NT - 20.09.1985, Síða 1
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7
Eldur í Reykjavíkurapóteki:
„Slökktum eldinn
á síðustu stundu“
■ Eldur kom upp í kjallara
Reykjavíkurapóteks skömmu
eftir hádegi í gær. „Að okkar
niati þá náðum við eldinum
niður á seinustu stundu. Því
þarna er mikið af allskonar
eiturefnum, aseton og ýmiskon-
ar bréfvara sem fuðrar upp eins
og hendi sé veifað, þegar eldur
kemst að. Það skipti sköpunt
hversu vel tókst til strax í
byrjun," sagði Bergsveinn
Alfonsson varðstjóri hjá slökkvi-
liði Reykjavíkur í samtali við
NT skömmu eftir að slökkvi-
starfi lauk í gær.
Öll byggingin var rýmd,
vegna mikils reyks sem leitaði
upp á efri hæðir hússins. Skrif-
stofur Reykjavíkurborgar voru
rýmdar ásamt lyfjaversluninni.
„Við urðum að konta fólki út af
öllum hæðum hússins, vegna
þess hve mikill reykur fór upp á
efstu hæðir. Þar var ekki líft
vegna reyks. Það varð að reyk-
ræsta allt húsið. Vegnastaðsetn-
ingar eldsins var sú hætta fyrir
hendi að eiturgufur sem eru
hættulegar öllum lifandi verum,
gætu borist um húsið," sagði
Bergsveinn.
Slökkvistarf var mjög erfitt,
vegna þrengsla í kjallaranum,
og var ekki hægt að ráða niður-
lögum eldsins fyrr en búið var
að bera út mikið af dóti sem
eldur hafði verið í. Slökkvistarf
stóð í tæpa þrjá tíma. Berg-
sveinn taldi að tjón væri mikið,
þar sem hreinsa þarf allan kjall-
arann og eitthvað brann af vör-
um í kjallaranum.
Til að komast að eldinum
þurfti að scnda fjóra reykkafara
með háþrýstidælur niður í kjall-
arann.
Reykvískir lögreglumenn:
Uppsagnir vegna
of lágra launa
- 24 stöður lausar um áramót
■ Tuttugu og fjórar stöður
verða lausar um áramótin hjá
lögreglunni í Reykjavík. Alls
eru 235 lögregluþjónar í borg-
inni, og því er um að ræða tíu
prósent af öllu lögregluliðinu.
Óánægjuraddir hafa verið uppi
með grunnkaup lögregluþjóna,
en hjá nýliðum mun það vera
um 18þúsundkrónurámánuði.
Af þeim tuttugu og fjórum
lögr.egluþjónum sem láta af
störfum, eru átta sem ætla að
skipta um vinnu, og má því
rekja þær uppsagnir beinlínis til
launakjara. Nokkrir fara í
launalaust frí og eitthvað er um
tilfærslur hjá embættinu, og fara
m.a. nokkrir til rannsóknarlög-
reglunnar. Samt sem áðurstefn-
ir í skort á lögregluþjónum í
höfuðborginni. Við síðustu
samningagerð lögreglumanna
var aðallaunauppbótin fólgin í
hækkun á vaktaálagi, en fasta-
kaup var lítið sem ekkert hreyft.
Áttunda október hefst kennsla
í fyrri hluta lögregluskólans og
verða nemendur heldur fleiri en
vanalega. Páll Eiríksson
aðstoðaryfirlögregluþjónn
sagði í samtali við NT í gær að
heldur meira væri um lausar
stöður nú en síðastliðin ár. „Það
er ekki spursmál að margar
uppsagnanna stafa af því að
mönnum eru boðin svipuð eða
betri heildarlaun og mannlegri
vinnutími annarsstaðar," sagði
Páll þegar hann var inntur eftir
því hvort hann teldi óánægju
með launakjör ástæðu fyrir upp-
sögnum.
Þjófar stálu
ellefu jókkum
Brotist var inn í verslunina
Hænco á Suðurgötu, á þriðja
tímanum aðfaranótt fimmtu-
dags. Ellefu leðurjökkum var
stolið og einhverju magni af
peysum. Skömmu eftir að upp
komst um innbrotið var lög-
regla komin á staðinn og veitti
eftirtekt bifreið sem stödd var
í nágrenni verslunarinnar. í
bílnum voru sjö manns, og við
leit fannst allt þýfið í bílnum.
Fólkið var á aldrinum 20-30
ára.
Verslunin Hænco verslar
með leðurfatnað og
annað lauslegt sem tengist
vélhjólaíþróttum.
