NT - 20.09.1985, Blaðsíða 10
B
Þingeyingar
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Guðmundur Bjarnason, halda almenna stjórnmálafundi sem
hér segir:
Laugardaginn 21. sept. kl. 16.00 Þórshöfn.
Sunnudaginn 22. sept. kl. 16.00 Raufarhöfn.
Mánudaginn 23. sept. kl. 21.00 Félagsheimilinu Húsavík.
Þriðjudaginn 24. sept. kl. 21.00 Skjólbrekku Mývatnssveit.
Framsóknarflokkurinn
Vestfirðingar
Hvers vegna er aðhald nauðsynlegt?
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra heldur almenna
stjórnmálafundi á Hótel Isafirði næstkomandi laugardag kl.
14.00 og í Félagsheimilinu á Patreksfirði næstkomandi
sunnudag kl. 14.00.
Allir velkomnir
Framsóknarflokkurinn
VARAHLUTIR
Ódýrir varahlutir í flestar gerðir bifreiða á
mjög hagstæðu verði. Sendum hvert á land
sem er.
n
f
BJÖRGUNARFELAG
STORHÖFDA 3 - REYKJAVIK — SIMI 33 700
Kennarar
Kennara vantar ennþá fyrir 5. bekk og
forskóla. Góð íbúð fyrir hendi, ferðakostnað-
ur greiddur. Upplýsingar hjá skólastjóra í
síma 94-1257 og 94-1337.
Grunnskóli Patreksfjarðar.
Hjálparkokkurinn
sem þreytist aidrei
á því að hafa hreint og fínt í kríngum sig
Effco þurrkan er ómissandi við bara nothæf í eldhúsinu. Notaðu
eldhússtörfin. Hún hjálpar þér að hana til að þrífa bílinn, bátinn eða
halda eldhúsinu hreinu og fínu, taktu hana með þér í ferðalagið.
sama á hverju gengur. Effco þurrk- Það er vissara að hafa Effco
an gerir öll leiðinlegustu eldhús- þurrkuna við hendina.
störfin að léttum og skemmti-
legum leik. Það verður ekkert mál
að ganga frá í eldhúsinu eftir elda-
mennskuna, borðhaldið og upp-
vaskið. En Effco þurrkan er ekki
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og verslunum.
Föstudagur 20. september 1985 10
Sjópóstur á íslandi
■ Flöskupóstur frá Vestmannaeyjum.
■ Þó að sjópóstur sé ekkert
sér íslenskt fyrirbæri, kem ég
til með að helga honum nokk-
uð mikið rúm. Annars er sér-
kenni sjópósts, að hann er sá
póstur sem fluttur er með skip-
um eða hverskonar öðrum
farartækjum yfir haf, eða af
öldunt hafsins. Flöskupóstur,
póstur sendur í dósum, með
bátum áFöllum gérðum, ferj-
um eða stærri skipum.
Það er skemmtilegt til þess
að vita, að á íslandi var eitt
sinn sérstök hefð um flösku-
póst ntilli Vestmanneyja og
lands. Var bréfununt stungið í
flöskur og sjósett við hagstæð
skilyrði frá Vestmannaeyjum.
En vitanlega þarf burðargjald
undir svona póst eins og hvern
annan. Þá varstungiðþumlung
af rjóli í flöskuhálsinn, áður en
flöskunni var lokað. Þetta
skyldi sá er ílöskuna fann fá
fyrir að koma bréfinu til skila.
Árið 1978, er ég var staddur
í Vestmannaeyjum, sá ég slíka
flösku á Byggðasafninu þar.
Ragnar Óskarsson, safnvörður
var svo elskulegur að gera mér
grein fyrir þessu og senda mér
meðfylgjandi mynd af þessu
sérkennilega bréfi. Kann ég
honum miklar og góðar þakkir
fyrir. Þetta er ekki eini merki
sjópósturinn sem við eigum.
Strandferðir við Isiand, reglu-
bundnar, hófust fyrir miðja
siðustu öld. Ánnaðist danska
stjórnin þær með skipum þeim
er hún sendi til landsins. Voru
það skipin: Sölöven, Arcturus
og Diana,. Síðan bættust skip
eins og; Botnia, Laura,
Phönix, Thyra, Valdimar,
Vesta og Ceres í þennan hóp.
Oft sendi fólk bréf í veg fyrir
skipin til að flýta för. Voru þá
bréfin gjarna merkt á framhlið
með nafni skipsins er skyldi
flytja þau. Oft í neðra, vinstra
horn. Eiga sumir dágóð söfn
slíkra bréfa. Loks er þess að
geta að nokkri númerastimplar
voru notaðir um borð f
skipum, eða á afgreiðslu þeirra
á póst sendan með þeim. Frá
dæminu um sjópósthúsið um
borð í Esju hefi ég sagt áður.
Þá er þess að geta að til eru
sérstakar skrár yfir sjópóst
hinna ýmsu landa. Eru þær
unnar á svipuðum grundvelli
og frímerkjaskrár. Þarerhvert
land tekið fyrir og gefin skrá
yfir þá stimpla sem notaðir
hafa verið til að aðgreina að
pósturinn hafi farið með
skipum. I skrá þeirri sem gerð
hefir verið yfir Norðurlöndin,
eru íslandi aðeins helgaðar
þrjár síður. Þar eru kynntir
stimplar með áletrunum eins
og PAQUEBOT, SKIPS-
BRJEF af ýmsum gerðum.
