NT - 20.09.1985, Blaðsíða 14
Föstudagur 20. september 1985 14
LlL Helgin framundan
Jakobína
Leikfélag
Reykjavíkur í
Gerðubergi
■ Á sunnudag veröur frum-
flutt í Gerðubergi á vegum
Leikfélags Reykjavíkur
dagskrá úr verkum Jakobínu
Sigurðardóttur. Dagskráin er
1. verkefni Leikfélagsins í vet-
ur og jafnframt framlag þess til
Listahátíðar kvenna.
Bríet Héðinsdóttir tók
dagskrána saman og hefur um-
sjón með henni, en flytjendur
auk Bríetar eru Ingibjörg
Marteinsdóttir söngkona, Jór-
unn Viðar tónskáld og leikar-
arnir Margrét Óiafsdóttir, Val-
gerður Dan, Hanna María
Karlsdóttir og Þorsteinn
Gunnarsson.
Dagskráin samanstendur af
upplestri, leik og söng úr verk-
um Jakobínu, og verður frum-
flutt kl. 20.30 á sunnudag í
Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi, 2. sýning verður
föstud. 27. sept. á Kjarvals-
stöðum og sú 3. í Gerðubergi
sunnud. 29. september.
Þessir leikarar standa að dagskrá úr verkum Jakobínu: Margrét Ólafsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Bríet Héðinsdóttir og Valgerð-
Dan.
Kvikmyndin
um Tsapaév
í MÍR
■ Sunnudaginn 22. sept-
ember kl. 16.00 verður fræg
sovésk kvikmynd sýnd í húsa-
kynnum MÍR að Vatnsstíg
10. Þetta er myndin
„Tsapaév", sem talin er í
hópi klassískra kvikmynda
Sovétmanna frá fjórða ára-
tugnum. Kvikmyndin var gerð
fyrir hálfri öld eftir sögu D.
Furmanovs. Leikstjórar voru
hinir svonefndu Vassiliév-
bræður, aðalhlutverkið lék B.
Babotskin. Myndin er með
enskum skýringartexta. Að-
gangur er ókeypis og öllum
heimill.
Ingibjörg Björnsdóttir er höf-
undur dansa og Kristinn
Daníelsson annast lýsingu.
Með helstu einsöngshlut-
verk fara: Kristján Jóhanns-
son, Kristinn Sigmundsson,
Elísabet F. Eiríksdóttir, Sig-
ríður Ella Magnúsdóttir,
Katrín Sigurðardóttir, Robert
W. Becker og Viðar Gunnars-
son. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur, en að auki taka
Þjóðleikhúskórinn og íslenski
dansflokkurinn þátt í sýning-
unni.
Þetta er frumuppfærsla á
verkinu hér á landi og jafn-
framt ein viðamesta sýning
Þjóðleikhússins frá upphafi, en
milli 120 og 130 manns taka
þátt í henni.
Þjóðleikhúsið hefur áður
sýntþrjáróperur Verdis: Rigo-
letto (tvisvar), II trovatore og
La traviata.
Frumsýningin er á laugar-
dagskvöld og önnur sýning á
sunnudagskvöld og er uppselt
á báðar sýningarnar.
íslenskar
myndlistar-
konur fæddar
1888-1930
Frumsýning á
Grímudansleik
eftir Verdi
■ Þjóðleikhúsið frumsýnir
óperuna Grímudansleik (Un
ballo in maschera) eftir Gius-
eppe Verdi. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson, hljóm-
sveitarstjóri er Maurizio Bar-
bacini frá Italíu, leikmynd ger-
ir Björn G. Björnsson, bún-
inga gerir Malín Örlygsdóttir,
fra skolahlaupi.
Norræna skóla'
hlaupið 1985
■ Norræna skólaíþrótta-
nefndin stóð fyrir skólahlaupi
á Norðurlöndum á tímabilinu
okt-nóv. á sl. skólaári. Þá
tóku 79 skólar hér á landi þátt
í hlaupinu, þrátt fyrir þá rösk-
un sem varð á skólahaldi þá í
október.
Með „norræna skólahlaup-
inu“ er leitast við að hvetja
nemendur, kennara og aðra
starfsmenn skólanna til að æfa
hlaup eða aðrar íþróttir reglu-
lega og stuðla þannig að betri
heilsu og vellíðan.
Þess er vænst að norræna
skólahlaupið verði framvegis
árlegur viðburður í íþróttalífi
grunn- og framhaldsskóla á öll-
um Norðurlöndum og fari fram
í löndunum um líkt leyti, eða
fram til 15. október.
Ákveðið hefur verið að
hlaupið fari fram hér á landi á
tímabilinu 17. september til
15. október.
Er hér með hvatt til þess að
allir skólar verði með í
norræna skólahlaupinu 1985.
Að hlaupinu loknu fær hver
þátttakandi og einnig hver
skóli viðurkenningarskjal, þar
sem greint verður frá heildar-
árangri hans. Einnig verða
heildarúrslit birt í fjölmiðlum
og send skólum landsins.
Umsjón með „skólahlaup-
inu 1985“ hefur samstarfs-
nefnd skipuð Reyni G. Karls-
syni, íþróttafulltrúa og Birni
Magnússyni, fulltrúa f.h.
íþrótta- og æskulýðsmáladeild-
ar menntamálaráðuneytisins
og Sigurði. Helgasyni, deildar-
stjóra f.h. útbreiðslunefndar
Frjálsíþróttasambands
íslands.
■ í tilefni af Listahátíð
kvenna stendur nú yfir í Lista-
safni íslands sýning á verkum
19 íslenskra myndlistarkvenna
sem fæddar eru 1888-1930.
Á sýningunni eru 8,0 lista-
verk, höggmyndir, klippimynd-
ir, olíumálverk, vatnslita-
myndir og vefnaður, öll í eigu
safnsins.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 13.30-16.00 virka daga og
frá 13.30-22.00 um helgar.
John-FranklinKoenig
-Grafík
■ Sýning á steinprenti og
mónótýpum eftir bandaríska
listmálarann John-Franklin
Koenig í Listasafni íslands er
opin daglega frá kl. 13.30-
16.00 virka daga og til 22.00
um helgar.
Sýningunni lýkur 22.
september.
Silfurmunir
í Norræna húsinu
■ Laugard. 21. sept. verður
opnuð í anddyri Norræna húss-
ins sýning á silfurmunum eftir
hinn þekkta finnska lista-
manna Bertel Gardberg. Á
sýningunni eru um eitt hundr-
að verk og lýsa þau vel þróun-
inni í list Gardbergs á sl. 40
árum. Verkin eru öll í eigu
listamannsins sjálfs og Listiðn-
aðarsafnsins í Helsinki.
Anders Huldén, nýskipaður
sendiherra Finnlands á íslandi,
mun opna sýninguna á laugar-
daginn og verður hún opin á
venjulegum opnunartíma
hússins til 7. október.