonéer 75
RangeRover'72
Scout 74
Ford Bronco '74
VW Passat '74
MetcuryComet 74
Abyrgð á öllu, kaupum bíla til
niðurrifs, sendum um land alit.
Opið virka daga frá kl. 9-19,
laugardaga frá kl. 10-16. Aðal-
partasalan Höfðatúni 10, sími
23560.
bílaleiga
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN HORNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
Forstöðumaður
Búnaðardeild Sambandsins óskar að ráða
forstöðumannfyrirvélaverslunarsviðdeildar-
innar.
Leitað er eftir manni með haldgóða þekkingu
á innflutningi og markaðssetningu ásamt
áhuga með undirstöðuþekkingu á vélum og
tæknibúnaði.
Starfið er umfangsmikið og fólgið í daglegri
stjórnun rekstursins ásamt miklum samskipt-
um við innlenda sem erlenda viðskiptaaðila,
Kunnátta í ensku og minnsta kosti einu
Norðurlandamáli ásamt reynslu í erlendum
bréfaskiptum nauðsynleg.
Upplýsingar um starfið gefur starfs-
mannastjóri og framkvæmdastjóri Bún-
aðardeildar Sambandsins.
Umsóknir sendisttil starfsmannahalds Sam-
bandsins. Umsóknarfresturtil 10. september
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉLAGA
STARFSMANNAHALO
LINDARGÖTU 9A
fff Þriðjudagur 27. ágúst 1985 10
uJJ Kvi kmynd i r
■ Madonna er geysivinsæl um þessar mundir og nú gefst okkur tækifæri til að sjá hana sem efnilega leikkonu
í kvikmyndinni „Örvæntingarfull leit að Susan“.
Þrælskemmtileg
leit að Susan
■ Rcgnboginn:
Örvæntingarfull leit að Susan (Desp-
erately Seeking Susan)
Stjórn: Susan Seidelman. Handrit:
Leora Barish. Kvikmyndataka:
Edward Lachman. Framleiðendur:
Midge Sanford og Sara Pillsbury.
Dreifandi: Orion kvikmyndasam-
steypan. Helstu hlutverk: Madonna,
Rosanna Arquette, Aidan Quinn.
Fjör, spenna, plott, góð tónlist,
mismunandi gildismat „góðborgara"
og „utangarðsmanna" - vá, ef ég væri
ennþá unglingur hefði ég hiklaust farið
að sjá kvikmyndina „Örvæntingarfull
leit að Susan“ mörgum sinum því hún
er þrælskemmtileg og ég yrði ekki
hissa ef hún slægi í gegn meðal
íslenskra unglinga því rokkstjarnan
Madonna leikur annað aðalhlutverk-
ið og skilar því bara ansi vel.
Það er athyglisvert að aðstandend-
ur kvikmyndarinnar eru aðallega
konur. Og ég leyfi mér bara að óska
þeim til hamingju því þótt konur
standi körlum síður en svo að baki í
kvikmyndgerð hafa þær átt erfiðara
uppdráttar, sérstaklega í Bandaríkj-
unum þar sem karlveldið og gróða-
hugsunin er alls ráðandi.
Islendingar ættu að kannast við
leikstjórann, Susan Seidelman því
kvikmynd henar „Brot“ (Smither-
eens) var sýnd á kvikmyndahátíð
Listahátíðar 1983 og síðar í sjónvarp-
inu. Seidelman er úr hópi þeirra
leikstjóra sem gert hafa hinarsvoköll-
uðu „New York myndir“ sem hug-
myndafræðilega sækja meira til evr-
ópskra kvikmynda en Hollywood-
glansmynda þar sem söguþráðurinn
eða atburðarásin er ekki þungamiðja
myndanna heldur byggjast þær á sam-
spili tilfininga, tóna, takti, Ijósa og
lits - til að skapa sérstakt andrúmsloft
eða ákveðna spennu. „New York
myndirnar" eru yfirleitt ntjög ódýrar
í framleiðslu á mælikvarða Hollyw-
ood glansmyndanna og gjarnan tekn-
ar á svart/hvíta filmu. Kvikmyndin
„Stranger than Paradise“ eftir Jim
Jarmusch sem sýnd var í Laugarásbíói
í vor er einmitt ein slík mynd.
