NT - 20.09.1985, Síða 19
Föstudagur 20. september 1985 19
V-þýskir í vanda
■ V-Þýskaland, sem í
mörg herrans ár hefur verið
ein af leiöandi þjóðum í
frjálsum íþróttum, má nú
muna fífil sinn fegri og
forráðamenn frjálsra
íþrótta þar í landi eru
hræddir um að þeirra muni
bíða veruleg afhroð í
Evrópukeppninni sem
fram fer í Stuttgart á næsta
ári.
V-Þjóðverjar unnu til
átta gullverðlauna í síðustu
Evrópukeppni sem haldin
var í Aþenu 1982 og voru
ofsakátir að fá keppnina til
sín á næsta ári. Sú kátína er
nú að mestu slokknuð og
Otto Klappet, fram-
kvæmdarstjóri v-þýska
frjálsíþróttasambandsins,
sagði nýlega að nú væri
ekkert eftir nema „bjarga
því sem bjargað verður fyr-
ir keppnina í Stuttgart.“
Síðasta keppnistímabil
var geysislakt hjá V-Þjóð-
verjum. Enginn íþrótta-
maður vann til gullverð-
launa, hvorki á Heims-
meistara - né Evrópu-
keppninni innanhúss fyrr á
þessu ári og aðeins þrír
náðu því að vinna sér þátt-
tökurétt í Grand Prix loka-
keppninni í Róm.
Hver er ástæðan? Thom-
as Wessinghage, Evrópu-
meistarinn í 5000 m hlaupi,
heldur því fram að v-þýska
frjálsíþróttasambandið sé
nú að borga brúsann fyrir
að vanrækja unglingastarf
og ieit að hæfdeikafólki.
Hann sagði að sambandiö
hefði í allt of mörg ár treyst
á nokkur þekkt nöfn og
sent of fáa frjálsíþrótta-
menn til keppni í alþjóða-
mótum.
Spænska
bikarkeppnin:
Nokkrir leikir í 1. uraf:
Celtiga-Celta ............ 0-2
Torrelavega-Racing........ 1-4
Huesca-Zaragoza........... 2-2
Gandia-Valencia .......... 1-2
Eldense-Hercules.......... 0-3
Leonesa-Valladolid ....... 0-5
Moguer-Real Betts......... 0-2
Cordoba-Sevilla............2-6
Telde-las Palmas.......... 1-3
■ Pat Ewing verður jafnvel ríkari en frændi hans J.R. Ewing sem þó á peninga eins og...
NT-lið sumarsins:
Mikið sóknarlið
- Gunnar, Guðni, Ómar og Ragnar voru sjö sinnum í liðinu í sumar
■ Eins og lesendur NT hafa
tekið eftir þá höfum við hér á
íþróttunum valið NT-lið hverrar
umferðar í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu. Við höfum nú
tekið saman lið sumarsins og
skipa það eftirtaldir leikmenn.
Þetta val er byggt á vali okkar í
lið vikunnar.
Markvörður: Halldór Hall-
dórsson, FH. Halldór kom á
óvart með nýliðum FH og varði
markið af stakri prýði mestan
hluta sumarsins. Hann dalaði
nokkuð undir lok tímabilsins en
var mjög góður fram að því.
Halldór var 3svar í liði umferð-
arinnar.
Stuttgart kaupir
■ Stuttgart, lið Ásgeirs Sigurvinssonar í V-Þýskalandi,
hefur ákveðið að kaupa júgóslavneska framherjann Pre-
drag Pasic. Pasic, sem leikið hefur 15 landsleiki fyrir
Júkkana, mun koma í stað Nico Claesens sem er á förum
til Standard Liege í Belgíu.
Bakverðir: Guðjón Þórðar-
son, ÍA, og Gunnar Gíslason,
KR. Þessir piltar spiluðu reynd-
ar báðir hægri bakvörð mest allt
tímabilið en Gunnar kom einnig
við sögu á miðjunni. Gunnar
var 7 sinnum í liði umferðarinn-
ar en Guðjón, sem átti eitt sitt
besta keppnistímabil með ÍA
var 5 sinnum í liðinu. Þeir verða
að deila um það sín á milli hvor
verður hægri og hvor vinstri
bakk.
