NT - 20.09.1985, Síða 2
■ Það má ekki mikið út af bregða, við aðstæður sem þessar. Þyrlan er um 1,5 metra frá yfírborði
sjávar. Þannig hélt flugmaðurinn henni í allt að hálfa mínútu - vanir menn.
■ Hannes Þ. Hafstein framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins
fylgist með athöfnum manna sinna, úr Aðalbjörgu RE 5.
Föstudagur 20. september 1985 2
SSMWMMMMM
■ Björgun úr sjávarháska. Vel tókst til. Borgin í baksýn, og myndin ber með sér hvemig skilyrði
voru þegar æfingin fór fram. NT-myndir: Árni Bjarna.
■ Jón E. Bergsveinsson -bátur slysavarnadeildarinnar í Reykjavík. Fljúgandi ferð og rétt skrúfan
sem tyllir á hafflötinn.
Ég vona bara að það sé eitthvað meira en BragakafTi á honum þessum
SVFÍ og varnarliðið:
„Flotinn“ á æf ingu
með varnarliðinu
-10 bátar Slysavarnafélagsins
tóku þátt í æfingunni
■ Sjóflokkar úr Slysavarnafé-
lagi Islands og björgunarsveit-
armenn af Keflavíkurflugvelli
héldu mikla sameiginlega æf-
ingu fyrir utan Reykjavíkur-
höfn um helgina. Veðurskil-
yrði voru hin ákjósanlegustu
fyrir æfíngu af þessu tagi.
Vindur norð-austlægur, 6
vindstig.
Alls voru tíu bátar, bæði
slöngubátar, og tveir nýir
björgunarbátar Slysavarnafé-
lagsins þátttakendur í æfing-
unni. Aðalbjörg RE 5 var
þátttakandi og aðstoðaði við
framkvæmd æfingarinnar.
Hannes Þ. Hafstein fram-
kvæmdastjóri félagsins sagði í
samtali við NT að æfingin hefði
gengið í alla staði vel. „Þetta
er önnur æfingin sem við höld-
um með björgunarsveitar-
mönnum frá varnarliðinu.
Menn voru almennt ánægðir
með æfinguna,' og það var
sérstaklega gaman að koma í
hús Slysavarnafélagsins, eftir
æfinguna, og ræða málin yfir
kaffi og samloku." Hannes
sagði að nú þegar væri þriðja
æfingin á döfinni, og mun hún
verða haldin einhversstaðar úti
á landi. Hann taldi ekki tíma-
bært að skýra frá hvenær eða
hvar, enda áætlanir á frum-
stigi.
Sérstakir gestir á æfingunni
voru sex yfirmenn úr U.S.
Coast Guard - bandarísku
strandgæslunni, og voru þeir, að
sögn Hannesar yfir sig hrifnir
af æfingunni.
Aðalmarkmið æfingarinnar
var að menn sem starfa í
sjóflokkum fái að kynnast sam-
starfi við þyrlu, og sjá hvernig
þær vinna.