Sagt er hvar þeir hafi verið
notaðir og á hvað tíma. Þó er
þetta mjög ófullkomið, auk
þess sem sum tímamörk eru
röng.
Enn eru til a.m.k. þrjár
stórar bækur um skipspóst þar
sem allt í þessum efnum er
fullkomnara, sennilega er þó
bók eftir mann að nafni Ro-
bertson sú besta er ísland
varðar, en engin þeirra er þó
fullkomlega rétt og verður
kannske aldrei slík nákvæm-
lega rétt skrá skrifuð. Svo
margt er óskjalfest um hvenær
notkun ýmissa stimpla hófst
og/eða lauk, að styðjast verður
við áætlun út frá þeim bréfum
sem þekkt eru og láta það
nægja.
Því hefi ég gert söfnunar-
sviðinu skipspóst svo mikil
skil, að það gefur lesendum
mínum innsýn í hversu mikið
verk liggur oft að baki rann-
sókna á sviði frímerkjasöfnun-
ar og hinna ýmsu greinar
hennar.
En tökum fyrir fleiri sérsvið
í næstu köflum.
Sigurður H. Þorsteinsson.
ICELAND
Purl Numbtr Síark Sut m.m. Framt Si zt m.m. From: To. •/• Probably tarlitrllultr Olhtr Portz SiuJJ No. Jotiitn No. Rtmarks
Hafnarf jof* dur 1 49 57 x 14 • 1933 A6Sb Hla Close to Reykjavik. (hiscould bethatport. Neveragain rcported. (Studd ill. reduced to correct dirneiivions)
Reykjavik 1 24 35 x 10 1902? 1911 A69 R5a Skipsbrjef
2 30 32 x 10 1918 1968 A72 R5c R5e 1953 also with boxed Fra Danmorku. I'earce
3 30 , 32 x 10 1920? 1930 A70 R5c
4 30 . 32 x 10 1931 1951 A71 RSd 1‘robably worn No. 3
5 32 Í j 1972 1975 • A1070 ! R5h Wcst. Murphy
Skipstrjef
Reykjavik 3
■ Síða úr skrá um íslenskan skipspóst.
Skipsbrief
Reykjavik 4
Paquehoi
Reykjavik 5
Kukl, Purrkur Pillnikk,
Inferno 5 o.fl.:
Rokksjokkast í
Félagsstofnun
- í kvöld kl. 21
H „Rokk-Sjokk" er nafnið á
síðustu stórtónleikum sumars-
ins en tónleikarnir verða haldnir
í Félagsstofnun stúdenta f kvöld
kl. 21. Þeir sem ætla að kveðja
sumarið og rokksjokkast á þess-
um tónleikum eru hljómsveit-
irnar Kukl, The Voice, Inferno
5 og síðast en ekki síst hljóm-
sveitin Purrkur Pillnikk. Auk
þess munu skáldin Sjón, Þór
Eldon og Jóhamar flytja ljóð og
fleira.
NT náði tali af Einari Erni
Benediktssyni og spurði hann
hvort Purrkur Pillnikk hefði
verið endurlífguð. „Nei,“ sagði
hann spekingslegur, „28. ágúst
1982 gáfum við út yfirlýsingu á
þá lund að nú ætluðum við að
fara að sofa og vakna aftur
þegar nauðsyn krefði. Oft er
þörf en nú er brýn nauðsyn því
fólk kvartar mikið undan því að
það sé ekkert að gerast í tónlist-
arlífinu. Þess vegna ætlum við
bara að skemmta okkur - og
áhorfendum - konunglega. Við
ætlum ekki að fara að gefa út
plötu, við ætlum bara að spila á
þessum eina konsert.“
Einar sagði að þetta væri
engin nostalgía eða nostalklía í
þeim Purrks Pillnikk mönnum,
þeir myndu spila bæði nýja og
gamla slagara. í hljómsveitinni
eru auk Einars: Friðrik Erlings-
son sem leikur á gítar, Bragi
skáld Ólafsson á bassa og
Trymmis Strynt sem leikur á
trommur í fjarveru Ásgeirs
Bragasonar.
Annars sagðist Einar Örn
leika geðklofa þetta kvöld því
hann kemur líka fram með
hljómsveitinni Kukl sem þarf
víst ábyggilega ekki að kynna
fyrir lesendum. Flljómsveitin
■ Einar Örn Benediktsson leikur geðklofa í Rokksjokkinu því
hann kemur bæði fram með hljómsveitinni Kukl og Purki Pillnikk
NT-raynd: Róbert.
The Voice samanstendur af 15-
16 ára strákum og sagði Einar
að þeir væru ekki einu sinni
efnilegir heldur bara mjög
góðir. Inferno 5 er hins vegar
splunkuný og kemur fram í
fyrsta sinn á þessum tónleikum.
„No comment'* sagði Einar Örn
þegar NT spurði út í þá hljóm-
sveit. „Þeir eru að tjá sig og í
hljómsveitinni eru meðal annar
Þorri Jóhannsson, Ómar Stef-
ánsson og Óskar Thorarensen.“
Tónleikamir verða líldega ekki
endurteknir og Einar Örn vildi
fyrir hönd Cuculus-nefndarinn-
ar koma því á framfæri að
tónleikarnir yrðu bara hreint og
beint skemmtilegir. Miðaverði
er stillt í hóf, eða 300 krónur.