NT - 20.09.1985, Qupperneq 5
fííT Föstudagur 20. september 1985 5
LlIÍ Fréttir
50 milljónirnar duga skammt:
Sótt um 204 milljónir
í styrki til rannsókna
■ Þær 50 milljónir króna sem
ríkisstjórnin ákvað að verja í
styrki til rannsókna og þróunar-
starfsemi á þessu ári hrökkva
skammt ef miðað er við áhug-
ann og eftirspurnina. Umsókn-
arfrestur um styrkina er útrunn-
inn og bárust alls 122 umsóknir
um samtals 204 milljónir króna.
42 umsóknir komu frá fyrirtækj-
um, 25 frá einstaklingum og 17
frá einsökum opinberum stofn-
unum. í 38 umsóknum var um
að ræða samstarf milli stofnana
og fyrirtækja eða einstaklinga.
Aætlað er að heildarkostnaður
við þau rannsóknarverkefni sem
um er að ræða verði um 680
milljónir króna á núverandi
verðlagi, en gert er ráð fyrir að
mörg þeirra standi í 2-3 ár.
Sérstök matsnefnd sem í eiga
sæti Sigmundur Guðbjarnason
háskólarektor, Jón Sigurðsson
forstjóri og Þráinn Þorvaldsson
framkvæmdastjóri mun senda
umsóknirnar til umsagnar sér-
fróðra manna, en gert er ráð
fyrir að nefndin muni úthluta
fénu ekki síðar en í lok október.
Jón Sigurðsson sagði í samtali
við NT í gær, að nefndin hefði
fyrirmæli um að láta ákveðnar
greinar sitja í fyrirrúmi, þannig
að veittir verði færri en stærri
styrkir í stað þess að dreifa fénu
í sem flesta staði. Þessi efni eru
t.d. upplýsinga- og tölvutækni,
fiskeldi og skyld verkefni, líf-
efna- og matvælatækni, samtals
er sótt um 16.7 milljónir króna
til verkefna innan þessara
greina.
En þótt 50 milljónirnar sem
ætlaðar eru til þessara styrkja
dugi skammt, ber þó að geta
þess að þær eru aðeins hluti þess
fjár sem ríkisstjórnin hyggst
verja til nýsköpunar í atvinnulífi
á þessu ári.
úmSKVLAN
i BAILY OF THE '
Rantasipihoteir, Uai^
■ Finnsku dömurnar Marjo Salonen og Tuula Karkkulainen
fagna í endamarki 1000 vatna rallsins fínnska. Unnu þær til
verðlauna þar. Þær lentu í smáævintýri hérlendis er þær skoðuðu
keppnisleiðir Ljómarallsins í vikunni.
Finnskar ralldömur
■ Sjálfsbjörg stendur fyrir ýmislegum rekstri til hjálpar
fötluðum, m.a. endurhæflngarstöð í Sjálfsbjargarhúsinu Há-
túni 12.
Sjálfsbjörg:
Selur merki og
blöð á sunnudag
■ Sunnudagurinn 22. sept- ormsstað helgina 27.-29.
ember verður hinn árlegi næstkomandi.
blaða- og merkjasöludagur
Sjálfsbjargar en á þessum
degi vekja Sjálfsbjargarfé-
lögin víða um land athygli á
málefnum fatlaðra og þá
einkum starfi landssam-
bands fatlaðra, Sjálfsbjarg-
ar.
Á merkjasöludaginn verð-
ur selt ársrit Sjálfsbjargar
sem að þessu sinni er 64
blaðsíður að stærð og inni-
heldur m.a. viðtöl við Örn
Ómarsson, Reyni Pétur
Ingvarsson og Friðrik Á.
Magnússon, verðlaunarit-
gerðir skólabarna um
umferðarmál, grein um
garðyrkju fyrir aldraða og
fatlaða, grein um tölvumið-
stöð fatlaðra og fleira.
Sjálfsbjörg leggur nú
aukna áherslu á kynningar
og félagsmál og hefur í því
skyni ráðið erindreka sem
heimsækir aðildarfélögin
regiulega. Þá má einnig geta
þess að nýlega hefur tekist
samstarf milli Sjálfsbjargar,
Þroskahjálpar, Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra
og Styrktarfélags vangefinna
um námskeiðahald fyrir að-
standendur fatlaðra barna,
þar sem fjallað er um læknis-
fræðilegar og sálfræðilegar
hliðar á fötlun og upplýsing-
ar veittar um tryggingamál.