Hvað unt það, í „Örvæntingarfullri
leit að Susan" rær Seidelman á mið
Hollywoodmyndanna en blandar stíl
þeirra og New York myndanna og
eigin kímnigáfu, sem hún virðist hafa
í ríkulegum mæli. sarnan og útkoman
er þrælskemmtileg mynd sem þó er
orðin helst til farsakennd og útþynnt
I UMSÖGiX
í lokin en við látum það liggja á milli
hluta. Myndin er fyrst og fremst
skemmtileg, leikurinn góður og tækni-
mennirnir skila snoturri vinnu.
Söguþráður „Örvæntingarfullrar
leitar að Susan" er margslunginn og ég
ætla ekki að gera væntanlegum áhorf-
endum það ógagn að rekja hann í
smáatriðum. En Róberta, önnur
aðalpersónan (Rosanna Arquette) er
gift hrútleiðinlegum og sjálfselskum
efnuðum manni sem rekur sund-
laugabúð (sundlaugabúð! af öllu, það
hefði varla getað verið hallærislegra,
jú. nema maðurinn hefði átt verk-
smiðju sem framleiðir pulsuskinn).
Fæddur 25. júní 1911
Dáinn 14. ágúst 1985
■ Nú er skarð fyrir skildi, þegar
fallinn er Þórður Hjálmsson. Þykir
okkur vinum hans það vandfyllt. Ég
var einn þeirra sem áttu því láni að
fagna að kynnast honurn náið. Tíður
gestur var ég á heimili hans. Par var
oft spjallað um landsins gagn og
nauðsynjar enda bar marga að garði.
Hjá Þórði var öllunt tekið af sama
höfðingsskapnum.
Á þessari stundu er mér efst í huga
hjartahlýja Þórðar og hressilegur frá-
Róberta er vansæl í hjónabandinu en
hún er kona sem gerir ekki miklar
kröfur og bætir sér leiðann upp með
því að lesa einkamálasíður dagblað-
anna og horfa á gamla slagara með
Laurence Olivier í sjónvarpinu á síð-
kvöldum. Hún hefur um nokkurt
skeið fylgst með örvætingarfullri leit
Jims nokkurs að Susan (Madonna) á
einkamálasíðunum en Jim hefur verið
að leita Susan í nokkrum fylkjum
Bandaríkjana og þegar myndin hefst
hefur leitin borist til New York. Jim
biður Susan í auglýsingunni nú að
hitta sig í ákveðnum almenningsgarði
og þar sem Róberta býr eimitt í
borginni ákveður hún að fara á stúf-
ana til að sjá þessar „frægu" persónur,
hina eftirsóttu Súsan og hinn örvænt-
ingarfulla Jim. Og síðan hefst sögu-
flækjan þar sem ýmislegt óvænt
gerist. Susan og Roberta hittast ekki
fyrr en um síðir en þær flækjast inn í
skartgriparán og morðmál fyrir tilvilj-
un og vafasamur maður er á höttun-
um eftir þeim. Og svo blómstrar ástin
og alvöruleysið... Góða skemmtun!
Margrét Rún Gumundsdóttir.
P.S. Steini poppskríbent segir mér
að LP-plata Madonnu „Like a
Virgin“ sé aftur komin á topp 10 í
Bretlandi. Það skyldi þó ekki vera
vinsældum þessarar myndar að
þakka?
sagnarmáti. Oft bar æskustöðvarnar
á góma í okkar tali. En þó voru það
menn og málefni á Akranesi sem
mest var um fjallað og iðulega í
léttum tóni, því gamansemi Þórðar
oggóðlátleg fyndni var annáluð.
Eg hef ekki í hyggju að rekja í
þessari stuttu grein uppruna eða ævi-
feril þessa öðlings, heldur vil ég með
þessum fáu orðum þakka honum að
leiðarlokum hvern kynningar- og
samverudaginn öðrum betri. Eg votta
fjölskyldu hans innilega sarnúð.
Guðmundur Björnsson
Þórður Hjálmsson
framkvæmdastjóri, Akranesi