Miðverðir: Valsparið Guðni
Bergsson og Sævar Jónsson
voru í sérflokki í hjarta varnar-
innar. Guðni var 7 sinnum í
liðinu en Sævar 6 sinnum. Vals-
vörnin var eflaust sú sterkasta í
deildinni og þeir báru hana
uppi.
Miðjumenn: Það kom á dag-
inn að sókndjarfir miðjumenn
voru oftast í liðinu enda skorað
mikið af mörkum í deildinni og
því við hæfi að sóknarliði væri
stillt upp. Á miðjunni verða:
Halldór Áskelsson, Þór, Ómar
Torfason, Fram og Siguróli
Kristjánsson, Þór. Omar varð
markahæsti leikmaður mótsins
og 7 sinnum í liðinu hér á NT.
Halldór og Siguróli báru uppi
hið unga og skemmtilega lið
Þórs Akureyri og var Halldór
Patrick Ewing verður
Ofsaríkur
Sex ára samningur hans við Knicks gefur
honum 680 millur
■ Eins og NT skýrði frá fyrr í
sumar þá voru það New York
Knicks úr NBA-körfuknatt-
leiknum í Bandaríkjunum sem
náðu í Patrick Ewing hinn
snjalla 2,13 metra miðherja frá
Georgetown háskólanum.
Ewing þessi hefur verið eitt
mesta efni í háskólakörfuknatt-
leiknum í ein þrjú ár og stóru
liðin biðu eftir að hann kæmi í
NBA-deildina. En það er dýrt
að ná í góða leikmenn.
New York Knicks og Pat
Ewing hafa gert með sér sex ára
samning og fær Ewing í sinn
hlut 17 milljónir dollara eða um
680 milljónir íslenskar krónur
þessi sex ár. Þetta gerir Ewing
hæst launaða nýliða í NBA-
deildinni og fer hann með því
fram úr Akeem „The Dream“
Olajuwon sem samdi við
Houston Rockets í fyrra.
Ef allt gengur vel hjá Ewing
þá gæti hann orðið hæst launaði
leikmaður í deildinni eftir fjög-
ur ár en þá verður samningurinn
endurskoðaður. Þá verðurhann
á meðal manna eins og Moses
Malone hjá Fíladelfía 76ers sem
er með 15,5 milljónir dala fyrir
sex ár, Larry Bird hjá Boston
Celtics með 14 millj. dala fyrir
átta ár og Erving „Magic“ John-
son hjá Lakers með 25 milljónir
fyrir 25 ára samning.
Góður árangur
- Stavangursstrákanna í Noregi
■ Nú er keppnistímabil
norskra handknattleiksmanna
að byrja og fjórir íslendingar
verða þar í eldlínunni. Þrír
þeirra starfa hjá Stavanger.
Helgi Ragnarsson er þar þjálfari
og þeir Jakob Jónsson (KR) og
Sveinn Bragason (FH) spila
nteð liðinu. Þá er Gunnar Ein-
arsson þjálfari Fredriksborg Ski
og hann hefur jafnframt leikið
nteð liðinu til þessa.
Norsk blöð slógu því upp í
vikunni hversu vel íslendingun-
um hjá Stavangri gangi en liðið
licfur gert það gott í æfingaleikj-
urn og Sveinn og Jakob verið
bestu menn þess. Það verður
því gaman að fylgjast með þess-
um löndum okkar í vetur.
kosinn efnilegasti knattspyrnu-
maður ársins. Við erum ekki í
vafa um að Siguróli hefur ekki
verið honúm langt að baki. Þeir
voru báðir 5 sinnum í liði um-
ferðarinnar.
Framlínumenn: Þeir þrír er
fá þann heiður að skora mörk í
liði sumarsins eru Ragnar Mar-
geirsson, ÍBK en hann varð
annar markahæsti leikmaður
sumarsins og allir þekkja krafta
hans. Guðmundur Þorbjörns-
son, Val, varð ásamt Ragnari
annar markahæsti leikmaður
mótsins. Guðmundur vareinnig
kosinn leikmaður íslandsmóts-
ins fyrir stuttu. Hann verður í
fremstu víglínu ásamt Ragnari
og Guðmundi Torfasyni sem átt
hefur mjög gott tímabil með
Fram. Guðmundur Torfa er
sterkur skallamaður og skot-
maður mikill. Ragnar var 7
sinnum í liðinu. Gummi Þor-
björns var 5 sinnum en Torfason
6 sinnum. Framlína í gæða-
flokki 1.