Tvö slík námskeið hafa
þegar verið haldin en það
þriðja er fyrirhugað á Hall-
■ Farþegi í rallbílnum, sem sést á myndinni, slasaðist alvarlega, þegar bíllinn fór margar veltur við Smárahvammsgryfjurnar seint í
fyrrakvöld. Ökumaðurinn sem slapp með skrámur, ók bílnum á mikilli ferð í gryfjurnar og lenti hann á stórum steini á miðjum veginum,
með fyrrgreindum afleiðingum. NT-mynd: J.s.
Landmælingar:
Fá nýjan
forstjóra
■ Ágúst Guðmundsson land-
mælingamaður hefur verið
skipaður forstjóri Landmæl-
inga ríkisins til næstu fimm ára
frá og með 15. september að
telja. Auk hans sótti um stöð-
una Emil Bóasson landfræð-
ingur.
Ágúst Guðmundsson hefur
starfað hjá stofnuninni síðan
1961 og hefur verið deildar-
stjóri fjarkönnunardeildar síð-
astliðin 15 ár.
í hálendisævintýrum
■ Þaðerckkialgertkarlaveldi
í Ljómarallinu. Fjórar konur
taka þátt. Helga Jóhannsdóttir
ekur Toyota ásamt syni sínum
Þorfinni Ómarssyni. Inga Dísa
Ingibergsdóttir er aðstoðaröku-
maður Sigmars H. Gunnarsson-
ar á Lancer. Frá Finnlandi koma
tvær ralldömur. Marjo Salonen
og Tuula Karkkulainen á 150
Brotlending
■ TF-ETE brotlenti á
Keflavíkurflugvelli í fyrra-
kvöld. Um er að ræða litla
einkaflugvél, sem í vorufjór-
ir menn. Engan sakaði í
brotlendingunni. Vélinhrap-
aði rétt eftir flugtak, án sýni-
legrar ástæðu. Lögregla á
Keflavíkurflugvelli sagði í
samtali við NT í gær að
ekkert frekar hefði komið
fram við rannsókn slyssins.
Flugmaður vélarinnar hef-
ur haldið því fram að loft-
straumur frá stórri farþega-
þotu hafi valdið því að hann
missti stjórn á vélinni. Loft-
ferðaeftirlitið hefur málið til
rannsóknar.
hestafla Toyota Corolla. Þær
stöllur sigruðu nýlega „Kvenna-
bikarinn" svonefnda í 1000
vatna rallinu í Finnlandi, sem
er liður í heimsmeistarakeppn-
inni. Þær lentu í srná ævintýri á
Fjallabaksleið, þegar þær voru
að skoða keppnisleiðina.
Við vorum að skoða leiðir
ásamt Þorsteini og Sighvati, sem
keppa líka í rallinu, þegar jepp-
inn okkar bilaði. Losnaði aftur-
hjól undan og var ekki hægt að
gera við. LeistokkurTuuluekki
á blikuna, stopp upp á ntiðju
hálendi og engin umferð“ sagði
Marjo í samtali við NT. „En
eftir nokkurn tíma komu vaskir
sveinar á tveim jeppum á vett-
vang ellefu talsins. Þeir reyndust
hafa verið við veiðar. Reyndu
þeir viðgerð í rúma tvo tíma en
ekkert gekk. Endirinn varð sá
að við fengum far með þeim, en
upphaflegu ferðafélagar okkar
urðu eftir, ætluðu að híða eftir
fari. Nýju ferðafélagar okkar
lentu síðan líka í vandræðum,
stöðvaðist einn jeppinn tvívegis
í á og sprakk á hinum. Okkur
var haldið inn í hlýjunni allan
tímann og ég hef aldrei kynnst
jafn góðu fólki. Við kenndum
hvert öðru þjóðsöngva land-
anna tveggja en öll samskipti
fóru frant á finnsku og ís-
lensku..! Þetta var sannkallað.
ævintýri,“ sagði Marjo.
„Við erum spenntar fyrir
keppninni, sem verður erfið.
íslenskar aðstæður eru mjög
frábrugðnar því sem við
þekkjum. Sumar leiðir fimm
sinnurn lengri en við erum
vanar“ sagði Marjo.
ísafjörður:
Bílvelta
- lór betur en á horfðist
■ Bifreið valt ofan í fjöru,
af Fjarðarheiðarvegi, við ís-
húsfélagið á ísafirði. Bíl-
stjórinn sem var einn í bíln-
um slapp ómeiddur, en bíll-
inn mun vera mikið
skemmdur. Að sögn lög-
reglu var mesta mildi að
ekki fór verr. Bíllinn lenti á
hliðinni niðurviðflæðarmál.
„Ef hann hefði oltið svo sem
þremur metrum lengra,
hefði bíllinn lent í sjónum,
og þarna er aðdjúpt," sagði
lögregluþjónn sem NT
ræddi við í gær.