NT hafði samband við ann-
an eiganda verslunarinnar,
Edvard Marx og sagði hann að
þjófarnir hefðu farið inn um
aðaldyrnar, eftir að hafa reynt
við glugga á klósetti og skrif-
Stofu án árangurs. „Þeir létu
gangstéttarhellu vaða í gegn-
um gluggann á aðaldyrunum.
Um leið og þeir fóru í gegnum
dyrnar þá fór aðvörunarkerfið
í gang og lögreglan var komin
á staðinn stuttu seinna,“ sagði
Edvard.
■ Svona var umhorfs í kjallara Reykjavíkurapóteks eftir að tekist hafði að ráða niðurlögum eldsins
sem þar kviknaði í gær. NT-mynd Kóbcrt
Fjárlagafrumvarpið:
Söluskattur af dag-
blöðum og tímaritum
- svo og hugbúnaðariðnaðinum
■ Samkvæmt heimildum
NT mun í fyrirliggjandi drög-
um að fjárlagafrumvarpi fyr-
ir árið 1986 gert ráð fyrir að
leggja söluskatt á alla út-
gáfustarfsemi. sem ekki er
þegar söluskattsskyld. Þar
eru meðtalin dagblöð og
hvers kyns blöð önnur, t.d
Helgarpósturinn og lands-
hlutablöðin og hvers kyns
tímarit. Hingað til hafa að-
eins tímarit sem einvörðungu
eru gefin út í afþreyingar-
skyni verið söluskattsskyld.
Þá mun gert ráð fyrir að
hvers kyns gagnavinnsla og
hugbúnaður af öllu tagi verði
söluskattsskyld, en undan-
þágur hafa verið frá sölu-
skatti í þeim iðnaði. Hug-
myndin mcð þeim undan-
þágum mun hafa verið að ýta
undir framþróun á þessurn
sviðuni og efla íslenskan há-
tækniiðnað.
Póllinn hf. ísafirði með nýstárlega þjónustu:
Viðgerðarmenn
í einkaflugvél
■ Fyrirtækið Póllinn hf. á ísa-
firði hefur litla einkaflugvél í
sinni þjónustu, til þess að sinna
viðhaldi hjá viðskiptavinum
víðsvegar um land. Að sögn
forráðamanna fyrirtækisins, er
þetta ódýrari máti, og tryggir
um leið að viðgerðarmenn
koma fyrr á staðinn. Flugvélin
var keypt fyrir um tveimur mán-
uðuni, og ber hún einkennisstaf-
ina TF-PQL. „Við gátum ekki
fengið o-ið“ sagði Birgir Úlfsson
sölustjóri í samtali við NT.
Kostnaður greiðist af
þeim sem pantar viðgerðina,
en Birgir fullyrti að ineð flugvél-
inni lækkaði sá kostnaður veru-
lega, þar sem viðskiptavinurinn
þyrfti sjaldnast að bíða og
einnig drægi úr þeim kostnaði,
sem oft er samfara, þegar við-
gerðarmenn eru fjarri sínu
heima, svo sem hótelreikningar
og annað sem tengist uppihaldi.
Birgir vildi einna helst líkja
þessari þjónustunýjung við
þjónustu þá sem stórfyrirtækið
Rolls Royce býður upp á.
Smygl í Eyjum:
40 breskir
bjórkassar
■ Fjörutíu kassar af bjór
fundust um borð í bátnum
Frár VE, þegar hann kom
til Vestmannaeyja á mið-
vikudag. Tollverðir fundu
kassana frammi í bátnum, í
balllestartank. Skipverjar
sem eru fjórir hafa játað
smyglið. Báturinn var að
komafráHull T'Bretlandi.
Frár VE er 120 tonna
bátur.
Kaupfélag Suðurnesja:
Stofnarúti-
búíVogum
- eftir áskorun íbúanna
■ Á almennum borgarafundi
í Vogum á Vatnsleysuströnd í
fyrrakvöld var ný deild Kaup-
félags Suðurnesja stofnuð.
Aðdragandi þess var sá að
eigandi einu verslunarinnar á
staðnum, Guðmundur Sigurðs-
son hefur ákveðið að hætta
rekstri um næstu mánaðamót.
fbúar í Vogum sendu þá
Gunnari Sveinssyni kaupfélags-
stjóra Kaupfélags Suðurnesja
undirskriftir og áskoranir þess
efnis að Kaupfélagið yfirtæki
rekstur verslunarinnar.
Hann sagði einnig að stjórn
Kaupfélags Suðurnesja hafi
ákveðið að verða við óskum
íbúanna og nú er það sent sé
orðið að veruleika, að Kaup-
félag Suðurnesja yfirtekur
rekstur verslunarinnar Voga-
bæjar í Vogum.