Eins og sést á þessari upptaln-
ingu þá er lið sumarsins sterkt.
Liðið er sóknarlið enda mörkin
í sumar verið fleiri en menn fá
tölu á skotið. Vörnin er einnig
sterk og í markinu er ungur en
upprennandi markvörður.
Jakob Jónsson gerir það gott í Noregi.
NT-mynd: Árni Bjama.
Götuhlaup Islands
■ Götuhlaup íslands fer fram
í Vesturbænum sunnudaginn
22. september. Hefst hlaupið
kl. 11:00 við KR-heimilið.
Mislangirfætur
- sá hægri er styttri en sá vinstri og allt í steik hjá Bremen
Rudi Vöiler er hálf skakkur eins og þessi mynd sýnir.
■ Heilmikið mál er nú komið
upp hjá Werder Bremen, þýska
knattspyrnufélaginu sem hefur,
um þessar mundir, forystu í 1.
Búndesligu þar í landi. Læknir
félagsins lýsti því nefnilega yfir
um daginn að þrálát meiðsli
lykilleikmanns félagsins Rudi
Völlers hefðu ekkert að gera
með tognun í læri (eins og
haldið var fram) heldur væri
hægri fótleggur landsliösmið-
herjans styttri en sá vinstri.
Völler hefur þurft að fara út
af í síðustu tveimur leikjum en
dr. Wiedermann, læknir liðsins,
sagði að strax yrði haíist handa
við uppbyggingu fótar Völlers.
Framkvæmdastjóri félagsins
varð hins vegar hundillur vegna
yfirlýsinga læknisins og hótaði
honum málshöfðun. Heimildir
segja nefnilega að forráðamenn
félagsins séu nú smeykir um að
kaupverð Völlers muni lækka
verulega. Þetta kemur sér illa
vegna þess að samningur kapp-
ans rennur út á næsta ári og
ítölsk félög standa nú þegar í
slag um að fá hann í sínar raðir.
Völler er markahæstur í
V-Þýskalandi og er um þessar
mundir langhættulegasti fram-
línumaðurinn í Búndeslígunni.
Er fréttin lak út hafði einn
sjónvarpsmaður á orði að „ef
Völler getur spilað svona vel
með annan fótinn styttri hvernig
væri hann þá ef báðir fætur væru
jafnlángir?"
Keppt er í flokki karla og
kvenna. Boðhlaupssveit karla
skal skipuð fjórum hlaupurum,
- 1. og 3. maður hlaupa u.þ.b.
3 km hvor en 2. og 4. u.þ.b. 6
km hvor. Boðhlaupssveit
kvenna skal skipuð þremur
hlaupurum, - 1. og 3. hlaupa 3
km hvor en 2. 1,5 km.
Hlaupið er íslandsmeistara-
mót félaga inrian F.R.Í. Hins
vegar er það opið fyrir alla.
Upplagt er fyrir æfingahópa,
skóla, fyrirtæki og félagasamtök
að senda sveitir til keppni.
Sveitir skulu skráðar hjá skrif-
stofu F.R.Í. s. 83686 eða Dýra,
s. 83069 (kv). Þátttökugjöld,
kr. 100 á mann greiðist á
mótsstað.
Ákjósanleg búningsaðstaða
er sundlaugin í Vesturbænum.
Múller snýr aftur heim
lígunni í vctur.
Það er félagið Saarbrueck-
en sem boðið hefur Múller
tveggja ára samning og for-.
ráðamenn svissneska liðsins
V-þýski miðherjinn
knattspyrnu, Dieter Múller
sem leikið hefur að undan-
förnu með svissneska 1.
deildarliðinu Grasshopper
Zurich ætlar sér að snúa
aftur heim og leika í Búndes-
hafa þegar fallist á að hann
geti farið.___________________________